Fréttablaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.11.2002, Blaðsíða 10
10 22. nóvember 2002 FÖSTUDAGURSVONA ERUM VIÐ FARÞEGAFJÖLDINN TVÖFALDAST Fjöldi þeirra sem hafa farið með Herjólfi milli lands og Vestmannaeyja hefur rúm- lega tvöfaldast á einum áratug að því er fram kemur í svari samgönguráðherra við fyrirspurn Kjartans Ólafssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks af Suðurlandi. Flugfar- þegum hefur hins vegar fækkað um fimmtung frá því mest var 1998 og 1999, þeir voru innan við 80.000 í fyrra. DANMÖRK Einungis fimmti hver jafnaðarmaður í Danmörku hef- ur trú á því að Mogens Lykketoft geti aflað flokknum nægilegs fylgis til þess að komast í stjórn eftir næstu kosningar. Þetta kemur fram í skoðana- könnun sem sagt var frá í danska dagblaðinu Jyllandsposten í gær. Lykketoft sækist eftir því að verða formaður flokksins nú þeg- ar Poul Nyrup Rasmussen hefur sagt af sér. Nýr formaður verður valinn á aukalandsfundi flokks- ins 14. desember. Lykketoft er einn reyndasti stjórnmálamaður Danmerkur. Hann þykir slyngur í að koma sínum málum fram, þótt hann eigi kannski ekki auðvelt með að ná til almennings. Sjálfur viður- kenndi hann í útvarpsviðtali á þriðjudag að hann þurfi að forð- ast það þunglamalega stofnana- mál, sem hann hefur tamið sér að tala. Hann segist þess fullviss að sér takist leysa úr þeim vanda. Lykketoft hefur, þrátt fyrir vantrú almennra flokksmanna, mikinn stuðning meðal flestra þingmanna flokksins til þess að taka við leiðtogaembættinu. Nán- ast öruggt þykir að hann verði fyrir valinu, enda virðast aðrir þingmenn flokksins ófáanlegir til að taka þetta embætti að sér. ■ FARÞEGAFJÖLDI SÍÐUSTU ÁRA Ár Farþegafjöldi 1992 48.555 1993 52.006 1994 60.562 1995 65.227 1996 70.105 1997 80.361 1998 78.817 1999 78.518 2000 88.582 2001 102.325 HEILSA Bláa lónið hefur brugðið á það ráð að bjóða gestum sínum nudd ofan í lóninu sjálfu. Geta gestir valið á milli þess að láta nudda sig í kafi eða þá fljótandi á sérútbúnum dýnum: „Þá fljóta þeir ofan á vatninu og nuddarinn stendur hjá,“ segir Magnea Guð- mundsdóttir, markaðsstjóri Bláa lónsins. „Við bjóðum upp á 10 mínútna axlanudd og 50 mínútna heil- nudd,“ segir hún. Axlanuddið kostar 1.200 krónur en heilnudd- ið 5.500 krónur. Fjórir nuddarar hafa verið ráðnir til Bláa lónsins til að sinna verkinu og er nóg að gera þó aðsókn hafi eilítið dregist saman: „Við fundum fyrir 11. septem- ber á fyrra hluta ársins en nú er þetta allt að koma,“ segir Magnea, en í fyrra voru gestir Bláa lónsins 315 þúsund talsins. Útlendingar voru í miklum meirihluta en ís- lenskir gestir um 100 þúsund tals- ins. Nú vinna verkfræðingar að því að hanna hugmyndir að nýjum gufuböðum við lónið en stefnt er að því að hafa þau nýstárleg og án hliðstæðu hér á landi. Sú vinna er þó enn á frumstigi. ■ NUDD Í LÓNI Fimm mínútur kosta 1.200 krónur. PRÓFKJÖR Minni spenna er í kring- um prófkjör Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík en oft áður. Ljóst er hverjir skipa tvö efstu sætin og telja ýmsir líklegt að það verði til þess að draga úr kjör- sókn. Eftir stendur þó að hart verður barist um næstu átta sæti sem gætu gefið þingsæti og nokkrar megin- línur farnar að skýrast um hverj- ir berjast um hvaða sæti. S j á l f s t æ ð i s - menn sem blaðið ræddi við greinir á um hvort Björn Bjarnason eða Sólveig Pétursdóttir beri sigur úr býtum í baráttunni um þriðja sætið í prófkjörinu. Reyndar var það svo að viðmælendur blaðs- ins skiptust nákvæmlega jafnt í spám sínum um hvort þeirra hefði betur. Flestir voru á því að Ásta Möller og Pétur Blöndal myndu berjast um fimmta sætið en greindi á um hvort þeirra hefði betur. Einn sagði Guðmund Hall- varðsson geta blandað sér í bar- áttuna um fimmta sætið og allir voru sammála um að hann væri öruggur um að halda þingsæti sínu. Sömu sögu er ekki að segja um þær Katrínu Fjeldsted og Láru Margréti Ragnarsdóttur. Viðmælendur blaðsins voru sammála um að Lára Margrét stæði veikast af þingmönnum flokksins. Töldu flestir líklegt að hún yrði annað hvort í baráttu- sæti eða neðar. Fleiri höfðu trú á að Katrín næði í öruggt sæti en sumir höfðu trú á því að hún gæti verið völt í sessi ef nýliðar næðu mjög góðum árangri í prófkjörinu. Það yrði þó óvænt. Nær allir voru sammála um að Guðlaugur Þór Þórðarson ætti mesta möguleika á að ná þingsæti af nýliðunum sem gefa kost á sér. Flestir voru á því að hann ætti að komast upp fyrir Katrínu og Láru Margréti, aðra eða báðar. Ólíklegt væri þó að nýliði færi mikið ofar en í átt- unda sætið. Hinir nýliðarnir sem eru tald- ir eiga besta möguleika eru Sig- urður Kári Kristjánsson og Stef- anía Óskarsdóttir. Sigurður Kári er sagður njóta stuðnings flokksforystunnar auk ungra sjálfstæðismanna og hafa for- skot á Ingva Hrafn Óskarsson og Birgi Ármannsson. Stefanía nýt- ur þess að hafa setið nokkuð á þingi sem varamaður. Viðmæl- endur voru þó sumir á því að henni hefði ekki tekist að marka sér stöðu en að á endanum gæti hún notið þess að vera kona. brynjolfur@frettabladid.is Óvíst um allt nema forystuna Mikil óvissa er um úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Það eina sem menn eru vissir um eru tvö efstu sætin. Tveir þingmenn eru taldir valtir en aðeins einn nýliði er öruggur um þingsæti. Nýjung í Svartsengi: Nuddarar í Bláa lóninu FORYSTUMENN Í TVEIMUR KJÖRDÆMUM Formaður og varaformaður flokksins, Davíð Oddsson og Geir H. Haarde, eru öruggir um tvö efstu sætin. Óvíst er með uppröðun í öll önnur sæti en nokkuð ljóst í hvaða deildum fólk er að kljást. Flestir voru á því að Ásta Möller og Pét- ur Blöndal myndu berjast um fimmta sætið. Danskir jafnaðarmenn hafa litla trú á Lykketoft: Ætlar að venja sig af stofnanamálinu POUL NYRUP RASMUSSEN Allt bendir til þess að arftaki hans sem formaður danskra jafnaðarmanna verði Mogens Lykketoft. AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.