Fréttablaðið - 21.11.2002, Side 16

Fréttablaðið - 21.11.2002, Side 16
16 21. nóvember 2002 FIMMTUDAGURÍSHOKKÍ SVÍI Í VANDRÆÐUM Pavel Brendl, leikmaður Philadelphia Flyers, gaf ekkert eftir gegn Svíanum Jimmie Olvestad, leikmanni Tampa Bay, í leik liðanna í bandarísku NHL-deildinni í íshokkí. Svo virðist sem fólskubragð Brendl hafi virkað því leikurinn endaði með sigri Flyers, 3:2. FÓTBOLTI ÍÞRÓTTIR Í DAG 15.00 Sjónvarpið Landsleikur í fótbolta (Þýska- land-Holland endurs.) 16.45 Sjónvarpið Landsleikur í fótbolta (Eist- land-Ísland endurs.) 18.00 Sýn Sportið 18.30 Sýn Heimsfótbolti með Western Union 19.15 Keflavík Körfubolti kv.1.deild (Keflavík- Njarðvík) 19.15 Ásvellir Körfubolti kv. 1. deild (Haukar- KR) 20.00 Sjónvarpið Landsmót hestamanna (1:2) 22.30 Sýn Sportið 23.00 Sýn HM 2002 KÖRFUBOLTI Dallas Mavericks sigr- aði í ellefta leik sínum í röð þegar liðið bar sigurorð af meisturum Los Angeles Lakers í NBA-deild- inni í körfubolta með 98 stigum gegn 72. Dallas hefur aldrei unnið Lakers með jafn miklum mun. Þetta var jafnframt aðeins í fimmta sinn í 46 viðureignum frá árinu 1991 sem Dallas sigrar Lakers. Aðeins níu önnur lið í sögu deildarinnar hafa náð því að sigra í 11 fyrstu leikjum sínum í deild- inni. Þau lið sem síðast náðu því af- reki eru Atlanta Hawks og L.A. Lakers, tímabilið 1997-98. Houston Rockets (1993-94) og Was- hington Capitols (1948-49) eiga metið hvað varðar bestu byrjun í deildinni með 16 sigrum í röð. Steve Nash skoraði 21 stig fyr- ir Dallas í leiknum, þar af 17 í fyrri hálfleik. Dirk Nowitski og Michael Finley áttu einnig góðan leik. Nowitski setti 18 stig og tók 17 fráköst og Finley skoraði 18 stig og tók 15 fráköst. Þetta var sjötta tap meistara Lakers í síð- ustu sjö leikjum. Liðið hefur að- eins unnið þrjá af fyrstu 11 leikj- um sínum í deildinni. Liðið virðist sakna Shaquille O´Neal, miðherja liðsins, sárlega, en hann á við meiðsl að stríða. „Ég leit í kringum mig í bún- ingsklefanum og sá hvergi glam- pa í augunum á mönnum,“ sagði Kobe Bryant, leikmaður L.A. Lakers, eftir leikinn. „Menn eru hálfsofandi. Það vantar allan vilja og kraft.“ Mark Jackson, leikmaður Utah Jazz, er kominn í þriðja sæti yfir þá leikmenn sem gefið hafa flest- ar stoðsendingar í sögu deildar- innar. Jackson náði áfanganum í leik gegn Phoenix Suns á þriðju- dagskvöld. Fór hann fram úr goð- sögninni Oscar Robertson með því að gefa fjórar stoðsendingar í leiknum, sem endaði með sigri Jazz, 99:76. „Þetta er mikil blessun,“ sagði Jackson eftir leikinn. „Ég geri mér grein fyrir því hvað Oscar Robertson hefur gert fyrir leikinn og hvers konar leikmaður hann var. Þetta er mikill heiður.“ Jackson hefur nú gefið 9.890 stoðsendingar í NBA-deildinni. Félagi hans hjá Utah Jazz, John Stockton, er stoðsendingakóngur deildarinnar með 15.259 sending- ar. ■ Dallas nálgast NBA-metið Dallas Mavericks vann 11. sigur sinn í röð, gegn meisturum L.A. Lakers, í NBA-deildinni í körfubolta. Metið í flestum sigurleikjum í röð í upphafi leiktíðar er 16 leikir. Mark Jackson, leik- maður Utah Jazz, er kominn í þriðja sæti yfir stoðsendingakónga deildarinnar frá upphafi. NASH Steve Nash, leikmaður Dallas Mavericks, leikur framhjá Stanislav Medvedenko, leikmanni L.A. Lakers, í leik liðanna á þriðjudagskvöld. Nash skoraði 21 stig í leiknum. BOX Heimsmeistarinn í léttþunga- vigt, Roy Jones, hefur misst IBF- meistaratign sína eftir hafa neitað að slást við áskorendanum Anton- io Tarve. Þess í stað hefur Jones ákveðið að keppa við John Ruiz, sem er þungavigtarmeistari hjá WBA-sambandinu. Sá bardagi verður haldinn þann 1. mars á næsta ári í Las Vegas. Jones hafði frest fram á mánu- dag til að áfrýja dómi IBF en ákvað að gera það ekki. Talið er að Jones eigi erfiða viðureign fyrir höndum gegn Ruiz, sem er töluvert þyngri keppandi. ■ Roy Jones missti IBF-titilinn í hnefaleikum: Neitaði að slást við Tarve FÓTBOLTI Argentínska landsliðið í knattspyrnu sigraði Japan í vin- áttuleik í gær með tveimur mörkum gegn engu. Juan Pablo Sorin, leikmaður Lazio, skoraði fyrra mark leiksins eftir send- ingu frá Juan Sebastian Veron. Hernan Crespo bætti öðru marki við eftir sendingu frá Ariel Ortega. Japan hefur þar með tapað síðustu fjórum lands- leikjum sínum gegn Argent- ínu.Brasilía bar sigurorð af Suð- ur-Kóreu með þremur mörkum gegn tveimur. Ronaldinho skor- aði sigurmarkið úr vítaspyrnu á síðustu mínútum leiksins. Ron- aldo skoraði fyrstu tvö mörk Brasilíu í leiknum. ■ Vináttulandsleikur í fótbolta: Argentína vann Japan HERNAN CRESPO Crespo fagnar marki sínu gegn Japan. AP/M YN D Lothar Matthäus, fyrrverandileikmaður Bayern München og þýska landsliðins í knatt- spyrnu, hefur slitið öll tengsl við sitt gamla félag. Ástæðan er deila hans við stjórnanda félagsins, Uli Höness, um slaka frammistöðu Bayern í Meistaradeild Evrópu. „Bayern verður alltaf til staðar í hjarta mínu,“ sagði Matthäus, sem vann 7 deildarmeistaratitla með liðinu á sínum tíma. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.