Fréttablaðið - 21.11.2002, Síða 12
12 21. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
Framsóknarmenn í Reykjavík suður:
Deilt um
annað sætið
STJÓRNMÁL Framsóknarmenn í
Reykjavík eru ekki á eitt sáttir um
hver skuli skipa annað sæti á lista
flokksins í Reykjavík suður. Ljóst
er að Jónína Bjartmarz skipi efsta
sætið en óvissa ríkir um hver skuli
skipa annað sætið, sem margir
Framsóknarmenn vonast til að skili
flokknum þingsæti við næstu kosn-
ingar.
Nafn Guðjóns Ólafs Jónssonar,
formanns kjördæmisráðs, hefur ít-
rekað verið nefnt í tengslum við
annað sætið. Þó Guðjón segist sjálf-
ur enga ákvörðun hafa tekið velkj-
ast Framsóknarmenn sem blaðið
ræddi við ekki í vafa um að hann
sækist eftir sætinu.
Guðjón er umdeildur innan
flokksins og ljóst af samtölum við
fólk sem tekur virkan þátt í flokks-
starfinu að framganga hans sem
formaður kjördæmisráðs og á aðal-
fundi ungra framsóknarmanna í
kjördæminu hefur aflað honum
óvina sem mega ekki til þess hugsa
að hann skipi annað sætið. Einn
þeirra sem ekki vilja sjá hann þar
sagði menn leita logandi ljósi að
frambjóðanda til að bjóða fram í
stað Guðjóns.
Alls óvíst er þó í dag hver það
kynni að vera. Enn hafa fáir verið
nefndir við sætið. Þó hefur nafn
Þráins Bertelssonar borið á góma.
Eins er vitað að sumir gátu hugsað
sér Dagnýju Jónsdóttur, formann
Sambands ungra framsóknar-
manna, í því sæti en sjálf vill hún í
framboð í Norðausturkjördæmi. ■
HALLDÓR KYNNTUR TIL SÖGUNNAR
Þegar Halldór þekktist boð um að taka efsta sætið í Reykjavík norður þótti ljóst hvernig
þrjú af fjórum efstu sætunum myndu raðast. Spennan stendur um annað sætið sunnan-
megin í borginni.
Vonum að við
fáum viðbótarkvóta
Í Sandgerði hefur þorskkvótinn minnkað um 90 prósent á síðustu fimm
árum. Bæjarstjórinn segir vonir standa til að sjávarútvegráðherra
úthluti kvóta í byggðarlagið í næsta mánuði.
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Já, það er rétt,
allur kvóti hefur nær horfið úr
Sandgerði á undanförnum árum.
Það voru um það bil 11.000
þorskígildistonn í bæjarfélaginu
árið 1998 en eru nú 1.100 tonn,“
segir Sigurður Valur Ásbjörnsson,
bæjarstjóri í Sand-
gerði.
Hann segir það
sama hafa verið að
gerast í öðrum
bæjarfélögum á
Suðurnesjum. „Ég
hef oft sagt áður
að ég vildi ekki
reka þetta bæjar-
félag einhvers
staðar úti á lands-
byggðinni. Það
skiptir hins vegar miklu máli hér
að bæirnir hér í kring eru eitt og
sama atvinnusvæði og því hefur
minnkun kvótans ekki haft sömu
áhrif hér eins og ef því væri hátt-
að á annan veg.“
Sigurður Valur segir að þegar
Haraldur Böðvarsson og Co. hafi
á sínum tíma keypt útgerðarfélag-
ið Miðnes hafi verið talað um að
reksturinn yrði með svipuðum
hætti en það hafi farið á annan
veg. „Við erum nú að láta skoða
hvað hægt er að gera í því sam-
bandi.“
Sigurður segir að þrátt fyrir að
kvótinn hafi færst úr byggðarlag-
inu hafi komið önnur fyrirtæki
sem skapi mönnum vinnu og nefn-
ir hann í því sambandi fyrirtæki
eins og Nýfisk, sem vinni fisk af
fiskmörkuðum til útflutnings, en
þar starfa að minnsta kosti um 40
manns. „Við erum að vinna í því
að finna lausn á því að fá kvóta í
byggðarlagið en getum ekki
greint frá því að svo stöddu hvað
við erum að hugsa í því sambandi.
Það er hins vegar ekkert launung-
armál að sjávarútvegsráðherra
mun á næstunni úthluta kvóta
sem við gerum okkur vonir um.
