Fréttablaðið - 21.11.2002, Side 8
8 21. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
Til a› fá tákn e›a tón sendir›u SMS, dæmi:
tt logo 961BIO í síma 1848.
tt logo 4068TON
tt logo 1066BIO
tt logo 1244KYN
tt logo 2159GLE
tt logo 2765KRU
tákn skammval
PEOPLE ARE STRANGE
Doors/Jim Morrison
TIER
Rammstein
KISS KISS
Stella Soleil
SHINY HAPPY PEOPLE
R.E.M.
RABIES CANIS
XXX Rottweiler
tt ton 32ROK
tt ton 105POP
tt ton 31ROK
tt ton 104POP
tt ton 70ISL
tónn skammval
N‡justu
tónar og tákn
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
7
6
5
9
/ sia
.is
tt logo 958BIO
tt logo 1921TAK
tt logo 2799KRU
tt logo 330TEI DO YOU THINK I´M SEXY?Rod Stewart
OBJECTION (TANGO)
Shakira
RAMP (LOGICAL SONG)
Scooter
GLORY GLORY MAN UTD.
Stretford End Boys
SÍSÍ (FRÍKAR ÚT)
Gr‡lurnar
tt ton 30ROK
tt ton 101POP
tt ton 100POP
tt ton 17KLA
tt ton 43ISL
Ná›u flér strax í öll heitustu táknin og svölustu tónana fyrir GSM-símann
flinn. Í hverri viku bætast vi› n‡ tákn og n‡ir tónar.
fiessir tónar og tákn eru eingöngu fyrir Nokia-síma. Hver sending kostar 59 kr.
Kíktu á vit.is til a› sjá fleiri
tóna og tákn.tt logo 961BIO
SKIPULAGSBREYTINGAR Ársverkum
hjá Flugleiðum hf. fækkar úr
2.500 í fjögur til sex. Ástæðan er
sú að skipulagsbreytingar Flug-
leiða sem taka gildi um áramót
fela í sér að Flugleiðir verða eign-
arhaldsfélag yfir fyrirtæki í flug-
og ferðaþjónustu. Deildum og
sviðum fyrirtækisins verður
breytt í sjálfstæð fyrirtæki. Eftir
breytinguna verða Flugleiðir hf.
eignarhaldsfélag sem stýrir starf-
semi 11 sjálfstæðra fyrirtækja.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir skipulags-
breytingarnar lokapunkt á þróun
síðustu ára. Markmiðið sé að gera
einingarnar sjálfstæðari og
ábyrgari í rekstri sínum. Hver
eining fyrir sig sé nokkuð stórt
fyrirtæki og muni skila eigin af-
komu. Fyrir vikið verði rekstur
einstakra þátta gagnsærri.
Guðjón segir ánægjulegt að
ráðast í slíkar breytingar nú þeg-
ar rekstur fyrirtækisins gengur
jafn vel og raun ber vitni. Afkoma
félagsins fyrstu níu mánuði ársins
var mjög góð. Hagnaður tímabils-
ins er 3,3 milljarðar króna. ■
Skipulagsbreytingar Flugleiða:
4-6 starfsmenn hjá Flugleiðum
ENDURSKIPULAGNING
Flugleiðir hafa skipt rekstri sínum upp í 11
sjálfstæð fyrirtæki. Við það verður ábyrgð
hvers fyrirtækis um sig skýrari.
VILNÍUS, MOSKVU, AP Fyrir aðeins fá-
einum árum hefði það verið ein
versta martröð Rússa að Eystra-
saltslöndin þrjú og önnur fyrrver-
andi Austantjaldsríki fengju aðild
að Atlantshafsbandalaginu. Í dag
hefst í Prag í Austurríki leiðtoga-
fundur Nató, þar sem búist er við
að sjö af þessum ríkjum verði boð-
in aðild. Viðbrögð rússneskra
stjórnvalda hafa verið frekar
afslöppuð, sem bendir til þess að
Rússland hafi náð miklu betri
tengslum við Nató en áður var
talið mögulegt.
Rússnesk stjórnvöld eru að vísu
enn andvíg því að Eistland, Lett-
land, Litháen, Búlgaría, Rúmenía,
Slóvakía og Slóvenía gangi í Nató,
eins og raunin virðist ætla að
verða. Nú talar Rússar hins vegar
frekar um að þessi stækkun skaði
Nató en að hún ógni öryggi Rúss-
lands.
„Því meir sem Nató stækkar,
því ónothæfara verður bandalag-
ið,“ sagði Vladimir Lukin, aðstoð-
arforseti neðri deildar rússneska
þingsins. Hann var sendiherra
Rússlands í Bandaríkjunum
snemma á síðasta áratug.
Svo virðist sem afstaða austan-
tjaldsríkjanna fyrrverandi sem
vilja komast í Nató hafi einnig tek-
ið breytingum á síðustu misserum.
Valdas Adamkus, forseti Lithá-
ens, hafnar til að mynda algjörlega
þeirri túlkun að það sé fyrst og
fremst ótti við Rússland sem geri
það að verkum að Litháen vilji fá
aðild að Atlantshafsbandalaginu.
„Þeir tímar eru liðnir,“ segir hann.
Adamkus, sem bjó hálfa öld í út-
legð í Bandaríkjunum, segir að Lit-
háar vilji fá aðild fyrst og fremst
til þess að „vera í sama liði“ og
Bandaríkin, sem hann segist líta á
sem „leiðtoga hins frjálsa heims.“
Eitt af því sem hvað helst hefur
orðið til þess að draga úr gagnrýni
Rússa á Nató er að þeir líta á sig
sem bandamenn Bandaríkjanna og
Natóríkjanna í baráttunni gegn
hryðjuverkamönnum.
