Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 8
8 6. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Mikil aukning í komum skemmtiferðaskipa til Íslands: Tekjur gætu numið 3 milljörðum 2010 FERÐAMÁL Heildartekjur vegna komu skemmtiferðaskipa til Ís- lands gætu aukist um 100 til 200% á næstu sjö árum. Áætlað er að tekjur vegna komu skemmtiferðaskipa hingað til lands á síðasta ári verði ekki undir einum milljarði króna. Í nýútkominni skýrslu um stöðu Íslands sem við- komustaðar fyrir skemmtiferða- skip kemur fram að mögulegt sé að tvöfalda farþegafjölda á næstu sjö árum. Árið 2010 gætu tekjurnar því orðið 2 til 3 milljarðar króna. Í skýrslunni segir að á síðustu 10 árum hafi farþegafjöldinn auk- ist úr 22 þúsund gestum í 53 þús- und. Fjöldi skipakoma til Reykja- víkurhafnar, Akureyrarhafnar og Ísafjarðarhafnar hafi farið úr 51 í rúmlega 100 á sama tímabili. Samstarfshópur um markaðs- setningu Íslands fyrir skemmti- ferðaskip telur mögulegt að tvö- falda farþegafjöldann fram til árs- ins 2010 og þar með auka tekjurn- ar verulega. Hópurinn telur mik- inn vöxt vera í skemmtiferðasigl- ingum í heiminum og að nú sé ein- stakt tækifæri fyrir Ísland til að efla markaðssókn. Leggur hópur- inn m.a. til að aðstaða fyrir skip og farþega verði bætt, viðkomustöð- um fjölgað og að reynt verði að lengja dvöl skipanna í höfnum landsins. ■ Vilja stækka frið- land Þjórsárvera Náttúrurverndarsamtök Íslands skora á stjórnvöld að stækka friðlandið í Þjórsárverum. Samtökin telja að úrskurður um Norðlingaölduveitu kunni að marka tímamót. Stjórnvöld hafi rétt fram ákveðna sáttahönd. UMHVERFISMÁL Náttúruverndar- samtök Íslands skora á stjórnvöld að stækka friðlandið í Þjórsárver- um og styrkja friðlýsingu þess með lagasetningu. „Á sínum tíma voru mörk frið- lands í Þjórsárver- um málamiðlun á milli virkjunarað- ila og Náttúru- verndarráðs,“ seg- ir í tilkynningu frá samtökunum. „Ef náttúruverndar- hagsmunir hefðu einir fengið að ráða hefði friðlandið orðið mun stærra en það er.“ Náttúruverndarsamtökin benda á að í úrskurði setts umhverfisráð- herra, Jóns Kristjánssonar, um Norðlingaölduveitu, komi fram að ráðuneytið telji að visst svigrúm sé til að stækka friðlandið. Samtökin telja að úrskurður ráðherra kunni að marka tímamót í mati á um- hverfisáhrifum framkvæmda. „Stjórnvöld hafa rétt fram ákveðna sáttahönd í stríði sínu gegn náttúru landsins og fólkinu sem vill vernda hana,“ segir í til- kynningu frá samtökunum. „Í þessu stríði hefur árásarliðinu ekki verið neitt heilagt og það hefur gert áætlanir um innrás í friðhelg vé landsins, svæði sem mörg hver hafa verið friðlýst í áratugi. Settur umhverfisráðherra úrskurðaði um Norðlingaölduveitu og setti m.a. það skilyrði að framkvæmdirnar hafi ekki áhrif innan friðlands Þjórsárvera. Slíkt skilyrði er sjálf- sagt en þó þakkarvert nú miðað við orð og æði stjórnvalda að undan- förnu.“ Í kjölfar úrskurðarins, þar sem ráðherra tekur bæði tillit til friðlýs- ingar Þjórsárvera og hins alþjóð- lega Ramsar-sáttmála um verndun votlendis, þvert á það sem Skipu- lagsstofnun gerði, telja Náttúru- verndarsamtökin að barátta um- hverfissinna hafi borið nokkurn ár- angur. Á þremur mánuðum hafi tek- ist að finna nýja lausn sem komi til móts við náttúruverndarsjónarmið. „Hvað væri hægt að gera á öðr- um stöðum líka ef menn gæfu sér tíma og legðu sig fram við að finna lausnir?“ trausti@frettabladid.is Bæjarstjórinn fundaði um Þróunarfélag Vestmannaeyja: Ánægður með úttekt ráðuneytis FJÁRMÁL Ingi Sigurðsson, bæjar- stjóri Vestmannaeyja, segist ekki hafa verið beðinn um að útskýra meinta fjármálaóreiðu Þróunarfé- lags Vestmannaeyja á fundi í félags- málaráðuneytinu í fyrradag. Aðspurður um það hvort fjármál Þróunarfélagsins séu í ólestri segir Ingi: „Ég held að við eigum að láta ráðuneytið komast að niðurstöðu um það. Það hefur verið ýjað að ýmsum hlutum í lengri tíma og þess vegna erum við ánægðir með það að ráðuneytið hafi ákveðið að skoða þetta mál.