Byggðarkvótinn sem Bolvíkingar
fengu á sínum tíma breytti miklu
fyrir þá. Á sama hátt vonumst við
til þess að kvóti til okkar, auk ann-
arra ráðstafana sem eru í farvatn-
inu, tryggi atvinnulífið á
staðnum.“ bergljot@frettabladid.is
„Það er ekk-
ert launungar-
mál að sjávar-
útvegsráð-
herra mun á
næstunni út-
hluta kvóta
sem við ger-
um okkur von-
ir um. “
SIGURÐUR VALUR ÁSBJÖRNSSON, BÆJARSTJÓRI Í SANDGERÐI
Fólki hefur ekki fækkað þrátt fyrir að kvótinn hafi að mestu horfið.
Ný stofnun á nýjan stað:
Umhverfis-
stofnun
valinn staður
FLUTNINGAR Ný Umhverfisstofn-
un, sem tekur til starfa um
næstu áramót, verður til húsa að
Suðurlandsbraut 24, þar sem
Íbúðalánasjóður var áður. Varð
húsnæðið fyrir valinu eftir að
ráðuneytismenn höfðu farið víða
í leit að hentugum stað fyrir
stofnunina, sem líklega verður
einhver sú umfangsmesta á veg-
um ríkisins í nánustu framtíð.
Meðal annarra bygginga sem
skoðaðar voru og þóttu koma til
greina var gamla DV-húsið við
Þverholt. Það stendur því enn
autt:
„Þetta er fínt hús og við stefn-
um að því að flytja inn um leið og
Umhverfisstofnunin tekur form-
lega til starfa um áramótin,“ seg-
ir Davíð Egilsson, forstjóri Um-
hverfisstofnunar og eini starfs-
maður henar enn sem komið er. ■
Ísafjörður - Bíldudalur:
Áætlunar
flug á vest-
fjörðum
SAMGÖNGUR Vestfirðingar kætast
nú yfir áætlunarflugi á milli Ísa-
fjarðar og Bíldudals sem hefst
um næstu mánaðamót. Flogið
verður á Cessna - flugvél frá Ísa-
firði klukkan tíu að morgni á
þriðjudögum og fimmtudögum
og aftur frá Hvassanesflugvelli
við Arnarfjörð þremur stundar-
fjórðungum síðar. Á föstudögum
verður svo flug frá Ísafirði
klukkan korter fyrir tólf og til-
baka frá Bíldudal laust fyrir
klukkan hálfeitt.
Það er Íslandsflug sem sér um
áætlunarflugið og verður flogið
svo lengi sem farþegar eða varn-
ingur er til staðar. ■
Pharmaco:
Endurbætur
á Möltu
LYFJAIÐNAÐUR Pharmaco hf. hefur
lokið fyrsta áfanga endurbóta á
lyfjaverksmiðju sinni á Möltu.
Eftir endurbæturnar uppfyllir
lyfjaverksmiðja Pharmaco ítr-
ustu kröfur Evrópusambandsins
og opnast þar með nýir markaðir
fyrir lyf fyrirtækisins í Evrópu.
Framleiðslugeta verksmiðjunnar
er um 2,5 milljarðar taflna á ári.
Einnig var opnuð ný rannsóknar-
aðstaða.
Fyrirtækið hefur sett sér
metnaðarfull markmið um vöxt
og telur nýju verksmiðjuna mik-
ilvægan áfanga í að tryggja
hann. ■
Rændu bensínstöð:
Héldu af-
greiðslukon-
unni fastri
ÞJÓFNAÐUR Tveir hettuklæddir
karlmenn rændu bensínafgreiðslu
Olís við Skúlagötu í Reykjavík um
hálftíuleytið á þriðjudagskvöld.
Mennirnir réðust að tvítugri af-
greiðslukonu sem var ein í versl-
uninni. Þeir héldu henni fastri
meðan þeir opnuðu peningakass-
ann og höfðu á brott með sér um
tólf þúsund krónur í peningum og
einn farsíma.
Mennirnir hlupu í burtu með
ránsfenginn og um leið tilkynnti
afgreiðslukonan atburðinn. Rann-
sóknardeild lögreglunnar kannar
nú málið. ■
Harðfisksmyglari:
Gripinn í
Færeyjum
SMYGL Íslenskur sjómaður var ný-
lega gripinn í Færeyjum með 60
kíló af harðfiski. Tildrög málsins
voru þau að sjómaðurinn, sem er í
millilandasiglingum milli Íslands
og Evrópu, hafði fallist á að taka
með sér harðfiskinn, sem er
vöruprufa, og afhenda í Færeyj-
um. Sá sem tók við harðfiskinum
var gripinn og hann benti á smygl-
arann. Maðurinn með harðfiskinn
var handtekinn með góssið en
sleppt eftir að hafa lagt fram 100
þúsund króna tryggingu. Ekki
hefur verið dæmt í máli íslenska
sjómannsins. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T