Fréttablaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 8
22. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
ERLENT
ÚTTEKT
TRYGGINGAR Sjóvá-Almennar og
Tryggingamiðstöðin hafa ákveðið
að hækka iðgjöld brunatrygginga
umtalsvert um næstu áramót. Hjá
VÍS fengust þær upplýsingar að
verið væri að skoða málið. Hjá Sjó-
vá-Almennum hækka tryggingar
um 30-50% eftir stærð húsnæðis
en 30-40% hjá Tryggingamiðstöð-
inni. Ástæður fyrir hækkuninni
segja talsmenn tryggingafélag-
anna vera þeir stórbrunar sem
orðið hafa á undanförnum tveimur
árum, í Ísfélaginu í Vestmannaeyj-
um, Faxafeni og við Laugaveg, auk
umtalsverðar fjölgunar bruna á
húseignum í eigu einstaklinga.
Ekki síður hafi endurtryggingarfé-
lögin sem félögin skipta við átt í
erfiðleikum vegna bágrar stöðu á
fjármálamarkaði og í kjölfar 11.
september.
Gunnar Felixson, framkvæmda-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar,
segir eignatryggingar, þ.e. bruna-
og fjölskyldutryggingar, hafa verið
reknar með tapi síðastliðin þrjú ár.
Sveinn Segatta hjá Sjóvá-Al-
mennum segir afkomu bruna-
tryggingar hafa verið neikvæða
frá 1998. Tjónshlutfallið í ár sé
komið upp í 150% og fram undan
sé versti mánuður ársins. Hann
segir 80% fjölgun brunatjóna
hafi orðið milli áranna 1997 og
2001, eða úr 197 í 356 talsins.
Aukning sé stigvaxandi á hverju
ári, sem sé mikið áhyggjuefni.
Sveinn lagði mikla áherslu á gildi
forvarna til að koma í veg fyrir
bruna bæði í heimahúsum og hjá
fyrirtækjum. ■
SKOTÁRÁS Í TRINIDAD 17 ára gam-
all piltur særði öryggisvörð alvar-
lega í skóla í Trinidad. Eftir skot-
bardaga við lögregluna lést piltur-
inn. Að sögn skólayfirvalda hafði
pilturinn sótt um inngöngu í skól-
ann fyrir ári síðan en var hafnað.
TRÚBOÐI MYRTUR Bandarískur
trúboði var skotinn til bana í suð-
urhluta Líbanon. Atkvikið átti sér
stað á heilsugæslustöð þar sem
maðurinn hafði starfað undanfarin
þrjú ár. Ekki er vitað um ástæð-
una fyrir verknaðinum.
TRÚBOÐI MYRTUR Bandarískur
trúboði var myrtur í suðurhluta
Líbanons í gærmorgun. Morðing-
inn flúði af vettvangi.
HEIÐARLEIKINN BORGAR SIG
Pétur Blöndal alþingismaður lauk
fræðslufundaröð sinni í tilefni prófkjörs
með því að ræða heiðarleika. Hann
borgar sig.
Pétur Blöndal
alþingismaður:
Óheiðar-
leikinn
kostar
STJÓRNMÁL Heiðarleiki er auðlind.
Þetta er eitt af því sem kom fram
á fræðslufundi Péturs Blöndal al-
þingismanns í gær. Hann hefur
farið nokkuð óvenjulega leið í
kynningu á sér og málefnum sín-
um fyrir prófkjör sjálfstæðis-
manna um helgina.
Fundurinn í gær var sá síðasti í
röð funda þar sem Pétur hefur
rætt ýmis málefni samfélagsins.
Pétur sagði kostnaðinn við
óheiðarleika mikinn. Samningar
yrðu dýrari auk þess sem óheiðar-
leiki kallaði á dýr eftirlits- og ör-
yggiskerfi. Hann tók dæmi af
Rússlandi, landi sem er ríkt af
auðlindum og býr yfir menntuðu
vinnuafli. Ástæða þess að landið
væri samt sem áður illa statt væri
sú að fólk þar í landi treysti ekki
hvert öðru. ■
HERMENNIRNIR ÓHLÝÐNUÐUST
Pat McLellan, fyrrverandi her-
foringi í breska hernum, segir að
hermenn sínir hafi óhlýðnast sér
þegar þeir fóru lengra inn í
hverfi kaþólskra í Londonderry
30. janúar árið 1972 en hann ætl-
aðist til. Til átaka kom og fórust
þar 13 kaþólikkar.