“ Ingi segir að bæjarstjórn hafi fengið erindi frá ráðuneytinu þar sem óskað hafi verið eftir upplýs- ingum um skráningu félagsins og skuldbindingar bæjarins gagnvart því, en ekki hafi verið spurt beint út í fjármál þess. Í kjölfarið hafi hann óskað eftir fundi með ráðuneytinu til að fara yfir málið og það hafi hann gert. Lúðvík Bergvinsson, oddviti Vestmannaeyjalistans, sagði í Fréttablaðinu í gær að bæjarsjóð- ur Vestmannaeyja væri í ábyrgðum fyrir 50 til 70 milljóna króna skuld Þróunarfélagsins. Ingi segist ekki kannast við þessa tölu og ráðuneyt- ið sé besti aðilinn til að skera úr um það hvað bærinn sé í ábyrgðum fyrir. ■ ÞJÓÐKIRKJAN Leitar hugmynda meðal fólks í þjóðkirkj- unni. Stefnumótun Þjóðkirkjunnar: Hvert á kirkjan að stefna? KIRKJUMÁL Þjóðkirkjan hefur sent út vinnugögn til sóknarnefnda um allt land í tengslum við stefnumót- un þar sem greina á stöðu Þjóð- kirkjunnar í samtíðinni og fá vit- neskju um það hvaða skoðun Þjóð- kirkjufólk hafi á því hvert kirkjan eigi að stefna. Stefnumótunin er unnin í sam- ræmi við samþykkt Kirkjuþings 2002. Stefnumótunarferlið er op- inn vettvangur fyrir alla sem áhuga hafa á að koma að stefnu- mótun Þjóðkirkjunnar til næstu ára. Áhugasamir geta fengið gögnin send til sín eða nálgast þau á vefsíðunni: www.kirkj- an.is/stefnumotun. Skilafrestur rennur út í lok febrúar. ■ Afbrotaunglingar fluttir: Versta fangelsið BRETLAND Fangelsismálayfirvöld hafa ákveðið að fjarlægja 170 af- brotamenn á aldrinum 15 til 17 ára úr Ashfield-fangelsinu nærri Bristol vegna þess að fangelsið upp- fyllir ekki þau skilyrði sem eru gerð til þess, að sögn The Guardian. Fangelsið er einkarekið og hefur Martin Narey, yfirmaður fangelsis- mála í Bretlandi, sagt að ef ástandið í fangelsinu batni ekki muni 25 ára samningi við rekstraraðila þess verða sagt upp. „Best rekna fang- elsið okkar er líklega einkarekið. En Ashfield er, með nokkrum yfirburð- um, það versta,“ sagði Narey. ■ HLÁKA Það þarf að sjá til þess að bráðnandi snjór safnist á götunum. Höfuðborgin: Snjórinn fer VEÐUR Suðlægar áttir nálgast land- ið og þeim fylgir hlýnandi veður. Veðurfræðingar spá því að snjó taki upp á höfuðborgarsvæðinu: „Það hlýnar fram yfir helgi og kólnar svo aftur á þriðjudag,“ seg- ir Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur. „En þetta verða engin merkileg hlýindi, lullar yfir núll- ið,“ segir hann. ■ SKEMMTIFERÐASKIP Áætlað er að tekjur vegna komu skemmtiferðaskipa hingað til lands á síðasta ári verði ekki undir einum milljarði króna. NORÐLINGAÖLDUVEITA Græna línan markar landamerki friðlands- ins í Þjórsárverum. Ljósblái liturinn sýnir lónið eins og það átti að vera en dökkblái liturinn eins og það verður samkvæmt úr- skurði setts umhverfisráðherra. „Ef náttúru- verndarhags- munir hefðu einir fengið að ráða hefði friðlandið orð- ið mun stærra en það er.“ EKKI SPURT ÚT Í BÓKHALDIÐ Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að ráðuneytið hafi ekki spurt hvers vegna bókhald Þróunarfélags Vestmannaeyja hafi týnst. LASARUS OG ALLIR HINIR Í sjónvarpsviðtölum segir safnaðarfólk árangur lækning- anna vera kraftaverk, enda er maðurinn afkastameiri en frelsar- inn sjálfur var. Jónas Kristjánsson um kraftaverka- mann sem heldur samkomur hér á landi. Jonas.is, 4. febrúar. AGI SKAL Í HERNUM Ég leyfi mér að fullyrða að þetta gæti ekki gerst í nokkru öðru þingi veraldar. Davíð Oddsson um orrahríð Samfylk- ingarinnar að forseta Alþingis. Alþingi, 4. febrúar. FORVÍGISMENN ALÞJÓÐAVÆÐINGAR Samar eru ein þjóð í fjórum löndum, norrænust allra þjóða, þjóð sem virðir engin landamæri. Sigurður Helgi Guðjónsson, Sami og formaður Húseigendafélagsins. DV, 5. feb. ORÐRÉTT Leitað til njósnara: KGB í kosn- ingabaráttu EISTLAND Fyrrum yfirmaður KGB í Eistlandi segir að honum og öðrum fyrrum njósnurum hafi verið boðn- ir peningar í skiptum fyrir upplýs- ingar um stjórnmálamenn í nýlega afstaðinni kosningabaráttu. Þeir sem reyndu að kaupa upplýsingarn- ar voru stjórnmálamenn og stuðn- ingsmenn þeirra sem vildu afla upplýsinga til að nota gegn keppi- nautum sínum. Fyrrum njósnurum KGB er meinað að taka sæti á þingi. KGB eyddi skjölum um starf sitt í Eistlandi fyrir sjálfstæði þess. ■ Sumarlokun í Borgarbyggð: Foreldrar óánægðir LEIKSKÓLAR Foreldrar í Borgar- byggð eru óánægðir með þá ákvörð- un bæjaryfirvalda að loka leikskól- um bæjarins í einn mánuð í sumar. Fulltrúi foreldrafélags Klettaborg- ar mótmælti fyrirhugaðri sumar- lokun fyrir hönd félagsins og sagði hana koma illa við foreldra og skapa vandamál á vinnustöðum. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.