Fréttablaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 20
Rapp- og leikkonan Queen Latifahvar nýlega handtekin í Los Ang- eles, grunuð um ölvunarakstur. Lög- reglan í Hollywood tók eftir því að söngkonan skipti kæruleysislega um akrein og heimtaði í framhaldi af því að hún blési í blöðru. Þá kom í ljós að Latifah var undir áhrifum og hún var handtekin og ákærð. Henni var sleppt að því loknu. Latifah, öðru nafni Dana Owens, þykir einn besti kvenrappari Austurstrandarinnar. Kylie Minogue verður væntanlegaí sviði í West End í London á fimmtudaginn, en það var sjálfur Karl Bretaprins sem óskaði eftir að hún tæki þátt í upp- færslu á leikritinu The Play What I Wrote, sem er uppá- haldsleikritið hans. Minogue var efst á óskalista prinsins, en aðstandendur sýningarinnar báðu prinsinn að velja gestaleikara kvöldsins. Nýr leikari kemur fram í sýningunni daglega, en sýningin á fimmtudag er liður í fjár- öflun á vegum góðgerðarfélags sem kennt er við Karl prins. Hann verður sjálfur viðstaddur sýninguna. David Pugh, stjórnandi leikhússins, vildi ekki staðfesta val prinsins en sagðist alsæll. „Við erum lukkulegir, lukku- legir, lukkulegir. Þetta er stærsta stjarna sem við höfum fengið til liðs við okkur – en jafnframt sú minnsta.“ Liza Minelli hefur tekið upphanskann fyrir Micael Jackson, sem olli aðdáendum sínum skelfingu þegar hann sveifl- aði ungum syni sín- um yfir svölum í Berlín. Liza, sem er mikill vinur Jacksons, sagði þetta ekkert líkt söngvaranum. „Það er orðið „sveifla“ sem ég hnýt um. Ég sá ekki að hann stefndi barninu í hættu með því að „sveifla“ því. Það sem ég sá var stjarna sem vildi leyfa aðdáendum sínum og heims- pressunni að segja halló við barnið.“ 20 22. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR MR. DEEDS kl. 4 ONE HOUR PHOTO kl. 8 og 10 ROAD TO PERD... kl. 5 og 10 ROAD TO PERD... kl. 5 og 10.30 Sýnd kl. 4, 6, 8.30 og 10.30 Sýnd kl. 4 og 10.30 kl. 10.10Í SKÓM DREKANS BLOOD WORK kl. 8 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 11.15 POWERSÝNING Sýnd kl. 6 THE TUXEDO kl. 6, 8 og 10.10 VIT474 UNDERCOVER BROTHER kl. 4 VIT 448 LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 4 VIT429 Sýnd kl. 6, 8 og 10 VIT 479Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 VIT 468 Sýnd kl. 4 og 8 VIT 469kl. 5.45 og 8HAFIÐ kl. 10.15DAS EXPERIMEN TÓNLIST „Að hlusta á Rottweiler er góð skemmtun,“ heyrist Gylfi Páls- son segja með alþekktri röddu sinni á upphafi nýja Rottweilerdisksins. Hann þekkja landsmenn úr viðvör- unum kvikmyndaeftirlitsins á undan þeim myndum sem leigðar eru á myndbandaleigum. Erpur Eyvindarson segir að hugmyndin um að fá hann hafi komið upp vegna þess hversu margir hneyksluðust á textainni- haldi síðustu plötu. „Fólk var að segja að textarnir væru ekki fyr- ir börn af því að þeir væru of grófir,“ segir hann. „Við ætluð- um ekkert endilega að gera þetta fyrir börn. Við settum meira að segja miða framan á, „Foreldrar athugið, óheflað málfar“, til þess að vara foreldra við. Samt þurfti Jónína Bjartmarz að tala opin- berlega um það hvað við værum grófir. Svo var einhver prestur FRÉTTIR AF FÓLKI Komið að síðasta gjalddaga Á þessum tíma í fyrra voru Rottweilerhundarnir vinsælasta hljómsveit landsins. Í dag kemur út önnur plata þeirra, „Þú skuldar“, þar sem