Fréttablaðið - 21.11.2002, Síða 32

Fréttablaðið - 21.11.2002, Síða 32
Miðbærinn er dauður – lengi lifi... Þetta er afskaplega vinsæl klisja í Reykjavík samtímans. Að miðbærinn sé steindauður á daginn en lifni svo við í einhverjum sora á kvöldin. Ég verð að viðurkenna að ég kannast ekki alveg við þennan steindauða miðbæ. Ég á nokkuð oft leið um miðbæinn á daginn og er hreint ekkert einmana þar, finnst bara heilmargt fólk vera á ferli. Varla er það út af engu. Þetta fólk hlýtur að eiga erindi í einhverjar af þeim búðum – sem klisjan segir að séu örfáar – sem þar eru, nú eða á kaffihús. SÉRSTAKLEGA kannast ég ekki við að miðbærinn hafi verið svo mik- ið meira lifandi hér áður fyrr. Mér er í barnsminni þegar pollagrænir strætisvagnar óku niður Laugaveg- inn og um Austurstræti og man ekki eftir því að á þeim tíma hafi verið fleira fólk á ferli, að minnsta kosti ekki á Laugaveginum. MÉR er líka í barnsminni ferð okk- ar móður minnar, einhvern tíma um eða upp úr 1970, frá Hlemmi og alla leið niður í Gefjun-Iðunni Austur- stræti í leit að gúmmístígvélum á mig, barnið. Þau fengust bara hvergi, ekki í nokkurri einustu skó- verslun á þessari leið. Er þetta hin blómlega verslun í miðbænum sem fólk er að rifja upp? Og á þeim tíma var ekki í önnur hús að venda í leit að gúmmístígvélum. Nú er þó hægt að fara annað eftir því sem maður finnur ekki í miðbænum. Og allt í lagi með það. ÞAÐ vill nefnilega gleymast að þótt verslun hafi dreifst á seinni árum er hún talsvert meiri en áður var. Það vill líka gleymast að það er ekki svo langt síðan að hægt var að telja á fingrum annarrar handar þá staði sem hægt var að setjast inn til að fá sér kaffi í bænum og aðeins var hægt að fá gott kaffi á Mokka - hvergi annars staðar. ÞEIR eru margir sem reyna að tala niður miðbæinn. Ég held samt að það verði aldrei hægt. Það er alltaf til kjarni fólks sem helst vill sækja sér þann varning sem það þarf í miðbænum og jafnvel búa þar og starfa. Hann lengi lifi! G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • w w w . g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0 SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Steinunnar Stefánsdóttur F í t o n / S Í A F I 0 0 5 3 7 8 Fyrsta starfið www.bi.is Lífeyrisauki Búnaðarbankans Það borgar sig að byrja snemma að huga að lífeyrissparnaði ef þú vilt njóta þeirra tækifæra sem í boði eru þegar starfsævi þinni lýkur. Ef þú byrjar strax að spara þegar komið er á vinnumarkaðinn gætir þú átt rúmlega 22 milljónir* í viðbótarlífeyrissparnaði þegar þú hættir að vinna. Í Lífeyrisauka Búnaðarbankans bjóðast þér þægilegar og traustar leiðir sem gera þér kleift að búa þig undir fjárhagslegt öryggi í framtíðinni og hætta eða minnka við þig í starfi við 60 ára aldur. *m.v. að launþegi greiði 4% af 250.000 kr. mánaðarlaunum, ríki og launagreiðandi greiði 2,4% mótframlag og ávöxtun verði 6% á ári í 35 ár. Miðbærinn lengi lifi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.