Fréttablaðið - 22.11.2002, Page 30
30 22. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
Berst fyrir bættum lífs-
kjörum eldri borgara
Einar Grétar Björnsson er 74 ára gamall fyrrverandi sjómaður.
Hann segist óánægður með kjör eldri borgara og segir
baráttuna fyrir betri lífsafkomu aldrei enda.
PERSÓNAN „Hækkunin sem við
hjónin komum til með að fá í okk-
ar hlut nemur sömu upphæð og 24
lítrar af mjólk kosta,“ segir Einar
Grétar Björnsson, 74 ára gamall
fyrrverandi sjómaður og ellilíf-
eyrisþegi, um fyrirhugaða hækk-
un ríkisstjórnarinnar til eldri
borgara á næsta ári.
Hann segir tekjutrygginguna
vera þá einu hækkun sem þau
hjónin fái. Sú hækkun nemi 1.862
krónum eftir að búið sé að draga
frá skatt. „Þetta er öll hækkunin.
Svo er verið að tala um einhverja
8.000-14.000 króna hækkun. Ég
lýst megnustu óánægju minni
með þessar hækkanir.“
Einar Grétar hefur víða komið
við í baráttu sinni fyrir betri lífs-
kjörum og haldið ræður við ýmis
tilefni. Á hann meðal annars sæti
í Sjómannadagsráði. Ósjaldan
birtust greinar eftir hann í Morg-
unblaðinu og þá helst vegna bar-
áttu hans fyrir auknum veg sjó-
manna. Í dag segir hann barátt-
una snúast um betri kjör til handa
eldri borgurum.
„Það er alltaf verið að hvetja
fólk til að búa utan stofnana.
Spurningin er hvort það borgi sig.
Þeir sem búa á elliheimilum fá
styrki frá ríkinu sem nema á bil-
inu 12.000-17.000 krónum á dag.
Við sem kjósum að búa heima
fáum 1.800 krónur. Ef við svo
þurfum heimilishjálp kostar það
aukalega 450 krónur á tímann.
Hvar er jafnréttið í landinu?“
Einar Grétar vitnar í könnun
Einars Árnasonar hagfræðings
um þróun skattleysismarka síð-
ustu tólf árin. Þar hafi komið
fram að árið 1990 hafi mörkin
verið 54.000 en í dag séu þau
67.500 krónur „Hefðu mörkin þró-
ast eins og verðlagið ættu þau að
vera 105.500 krónur. Þessir út-
reikningar sýna hvað þróunin hef-
ur verið okkur óhagstæð og lífs-
kjör okkar versnað,“ segir Einar
Grétar myrkur í máli. Einar Grét-
ar er kvikur maður og hressileg-
ur. Aðspurður segist hann aldrei
láta deigan síga í baráttu sinni
fyrir bættum lífskjörum.
„Meðan ég dreg andann þá læt
ég í mér heyra,“ segir þessi gamli
baráttujaxl að lokum.
kolbrun@frettabladid.is
Ég fæddist nú rétt eftir aðKastró og hans fólk náði und-
irtökunum á Kúbu og fékk fljótt
þá flugu í höfuðið að líf mitt stæði
í einhverju dularfullu sambandi
við byltinguna þar. Þessa einu hjá-
trú mína fékk ég síðast staðfesta
þegar páfinn heimsótti Kúbu. Það
eina sem skyggði á gleði okkar
þremenninganna var að sjón-
varpsútsendingin var sífellt trufl-
uð með ótímabærum fréttum af
ástarleikjum Clintons og
Móniku.“ Það er Garðar Sverris-
son, formaður Öryrkjabandalags-
ins, sem talar.
Hann segist ungur hafa byrjað
í blaðamennsku og dregist inn í
stjórnmálin með Vilmundi heitn-
um Gylfasyni, sem bauð honum
starf á Alþýðublaðinu 19 ára
gömlum. „Eftir að Vilmundur lést
og Bandalag jafnaðarmanna var
farið að þróast út í hálfgerða vit-
leysu, hét ég því að koma ekkert
nálægt þjóðmálum. Ég einbeitti
mér þess vegna að náminu mínu
og nú þarf ég að lesa mér til um
það sem gerðist á árunum 1985-
95.“
Garðar segir að sér líði best
þegar hann er fjarri öllum frétta-
flutningi, eins og síðastliðið sum-
ar þegar hann fór í hringferð um
landið með fjölskyldunni. „Á
þessu hálfs mánaðar ferðalagi
uppgötvaði ég líka hversu oft
maður leitar langt yfir skammt
með sumarferðum til útlanda.“
Garðar segist hafa áhuga á
fróðleik um fortíðina en skemmti-
legast finnst honum að slappa af
með konu og börnum. „Við eigum
tólf ára dóttur sem er að gera
ýmis verkefni um sautjándu öld-
ina og lætur pabba sinn leita að
heimildum fyrir sig. Svo spilum
við líka saman á píanóið, en þar
slær hún pabba gamla út. Svo á ég
átján ára son í Noregi sem hefur
verið í hálft annað ár hjá knatt-
spyrnuliðinu Molde. Við heim-
sækjum gjarnan hvor annan og
ræðum um lífið og tilveruna,“
segir Garðar að lokum. ■
Garðar Sverrisson er
formaður Öryrkjabandalagsins.
Persónan
Líf í dularfullu samhengi við Kastró
EINAR GRÉTAR BJÖRNSSON
„Hefðu mörkin þróast eins og verðlagið ættu þau að vera 105.500 krónur. Þessir út-
reikningar sýna hvað þróunin hefur verið okkur óhagstæð og lífskjör okkar versnað.“
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
GARÐAR SVERRISSON
Fékk sig fullsaddan á persónulegum átök-
um innan stjórnmálanna og var hættur að
nenna að horfa á fréttirnar.
- Vissir þú að Guðmundur og
Anna eru skilin?
- Nei, hvað segirðu. Hvort þeirra
fékk hvað?
- Hún fékk börnin. Hann barna-
píuna. ■
PERSÓNAN
ÞÓRSKAFFI
DISKÓKVÖLD
Fös. 22.11. 2002
- Gullöld rokksins
- Bítlaæðið
- 60s lögin
- o.fl.
Lau. 23.11. 2002
Lúdó og Stefán
spila fyrir dansi
frá kl. 22.00.
Þórskaffi
Brautarholt 20 - s. 511 0909
Sissa tískuhús
Er komin í
jólaskap
Af því tilefni er 15% afsláttur
helgina 22-24 nóvember.
opnunartími
laugardag 11-17 sunnudag 13-16
Sissa tískuhús
Hverfisgötu 52, sími 562 5110
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
IG
G
A
LI
V