Fréttablaðið - 21.11.2002, Síða 1
TÓNLIST
Björk á
tímamótum
bls. 28
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 21. nóvember 2002
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 16
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og Sálin sameina krafta sína
á tónleikum kvöldsins. Þeir hefjast
kl. 19.30.
Sinfó og Sálin
FUNDUR Svandís Svavarsdóttir talar
um fæðingarsögur íslenskra
kvenna í hádegisrabbi Rannsóknar-
stofu í kvennafræðum. Rabbið
hefst klukkan 12.
Fæðingar-
sögur kvenna
TÓNLEIKAR Vinir Indlands halda
styrktartónleika í Salnum, Kópa-
vogi, í kvöld klukkan 20. Meðal
þeirra sem koma fram eru Bubbi
Morthens, Sigrún Hjálmtýsdóttur
og Anna Guðrún Guðmundsdóttir.
Vinir Indlands
spila saman
UPPLESTUR Lesið verður upp úr fjór-
um bókum á Súfistanum Laugavegi
í kvöld. Andri Snær Magnason og
Einar Már Jónsson eru meðal þeir-
ra sem stíga á stokk klukkan 20.
Andri Snær
og Einar Már
FISKUR
Vonast eftir
kvóta
FIMMTUDAGUR
233. tölublað – 2. árgangur
bls. 12
ÍÞRÓTTIR
Dallas nálgast
metið
bls. 16
SPEGILMYND ESJUNNAR Snævi þaktar hlíðar Esjunnar spegluðust fallega í glerhýsinu við Laugaveg þegar ljósmyndari Fréttablaðsins
átti leið þar hjá. Húsið líktist helst mósaíklistaverki eftir frægan listamann.
REYKJAVÍK Austlæg átt 5-10.
Skýjað og rigning öðru
hverju. Hiti 3-9 stig
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Skúrir 6
Akureyri 5-10 Skýjað 8
Egilsstaðir 10-15 Rigning 7
Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 6
➜
➜
➜
➜
ÞETTA HELST
+
+
+
+
STJÓRNMÁL Kröfum Íslendinga um
að Evrópusambandið felldi niður
tolla af sjávarafurðum gegn því
að framlög í þróunarsjóð Sam-
bandsins yrðu hækkuð að ein-
hverju marki var svarað með því
að ekki kæmi til greina að fella
tollana niður nema þegnar ESB-
ríkja fengju að fjárfesta í ís-
lenskum sjávarútvegi.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins hefur kynnt hug-
myndir þess efnis að fjárframlög
EFTA-ríkjanna í þróunarsjóð
Sambandsins hækki verulega. Í
tilfelli Íslands myndi framlagið
hækka úr hundrað milljónum
króna í tvo til þrjá milljarða. Er
sú krafa rökstudd með því að
verið sé að byggja upp markaði
sem gagnist EFTA-ríkjunum jafn
vel og ESB-ríkjum, því sé eðli-
legt að EFTA-ríkin greiði hlut-
fallslega jafnmikið og ESB-ríkin.
Þessu hafa íslensk stjórnvöld
mótmælt harkalega og sent full-
trúa sína til að tala fyrir málstað
Íslands hjá ríkisstjórnum allra
aðildarríkja Evrópusambandsins.
Þar sem fríverslunarsamningar
við ríki Austur-Evrópu falla úr
gildi þegar þau verða aðilar að
Evrópusambandinu hafa íslensk
stjórnvöld krafist niðurfellingar
tolla samhliða stækkun Sam-
bandsins. Framkvæmdastjórn
ESB svarað því svo að það komi
ekki til greina, Íslendingar geti
ekki hvort tveggja fengið toll-
frjálsan aðgang að evrópskum
mörkuðum og haldið uppi banni
við því að útlendingar fjárfesti í
íslenskum sjávarútvegi.