Sú barátta er einmitt það sem
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, leggur hvað mesta áher-
slu á í viðræðum sínum við ráða-
menn hinna Natóríkjanna í Prag.
Búist er við því að Nató sam-
þykki á fundinum í Prag að auka
verulega framlag sitt til barátt-
unnar gegn hryðjuverkastarfsemi.
Rússar gerðu einnig samning
við Nató í maí síðastliðnum um
sameiginlega ákvarðanatöku í
þeirri baráttu og fleiri málum.
Rússar telja þennan samning
mikla framför frá fyrri samstarfs-
samningi þeirra við Nató árið 1997.
„Ólíkt því sem áður var, þegar
Nató gerði ekki annað en að kynna
fyrir okkur sameiginlega afstöðu
sína, þá erum við nú að taka
ákvarðanir í sameiningu,“ sagði
Kuznetsov. „Og með því að starfa
saman höfum við fengið betri
skilning á hvor öðrum.“ ■
Rússar farnir að
sætta sig við Nató
Andstaða Rússa við stækkun Nató til austurs hefur snarminnkað.
Samstarf og sameiginleg ákvarðanataka hafa dregið úr gagnkvæmri
tortryggni.
MIKIL ÖRYGGISGÆSLA
Tékkneska lögreglan ætlar að vera við öllu búin. Leiðtogar Natóríkjanna 19 eru komnir til
Prag, höfuðborgar Tékklands, þar sem þeir ætla meðal annars að taka ákvarðanir um
stækkun bandalagsins.
AP
/P
ET
ER
D
EJ
O
N
G
John Lee Malvo:
Ekki sendur í
geðrannsókn
FAIRFAX, VIRGINÍU, AP Dómari í Virg-
iníu í Bandaríkjunum hefur neit-
að beiðni lögfræðinga um að
John Lee Malvo, 17 ára gamall
drengur sem grunaður er um að-
ild að leyniskyttumorðunum í
landinu, verði látinn gangast
undir geðrannsókn. Það var verj-
andi Malvo sem óskaði eftir
rannsókninni til að komast betur
inn í hugarheim Malvo. Vill hann
komast að því hvort pilturinn
eigi að bera við geðveiki fyrir
dómstólum.
Dómarinn í málinu sagði
beiðnina um geðrannsókn vera
ótímabæra. Slík rannsókn mætti
fara fram þegar málið fer fyrir
dómstóla. Malvo og John Allen
Muhammad eiga báðir yfir höfði
sér dauðadóm verði þeir fundnir
sekir. ■
TVEIR Á SLYSADEILD Tveir voru
fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri eftir árekstur á Þór-
unnarstræti á Akureyri á ní-
unda tímanum í gærmorgun.
Ökumaður annars bílsins og
farþegi í hinum slösuðust. Var
farþeginn ekki í öryggisbelti.
Meiðsl þeirra eru ekki talin al-
varleg. Fjarlægja þurfti bílana
með kranabíl.
FÍKNIEFNI Í BÍL Tveir menn
voru handteknir í miðborg
Reykjavíkur í fyrrinótt eftir að
fíkniefni fundust í bíl þeirra.
Annar fékk að fara eftir
skýrslutöku en hinum var hald-
ið eftir. Gisti hann fanga-
geymslur og var yfirheyrður í
gærdag. Maðurinn hefur áður
komið við sögu fíkniefnamála.
Þá voru tveir aðrir handteknir í
fyrrinótt. Voru þeir staðnir að
verki við innbrot í bíl í Ármúl-
anum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ORÐRÉTT
SÖGULAUS ANDLIT
Hrukkulaust andlit verður hvorki
dýrkeypt né auðkeypt, bara
keypt.
Guðmundur Andri Thorsson um
hrukkuaðgerðir. DV, 20. nóvember.
SVINDLIÐ TALIÐ Í ANNAÐ
SINN
Við fórum yfir öll gögn og alla
pappíra og ekkert óeðlilegt kom
fram.
Jóhann Kjartansson, formaður kjör-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins í Norðvestur-
kjördæmi. Morgunblaðið, 20. nóvember.
HEIL 24%
Maður með slíkt bak-
land þarf ekki á því að
halda að beita brögð-
um.
Árni M. Emilsson um Sturlu Böðvars-
son. Morgunblaðið, 20. nóvember.
Sérsveitir frá Afganistan:
150 heim
CANBERRA, ÁSTRALÍU, AP Ástralar
ætla að senda 150 manna sérsveit-
arlið sitt heim frá Afganistan eftir
árs veru í landinu. Að sögn John
Howard, forsætisráðherra Ástral-
íu, munu flestir mannanna fara
heim fyrir jól. Sagði hann að þörf-
in fyrir sérsveitarlið í Afganistan
hafi minnkað eftir að ákveðið var
að leggja áherslu á endurbygg-
ingu í landinu í stað hernaðarað-
gerða.
Að sögn Howard mun Ástralía
halda áfram að leggja sitt af mörk-
um til stríðsins gegn hryðjuverk-
um. Sagði hann að í janúar á næsta
ári verði tvær eftirlitsflugvélar og
tvö herskip á Persaflóa til að
framfylgja viðskiptabanni Sam-
einuðu þjóðanna á Írak. ■