hundarnir urra meðal annars á þá sem vildu þagga niður í þeim eftir síðustu plötu. KVIKMYNDIR Þegar ég las aðra Harry Potter-bókina á sínum tíma átti ég erfitt með að komast í gegnum hana vegna áhugaleysis. Hún er án efa slakasta bókin í seríunni og sú eina sem ekki fer í saumanna á for- tíð foreldra Potters eða atburðum tengdum Voldemort. Aldrei var hún spennandi og eina skemmtana- gildið fólst í persónum bókanna, þá aðallega nýja kennaranum, Lock- hart, sem er skemmtilega óþolandi. Með þetta í huga sá ég myndina og hún kemur mjög á óvart. Allur hasarinn sem skilaði sér ekki nægi- lega vel í bókinni skilar sér 102% í myndinni. Leikstjórinn Chris Col- umbus tekur á sögunni á hárréttan hátt og gerir úr eina langa ævin- týralega rússibanareið. Það er ekki að finna dauðan punkt í myndinni, það auðveldaði leikstjóranum líka fyrir að í þetta skipti þarf ekki að eyða tíma í útskýringar á atburðum eins og leikreglur Quidditch. Kenneth Branagh er frábær í hlutverki Lockhart, Jason Isaacs er fullkominn sem Lucious Malfoy og leikarinn ungi Rupert Grint, sem leikur Ron, er rísandi stjarna. Ekki datt mér í hug að ég myndi skrifa þetta en... önnur Harry Pott- er myndin er þónokkuð betri en sú fyrsta. Ég get þó ekki mælt með því að börn undir 6 ára sjái mynd- ina nema um veruleg hörkutól sé að ræða. Birgir Örn Steinarsson Betri Potter HARRY POTTER AND THE CHAMBER OF SECRETS TÓNLIST Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Gallagher-bræður spjalli ekki saman þessa dagana. Hljómsveit þeirra, Oasis, er á tónleikaferðalagi um heiminn og hættu þeir bræður að tala saman fyr- ir sex vikum síðan eftir að Liam rauk af sviðinu í upphafi tónleika í Japan. „Hann hafði verið að væla yfir hljóðinu í sviðs- hátölurunum alla ferðina,“ sagði Noel Gallagher í við- tali við NME. „Svo þegar við vorum búnir með fjórða lagið á tónleikun- um í Japan spurði ég hann hvort hann ætlaði að halda kjafti það sem eftir væri ársins, eða hvort hann ætl- aði að halda áfram að væla. Hann horfði undarlega til mín, henti hrist- unni á gólfið eins og kelling og labb- aði af sviðinu.“ Noel varð því að syngja það sem eftir var af tónleikunum. Eftir það hafa bræð- urnir ekki yrt hvor á annan, þrátt fyrir að leika fyrir framan þús- undir manna á hverju kvöldi. „Ef hann geng- ur inn í sama herbergi og ég er í þá labba ég út. Ég hef samúð með honum ef hann er aum- ur í hálsinum. En það fer í taugarnar á mér ef hann ætlar að leika prímadonnu bara af því að stóri bróðir hans skipar honum að hætta að væla. Allir tónleikagestirnir sem sjá að söngvarinn er ekki að skemmta sér hljóta að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að skemmta sér eða ekki.“ ■ OASIS Gallagherbræðurnir Liam og Noel virðast aldrei ætla að geta tekið hvor annan í sátt. Gallagher-bræður ósáttir: Ræðast ekki viðNóvember – Desember Jólahlaðborð frá 29. nóvember Skötuveisla 23. desember Velkominn í jólahlaðborðið okkar Einar Geirsson Yfirmatreiðslumaður Opnunartími Hádegi mán. – föst. 12.00 – 14.00 Kvöld alla daga frá 18.00 tveir fiskar ( við Reykjavíkurhöfn ) Geirsgata 9 • 101 reykjavik sími 511 - 3474 netfang restaurant@restaurant.is heimasíða www.restaurant.is Síðumúla 3-5 N á t t f a t n a ð u r www.gunnimagg . i s Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.