Fréttablaðið - 22.11.2002, Page 18
FUNDIR
13.00-15.00 Dr. Sverrir Ólafsson heldur
fyrirlestur um stýringu óvissu. Fyr-
irlesturinn er ætlaður stjórnend-
um og fjármálastjórum fyrirtækja
og verður haldinn í stofu 101 í
Lögbergi.
15.30. Michael Svendsen Pedersen,
lektor við Hróarskelduháskóla,
flytur fyrirlestur á vegum Stofnun-
ar Vigdísar Finnbogadóttur í er-
lendum tungumálum í stofu 101 í
Lögbergi. Erindið kallast: „Sprog-
fagenes faglighed. Glimt af en
aktuel diskussion i Danmark“. Efni
fyrirlestrarins snýst um umræðu
sem á sér stað í Danmörku um
þessar mundir um inntak og til-
högun tungumálakennslu.
LEIKHÚS
20.00 Sölumaðurinn deyr eftir Arthur
Miller sýnt á Stóra sviði Borgar-
leikhússins.
20.00 Jón og Hólmfríður eru sýnd á
Nýja sviði Borgarleikhússins.
20.00 Með vífið í lúkunum er sýnt á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Halti Billi eftir Martin McDonagh
sýndur í Þjóðleikhúsinu.
20.00 Veislan er sýnd á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins. Uppselt.
20.00 Beðið eftir Go.com air er sýnt
hjá Leikfélagi Mosfellsbæjar, í
Bæjarleikhúsinu við Þverholt.
20.30 Leikfélag Kópavogs frumsýnir
Hljómsveitina. Hljómsveitin verð-
ur sýnd í Hjáleigunni, litla sviði
Félagsheimilis Kópvogs.
21.00 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
er sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
21.00 Beyglur með öllu eru sýndar í
Iðnó. Nokkur sæti laus.
21.00 Kvetch er sýnt í Vesturporti.
SKEMMTANIR
21.00 Valgeir Guðjónsson og Jón
Ólafsson troða upp með Skelli
og Smelli í Kaffileikhúsinu. Nokk-
ur sæti laus.
Rokksveit Rúnars Júlíussonar fagnar
útkomu nýrrar plötu Rúnars á Grand
Rokk.
Sóldögg spilar á Players í Kópavogi.
Telma sér um að hita upp.
TÓNLEIKAR
20.00 Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Sálin sameinast í stuði á tónleik-
um þar sem klassísk tónlist og
popp mætast. Efni Sálarinnar er
að mestu leyti nýtt en fólk fær þó
einnig að heyra eitthvað sem það
kannast við.
OPNANIR
18.00. Inga Svala Þórsdóttir opnar inn-
setninguna Borg í Listasafni
Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um
hið fullkomna samfélag. Hún
leggur fram hugmynd að milljón
manna borgarskipulagi í Borgar-
firði og á norðanverðu Snæfells-
nesi. Að dómi Ingu Svölu er um
að ræða borgarstaðsetningu á
heimsmælikvarða.
18.00 Íris Eggertsdóttir opnar sýning-
una Skyn í Gallerí Nema Hvað á
Skólavörðustíg. Íris er á lokaári í
myndlist við Listaháskóla Íslands
og sýnir mjúka skúlptúra úr textíl
sem hafa eða framkalla líkamlega
tengingu við tilfinningu eða minn-
ingu. Sýningin verður opin frá
föstudegi til fimmtudags á milli
12 og 14.
SÝNINGAR
13.00-19.00
Fjölþjóðlega handverkssýningin
VESTNORDEN Arts and Crafts
2002 stendur yfir í Laugardals-
höllinni dagana 20.-24. nóvem-
ber. Sýndir eru munir frá hand-
verksfólki í 12 þjóðlöndum. Sýn-
ingin er haldin undir merkjum
vestnorrænnar samvinnu og
munu um 140 aðilar sýna hand-
verk sitt.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine
of my Vanity“, sem útleggst á íslensku
„Helgidómur hégóma míns“, í Gallerí
Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er
hið svokallaða IVD (intensive vanity
disorder) eða hégómaröskun, en það
heilkenni verður æ algengara meðal
þeirra sem temja sér lífsstíl Vestur-
landabúa.
Myndlistamaðurinn Hildur Ásgeirsdótt-
ir Jónsson sýnir í Galleríi Sævars Karls.
Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn-
ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs-
son.
Rósa og Stella sýna í Gallerí Skugga,
Hverfisgötu 39. Sýningarnar standa til 1.
desember og er galleríið opið frá 13 til
17 alla daga nema mánudaga.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd
eru verk eftir um 50 listamenn sem
fæddir eru eftir 1950 og spannar sýn-
ingin árin 1980-2000.
Sýningin Í sjöunda himni stendur yfir í
gallerí Undirheimum, Álafossi, Mosfells-
bæ. Þar sýna 7 listakonur vatnslitaverk.
Opið er alla daga 12-17 nema miðviku-
daga. Sýningin stendur til 24. nóvember.
Anna Gunnlaugsdóttir sýnir 365 mynd-
verk, unnin á jafnmörgum dögum, í
Gallerí Glámi, Laugavegi 26, Grettis-
götumegin. Sýningin stendur til 24. nóv-
ember.