VANNÆRING MINNKAR Dregið
hefur úr vannæringu barna í Írak
frá því hún náði hámarki árið
1996. Dánartíðni barna yngri en
fimm ára hefur að sama skapi
lækkað.
VIÐSKIPTI Baugur hefur lokið end-
urfjármögnun lána fyrirtækis-
ins. Stjórnendur félagsins telja
að sparnaður vegna endurskipu-
lagningarinnar muni skila félag-
inu sparnaði upp á 300 milljónir á
ári.
Á hluthafafundi var einnig
samþykkt auka arðgreiðsla sem
nemur 15% af nafnvirði bréfa.
Arðgreiðsla ársins verður því
27% af nafnvirði.
Breska dagblaðið The Guardi-
an greinir frá því að Baugur hafi
gert tilraun til að eignast 10%
hlut í verslunarkeðjunni Allders.
Baugur bauð samkvæmt frásögn
blaðsins 127 pens fyrir hlutinn.
Enginn var hins vegar tilbúinn til
að selja. Verslanakeðjan Allders
hefur átt í nokkrum erfiðleikum
að undanförnu og reksturinn
ekki gengið sem skyldi. Baugur á
fyrir hluti í The Big Food Group
og House of Fraser. Sérfræðing-
ar á breskum markaði telja til-
gang Baugs þann að fá Allders og
House of Fraser að samninga-
borði um sameiningu. Fyrri til-
raunir til slíks fóru út um þúfur.
Á hluthafafundi tók Hreinn
Loftsson við stjórnarformennsku
á ný eftir nokkurt hlé og Jón Ás-
geir Jóhannesson settist aftur í
stól forstjóra félagsins. ■
Endurskipulagning lána og kauptilraun:
Baugur leitar kaupa í Bretlandi
300 MILLJÓNA SPARNAÐUR
Ný lánasamsetning sparar Baugi umtalsvert fé. Yfirlýst stefna þess er að fjárfesta í erlend-
um smásölufyrirtækjum. Ein slík tilraun var gerð fyrir helgi.
VÆNDI Heimildir Fréttablaðsins
segja að vegna mikils framboðs á
kynlífstengdri þjónustu sé nú
skollið á verðstríð. Kona sem kall-
ar sig „Dömuna“
og býr í Hafnar-
firði reið á vaðið
og lækkaði verðið
mikið og aðrar
vændiskonur hafa
fylgt í kjölfarið.
Daman býður nú
skyndikynni sem
vara í 40 mínútur
fyrir 15 þúsund
krónur. „Þetta er
komið út í algjörar öfgar og er
niðurlægjandi,“ sagði vændiskona
í samtali við Fréttablaðið.
Aldrei fyrr hefur vændis-
markaðurinn verið eins fjöl-
breyttur sem nú en í stað þess að
konur selji sig á veitingastöðum
eða götunni er mestur hluti við-
skiptanna rafrænn. Netvæðingu
vændisins má sjá á því að finna
má þrjár heimasíður þar sem
verð og valkostir eru reifaðir út í
hörgul. Mest af viðskiptunum fer
fram í gegnum einkamal.is og
viðskiptavinir eru boðaðir í
heimahús. Sem dæmi um ásókn-
ina á einstakar síður þá var sett
upp ný heimasíða vændiskonunn-
ar í Hafnarfirði þann 19. nóvem-
ber. Heimsóknir á síðu Dömunn-
ar voru orðnar 971 í gær, tveimur
dögum síðar. Þessi vændiskona
hefur valdið uppnámi meðal ann-
ara kvenna í greininni með verð-
lækkun á þjónustu sinni og því að
auglýsa fjölbreytt tilboð sem eru
langt neðan við það sem aðrar
vændiskonur bjóða.