Þetta er tenging sem íslensk
stjórnvöld sætta sig ekki við. Þar
er litið svo á að semja megi um
aukin framlög gegn því að fá
tolla fellda niður. „Fram-
kvæmdastjórnin vill loka þeim
dyrum með því að segja að þeir
geti ekki hreyft sig þar nema
með því að taka upp fjárfesting-
ar,“ segir Gunnar Snorri Gunn-
arsson, ráðuneytisstjóri í utan-
ríkisráðuneytinu. Þær hugmynd-
ir sem framkvæmdastjórn ESB
hefur kynnt eru enn aðeins á til-
lögustigi. Áður en viðræður eru
hafnar við EFTA-ríkin þarf ráð-
herraráðið að ákveða kröfurnar.
Það verður væntanlega gert í
byrjun desember. Viðræður
gætu hafist í framhaldi af því,
líklega í janúar.
Það eru þó ekki allir andvígir
banni við fjárfestingum útlend-
inga í sjávarútvegi. „Það er í
raun bara ein ástæða fyrir því að
menn hafa litið öðruvísi á fjár-
festingar í sjávarútvegi en í öðr-
um atvinnugreinum. Það er eign-
arhaldið á kvótanum,“ segir Jó-
hann Ársælsson, þingmaður
Samfylkingar. Hann segir að
menn líti svo á að ekki sé hægt að
selja útlendingum auðlindina. Án
kvótakerfisins mælti ekkert
gegn því að opna fyrir erlendar
fjárfestingar í sjávarútvegi.
brynjolfur@frettabladid.is
Vilja fjárfestingar gegn
niðurfellingu tolla
Ísland vill fá fellda niður tolla af sjávarafurðum samhliða stækkun ESB til austurs.
Framkvæmdastjórn ESB segir það ómögulegt nema bann við fjárfestingum útlendinga
í sjávarútvegi verði afnumið.
HÁSKÓLIN Nokkur kurr er meðal
læknanema vegna úrtökuprófs
sem haldið var á föstudag. Meðal
spurninga þar sem prófað var í al-
mennri þekkingu var spurt um
hvernig Barbapabbi væri á litinn
og hvert væri fornafn Mulders,
annars tveggja aðalleikara í sjón-
varpsþættinum X-Files. Mörgum
læknanemanum var brugðið við
þessara spurningar.
Kristján Erlendsson, kennslu-
stjóri læknadeildar Háskóla Ís-
lands, staðfesti að spurningin um
Barbapabba væri meðal þeirra
spurninga sem bornar voru upp í
þeim hluta sem sneri að almennri
þekkingu. Hann sagðist ekki hafa
orðið var við óánægju vegna
þessa. Hann segir að sá hluti
prófsins sem snýr að almennri
þekkingu hafi innihaldið 160
spurningar og nemendur hafi haft
30 sekúndur til að svara hverri og
einni. Því hafi spurningin um
Barbapabba ekki haft mikið vægi
í heildarprófinu.
„Ég reikna nú ekki með að Bar-
bapabbi einn geti fellt einhvern en
hann spilar inn í,“ segir Kristján.
166 nemar þreyttu prófið en 48
munu ná áfram. Í desember fer
fram síðasti hluti prófsins.
Af gefnu tilefni skal tekið fram
að Barbapabbi er bleikur og Fox
er fornafn Mulders. ■
Kurr í læknadeild Háskóla Íslands:
Barbapabbi fellir læknanema
Skrautleg
jól
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
53%
72%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Tæplega 26 ára gamall karl-maður hefur verið dæmdur í
18 mánaða fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot gegn þremur stúlkum.
Hann þarf að sitja inni í þrjá
mánuði. bls. 2
Garðar Sverrisson, formaðurÖryrkjabandalags Íslands,
segir stóran hluta hækkunar al-
mannatrygginga ekki skila sér
vegna lækkunar skattleysis-
marka. bls. 2
Formaður Húseigendafélagsinsgagnrýnir nýja nefnd Íbúða-
lánasjóðs sem fjalla á um bóta-
skyldu sjóðsins. Hann segir hana
hvorki sjálfstæða né óháða.
bls. 14