Fréttablaðið - 22.11.2002, Side 24
24 22. nóvember 2002 FÖSTUDAGURHVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
BÓKMENNTIR Stefán Sigurkarlsson
lyfsali hefur sent frá sér sína
fyrstu skáldsögu. Sagan heitir
Handan við regnbogann.
Áður hafa komið út eftir
Stefán tvær ljóðabækur og ein
bók með samtengdum sögum:
Haustheimar 1985, Skuggar
vindsins 1990 og Hólmanespistl-
ar 1995.
Starfsvettvangur Stefáns í
lyfsölunni var á Stykkishólmi,
Akranesi og loks í Breiðholts-
apóteki, þar sem hann var í tólf
ár þar til hann lét af störfum
1997. Stefán segist hafa unnið
að nýju skáldsögunni síðan þá.
„Fyrir mig var þetta afskap-
lega erfitt. Það er erfitt verk og
seinlegt að koma saman þokka-
legun texta. En ég er ekki að
kvarta. Það er kannski ekki
gaman að neinu nema það sé
erfitt,“ segir Stefán.
Aftan á kápu Handan við
regnbogann segir að blær bók-
arinnar sé um margt líkur
Hólmanespistlum Stefáns, sem
hafi fengið mikið lof gagn-
rýnenda.
Stefán segir söguna að stór-
um hluta vera uppvaxtar- og
ástarsögu. Tíu ára dreng í upp-
hafi síðari heimstyrjaldar sé
fylgt fram á fullorðinsár. Sagan
gerist að mestu leyti í Reykja-
vík. „Þræðir sögunnar liggja þó
til ýmissa átta,“ segir hann.
Fortíðin varpar skugga á lífs-
hlaup drengsins. Sjálfur er Stef-
án fæddur árið 1930 og er því
jafnaldri söguhetjunnar. Hann
segir söguna þó alls ekki byggða
á eigin ævi: „Þetta er allt saman
uppdiktað.“
Að sögn Stefáns ætlar hann
ekki að leggja upp í aðra fimm
ára skáldsöguferð. „Ég á ekki
von á því. En ég ætla engu að
lofa um það,“ segir hann.
Stefán er kvæntur Önnu Guð-
leifsdóttur og á þrjú uppkomin
börn.
gar@frettabladid.is
Allt saman uppdiktað
Stefán Sigurkarlsson lyfsali hefur skrifað skáldsöguna Handan við
regnbogann. Sagan er uppvaxtar- og ástarsaga. Stefán segir smíði
bókarinnar hafa verið sér erfiða. Hins vegar sé ekki gaman að neinu
nema það sé erfitt.
STEFÁN SIGURKARLSSON
Lyfsali sem sestur er í helgan stein sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu. Stefán er einnig listmálari. Myndina á veggnum málaði hann
á Stykkishólmi. Í Handan við regnbogann fylgir Stefán jafnaldra sínum frá því í upphafi síðari heimsstyrjaldar og fram á fullorðinsár.
Bjarni Brynjólfsson, ritstjóri Séð og heyrt.
Ég er nýbyrjaður að lesa Samúel eftir Mika-
el Torfason og líst ágætlega á. Svo er ég
með aðra í takinu, Ilíonskviðu eftir Hómer.
BÆKUR Skáldsaga Mikaels Torfa-
sonar, Heimsins heimskasti
pabbi, er komin út á dönsku og
finnsku. Að sögn höfundar hafa
nokkrir dómar birst í finnskum
fjölmiðlum og allir verið já-
kvæðir.
Bókin er gefin út í harð-
spjöldum að íslenskum sið í
Finnlandi en Danir gefa hana út
sem kilju. Titill bókarinnar á
dönsku er Verdens værste far
en á finnsku heitir hún Maailm-
an tyhmin Isa. Mikael Torfason
var sem kunnugt er tilnefndur
til Bókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs fyrir þessa bók sem
nú fer víða. ■
Mikael Torfason á
dönsku og finnsku:
Verdens
værste far
FAÐIRINN MEÐ BÆKURNAR
Torfi Geirmundsson með Maailman tyhmin
Isa og Verdens værste far.