Guðrún Tryggvadóttir sýnir í Listhúsinu
í Laugardal. Sýningin ber heitið Furðu-
dýr í íslenskum þjóðsögum og er sam-
sett af myndskreytingum úr samnefndri
bók. Sýningin stendur til 30. nóvember.
Sýningin Hraun - ís - skógur er í Lista-
safni Akureyrar. Sýningin er opin alla
daga milli 12 og 17. Henni lýkur 15. des-
ember.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
ræna húsinu.
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
yfir sýning á portrettmyndum Augusts
Sanders. Sýningin er í Grófarsal, Grófar-
húsi, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík og
stendur til 1. desember 2002. Opnunar-
tími er 12-18 virka daga en 13-17 um
helgar.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil-
is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka.
Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir
eru velkomnir.
Sýning á verkum fjögurra eistneskra
listamanna stendur í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Þeir
eru Jüri Ojaver, Paul Rodgers, Jaan
Toomik og Jaan Paavle.
Tróndur Patursson frá Færeyjum sýnir
málverk í aðalsal Hafnarborgar.
Flökt - Ambulatory - Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í Ný-
listasafninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Bjarni Þór Þorvaldsson heldur mynd-
listarsýningu í Markaðstorgi, Eddufelli
8. Sýningin stendur til 1. desember og
er opin alla daga frá 13-18.30.
18 22. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
LEIKHÚS Leikfélag Kópavogs frum-
sýnir nýtt íslenskt leikrit, Hljóm-
sveitina, í kvöld. Verkið er að sögn
Harðar Sigurðssonar, formanns
Leikfélagsins, grátbroslegur óður til
töfra tónlistarinnar og þess máttar
sem hún hefur til að laða fram það
besta í fólki. Ágústa Skúladóttir leik-
stjóri samdi leikritið í samvinnu við
leikhópinn, en innblásturinn sóttu
þau til sannra atburða úr Keflavík
fyrir réttum hundrað árum síðan.
„Við upphaf síðustu aldar er
heimsmaðurinn Vilhjálmur Hákon-
arson nýkominn frá Bandaríkjunum
þeirra erinda að opna verslun í litlu
plássi á Íslandi. Honum þykir menn-
ingarlífið á staðnum í daufara lagi
og ákveður því að setja á stofn
hljómsveit. Honum tekst að ná sam-
an hópi sem í eru meðal annars póst-
ur og predikari auk ýmissa annarra
furðufugla og utangarðsmanna í
plássinu. Fæstir hafa svo mikið sem
séð hljóðfæri, hvað þá að þeir kunni
að nota þau. Draumur Vilhjálms
breytist fljótt í martröð þegar sveit-
inni er falið að spila við sögulegan,
opinberan atburð,“ segir Hörður.
Hörður bætir því við að á
tímabili hafi litið út fyrir að
fresta þyrfti frumsýningunni
þar sem einn leikaranna lagðist
inn á spítala í vikunni. „Málið
var hins vegar ekki eins al-
verlagt og útlit var fyrir í
fyrstu. Hann er útskrifaður og
allt mun því ganga eftir áætl-
un.“
Hljómsveitin verður sýnd í
Hjáleigunni, litla sviði Félags-
heimilis Kópvogs. Aðeins sjö
sýningar eru fyrirhugaðar og
verður sú síðasta laugardaginn
7. desember. ■
Nýtt íslenskt leikrit hjá Leikfélagi Kópavogs:
Sækir innblástur
hundrað ár aftur í tímann
VILHJÁLMUR HÁKONARSON
Kemur galvaskur frá Bandaríkjunum og
ákveður að rífa upp menningarlífið í
íslenskum smábæ með því að stofna
hljómsveit.
TÓNLEIKAR Í kvöld heldur tónlistar-
deild Eddu - miðlunar og útgáfu
tónleika í Austurbæ (gamla Aust-
urbæjarbíói við Snorrabraut).
Þar koma fram margir af þeim
listamönnum sem útgáfufélagið
gefur plötur út með fyrir þessi
jól.
KK kynnir nýja plötu sína,
Paradís, sem var að koma í búðir,
Ensími rokkar af samnefndri
plötu sem hlotið hefur afbragðs-
dóma og efnilegasta rokksveit
landsins, Búdrýgindi, gefur í
botn. Hip-hopið fær sitt pláss og
munu Afkvæmi Guðanna, Bent &
7Berg og Steindór Andersen láta
rímið flæða.
Hörður Torfa segir sögur við
gítarplokk og Stuðmenn slá
smiðshöggið.
Myndbönd verða sýnd á
breiðtjaldi.
Húsið opnar klukkan 21, ekk-
ert aldurstakmark og aðgangur
er ókeypis. ■
Risatónleikar í Austurbæ í kvöld:
Jólaútgáfa
Eddu kynnt
ENSÍMI
Hefur fengið frábæra dóma fyrir samnefnda þriðju breiðskífu sína.
Laugardaginn 23. nóvember
FÖSTUDAGUR
22. NÓVEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?