Hefðbundið verð á skyndikynn-
um var fyrir skömmu 35 þúsund
krónur og hafði staðið í stað í rúm
15 ár. Aðrar vændiskonur hafa
fylgt í kjölfar „Dömunnar“ í Hafn-
arfirði og einnig lækkað verðið og
bjóða nú upp á hálftíma þjónustu
fyrir 20 þúsund krónur en klukku-
tíminn kostar 35 þúsund. Hafnar-
fjarðardaman býður nú upp á dek-
urkvöld þar sem rauðvín og ostar
eru á boðstólum. Þrjár klukku-
stundir af slíku dekri kosta 40 þús-
und krónur og nóg er að gera. Vilji
viðskiptavinir framlengja tímann
kostar aukahálftími 5 þúsund
krónur.
Talið er að allt að 70 einstak-
lingar selji blíðu sína eða aðra
kynlífstengda þjónustu á höfuð-
borgarsvæðinu. Þar kennir
margra grasa. Boðið er upp á
ýmis afbrigði af erótísku nuddi
og þeir sem vilja hörku í stað
blíðu geta valið um nokkrar kon-
ur sem hýða kúnnana og niður-
lægja. Í miðborg Reykjavíkur er
rekin kynlífsmiðstöð þar sem í
öðrum enda hússins er pynting-
arherbergi en í hinum endanum
er dekurherbergi þar sem fram
fer erótískt nudd.
Á morgun ræðir Fréttablaðið
við konu sem stundað hefur
vændi í næstum 20 ár.
rt@frettabladid.is
ERLENT
Verðstríð á
vændismarkaði
Netið er nær alfarið notað til að selja hörku og blíðu. Tugir kvenna selja
sig í heimahúsum. Vændið er næstum alveg horfið af götunni.
MANNLÍF
Ekki er allt sem sýnist. Vændi er stundað og verðstríð er á markaðnum.
Hefðbundið
verð á
skyndikynn-
um var fyrir
skömmu 35
þúsund krón-
ur og hafði
staðið í stað í
rúm 15 ár.
Iðgjöld brunatrygginga hækka um áramótin:
Fjölgun brunatjóna
stór hluti ástæðunnar
Vilja Sundabrú
sem fyrst:
Þingmenn
út úr
skápnum
SAMGÖNGUR „Einn maður sagði við
mig í dag að þetta væri í fyrsta
skipti sem hann hefði orðið var
við að Reykvíkingar ættu þing-
menn. Loksins koma þingmenn út
úr skápnum,“ segir
Ólafur Örn Har-
aldsson, formaður
fjárlaganefndar,
um viðbrögð við
því að hann og
Guðmundur Hall-
varðsson, formað-
ur samgöngu-
nefndar, mælast til
þess að drifið verði
í að ráðast í bygg-
ingu Sundabrautar
úr Grafarvogi yfir
í Vogahverfi.
„Ég tel ljóst að það þurfi að
fara svokallaða innri leið,“ segir
Ólafur. Hún er að minnsta kosti
þremur milljörðum ódýrari en
hin. Þá er það upphæð sem er við-
ráðanleg á næstu fjórum, fimm
árum. Sú leið er fljótgerðari og
hún er arðsamari.“ Eins sé mikil
hætta á að mjög hvasst verði á há-
brú sem liggi utar. ■
ÓLAFUR ÖRN
HARALDSSON
Vill að ráðist
verði í byggingu
Sundabrautar.
8ORÐRÉTT
HVERNIG Á
LITINN?
„Hann er með
millisítt, brúnt
hár, lætur sér oft
vaxa skegg og
gengur stundum
með gleraugu.“
Lýsing á nýjum kærasta
Lindu Pé í Séð & Heyrt.
VÍST ER KRISTJÁN BESTUR...
„Það er sérkennileg árátta hjá
mörgum Íslendingum að halda
því fram að bestu söngvararnir
séu tenórar.“
Úr fjölmiðlapistli í DV.
ÁRÁS Á ÚTLENDING
„Það er alla vega auðveldara að
ráðast á næsta Ungverja og byrja
að spjalla við hann heldur en
næsta Íslending.“
Daði Jónsson í Stúdentablaðinu.