JPV útgáfa hefur sent frá sérnýja útgáfu af Gúmmí-Tarsan
eftir Ole Lund Kirkegaard í þýð-
ingu Þuríðar Baxter. Bókin kom
fyrst út á íslensku árið 1978 og
naut mikilla vinsælda. Höfundur-
inn myndskreytti bókina sjálfur
en lífgað hefur verið upp á nýju
útgáfuna með því að lita mynd-
irnar. Gúmmí-Tarsan heitir réttu
nafni Ívar Ólsen og hann er í
rauninni bæði lítill og mjór og
ólaglegur að auki. Hann er heldur
ekki vitund sterkur og hann get-
ur ekki lumbrað á neinum. Dag
nokkurn rekst Ívar Ólsen af til-
viljun á ósvikna galdranorn og
allt í einu er Ívar Ólsen orðinn
drengur sem getur óskað sér
hvers sem hann vill. Að minnsta
kosti í einn dag ...
NÝJAR BÆKUR
Metsölulistarnir:
Landnem-
inn mikli
yfirstígur
þunglyndi
BÆKUR Arnaldur Indriðason heldur
efsta sætinu á sölulista Penn-
ans/Eymundssonar en Landnem-
inn mikli, Stephan G. Stephans-
son, hefur skotist upp í annað sæt-
ið. Nýja orðabókin lækkar um
sæti, sem og Sonja Zorrilla sem er
nú mitt á milli sturlaða riddarans
Don Kíkóta og Íslands í hers hönd-
um. Jón Sigurðsson er í 6. sætinu,
auk þess sem ástin og þunglyndi
koma við sögu á listanum.
Orðabókin er á toppnum í
verslunum M&M en Arnaldur
fylgir henni eftir og Jón Sigurðs-
son er öllu brattari en hjá Pennan-
um. Listi M&M er aðeins mýkri en
Pennans en auk bókar Önnu Valdi-
marsdóttur um ræktun ástarinnar
er þar að finna safn af óléttusög-
um íslenskra kvenna. Þá komast
þrjár barnabækur á blað; Gall-
steinar afa Gissa, Skúli skelfir og
hinn magnaði Artemis Fowl. Ari
Trausti Guðmundsson rekur svo
lestina með verðlaunabók sinni
Vegalínur. ■
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA MÁLS OG
MENNINGAR (1. TIL 18. NÓVEMBER)
ÍSLENSK ORÐABÓK 2002
Mörður Árnas. ritst.
RÖDDIN
Arnaldur Indriðason
JÓN SIGURÐSSON
Guðjón Friðriksson
LEGGÐU RÆKT VIÐ ÁSTINA
Anna Valdimarsdóttir
KONUR MEÐ EINN Í ÚTVÍKKUN..
Ýmsar
ARTEMIS FOWL-SAMSÆRIÐ
Eoin Colfer
ÍSLANDSKORT CD
Landmælingar
GALLSTEINAR AFA GISSA
Kristín H. Gunnarsdóttir
SKÚLI SKELFIR
Francesca Simon
VEGALÍNUR
Ari Trausti Guðmundsson
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
METSÖLULISTI PENNANS/EYMUNDS-
SONAR (13. TIL 19. NÓVEMBER)
RÖDDIN
Arnaldur Indriðason
LANDNEMINN MIKLI
Viðar Hreinsson
ÍSLENSK ORÐABÓK
Mörður Árnas. ritst.
LÍF MEÐ ÞUNGLYNDI
R. Buckman og A. Charlish
ÚTKALL - GEYSIR ER HORFINN
Óttar Sveinsson
JÓN SIGURÐSSON
Guðjón Friðriksson
LEGGÐU RÆKT VIÐ ÁSTINA
Anna Valdimarsdóttir
ÍSLAND Í HERS HÖNDUM
Þór Whitehead
SONJA
Reynir Traustason
DON KÍKÓTI I
Miguel de Cervantes
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T