Fréttablaðið - 22.11.2002, Síða 32
Nú styttist í að við fáum að sjánýjustu myndina í hinni fertugu
framhaldssyrpu um James Bond, en
þessi kvensama, drykkfellda og
ódrepandi ofurhetja hefur 20 sinn-
um bjargað heiminum frá tortím-
ingu. Á þessum tíma hefur Járn-
tjaldið fokið út í veður og vind,
stjórnmálaleiðtogar hafa klifið tinda
valda og frægðar og steypst niður í
hyldýpi gleymskunnar, Presley og
Bítlarnir hafa sungið sitt fegursta
og tölvubyltingin hefur gert Bill
Gates auðugri en Goldfinger. Þegar
fyrsta Bond-myndin var frumsýnd
var Davíð Oddsson táningur, nú hef-
ur hann verið forsætisráðherra í á
annan áratug. Af þjóðaleiðtogum er
aðeins Fídel Castro enn á sínum
stað þótt hann sé farinn að grána og
á góðri leið með að stinga út úr
tímaglasinu. Kennedy og Krústsjóv,
Nixon og Maó, Reagan og Gorbat-
sjov heyra sögunni til.
EF MAÐUR ætlar að svipast um
eftir James Bond á Netinu vísar
leitarvélin manni á tvær milljónir
vefsíðna, Ísland hefur rúma milljón,
Tarzan tæpa milljón, Sherlock
Holmes tvöhundruð þúsund og Jóla-
sveinninn hundrað og fimmtíu þús-
und. Nýjasti keppinautur Bonds um
alþjóðlega frægð er strákpjakkur-
inn Harry Potter, en fróðleik um
hann er að finna á um átjánhundruð
þúsund vefsíðum og Hringadrottinn
spókar sig á áttahundruð þúsund
vefsíðum.
HVAÐ er það sem gerir Bond
svona endingargóðan í heimi hinna
sífelldu breytinga? Trúlega grund-
vallarþema þessara sagna sem allar
fjalla um baráttu góðs og ills í sinni
einföldustu mynd. Bond er hinn ei-
lífi farandriddari sem berst við hina
illu dreka, í senn hæfilega breyskur
til að vera mennskur og jafnframt
goðum líkur að hugprýði, afli og
kænsku.
VERÖLDIN er flókin og ekki alltaf
auðvelt að greina á milli góðs og
ills. Höfuðóvinur mannkynsins nú
um stundir er ósýnilegur Arabi, Bin
Laden, sem af gömlum myndum að
dæma lítur út eins og miðaldra út-
gáfa af Jesú Kristi með lystarstol.
Annar óvinur er Saddam Hússein
sem lítur út eins og púkinn á fjósbit-
anum og fitnar því meira sem hon-
um er formælt. Það er því gott að
eiga ævintýrið til að halla sér að þar
sem mörkin eru skýr milli ills og
góðs og hið góða sigrar að lokum.
Drif á öllumGullmolar Lækkað verðNýkomnir
Gott á bilathing.is
Númer eitt í notu›um bílum!Laugavegi 170–174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is
Rekstrarleiga
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
„Sagnaskáldskapur
á heimsmælikvar›a“
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F/
SI
A
.I
S
ED
D
1
94
50
1
1/
20
02
firi›ja bókin í hinum vinsæla sagnaflokki
Einars Más og fylgir eftir fleim litríku og
minnisstæ›u persónum sem lesendur flekkja
úr metsölubókunum Fótspor á himnum og
Draumar á jör›u. Sem fyrr fléttar Einar Már
saman sögu einstaklinga og samfélags flannig
a› úr ver›ur hrífandi fljó›arsaga, bygg› jöfnum
höndum á sögulegum heimildum og
hugarflugi.
Hrífandi fljó›arsaga
„Útkoman er ljó›rænn sagnaskáldskapur
á heimsmælikvar›a.“
Jón Yngvi Jóhannsson, DV um Drauma á jör›u
„Einar Már Gu›mundsson er einn af mestu rithöfundum
Nor›urlanda í dag.“
Søren Vinterberg, Politiken um Fótspor á himnum
kemur í verslanir í dag
Bókin
Einar Már
Gu›mundsson
Bond blívur
Bakþankar
Þráins Bertelssonar