Fréttablaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 18
18 6. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR FUNDIR 12.20 Kristín Björg Guðmundsdóttir dýralæknir flytur erindið Listeria monocytogenes í dýrum á Íslandi í bókasafninu að Keldum. Þetta er verkefni Kristínar til doktorsprófs sem hún lauk nú í janúar. 13.00 Harpa Guðmundsdóttir kynnir Alex- anderstækni fyrir unga foreldra með börnin sín á Loftinu í Hinu Húsinu. Áhugasamir eru beðnir að mæta með teppi og tvær bækur. 16.15 Halldór Pálmar Halldórsson gengst undir meistarapróf við líf- fræðiskor raunvísindadeildar Há- skóla Íslands og heldur fyrirlestur um Mælingar á vaxtarrými kræk- lings. Fyrirlesturinn fer fram í stofu G6 að Grensásvegi 12 og er opinn öllum meðan húsrúm leyfir. 16.15 María Björk Ólafsdóttir flytur er- indi um Hlutdeild lipoxygenasa í stýrðum frumudauða á málstofu í sal Krabbameinsfélags Íslands, efstu hæð. 19.30 Sjö rithöfundar af þeim 11 sem til- nefndir hafa verið til bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs í ár kynna bækur sínar í Norræna hús- inu. Jórunn Sigurðardóttir kynnir þá til leiks og síðan lesa höfundarnir brot úr verkum sínum. 20.00 Biblíuskólinn við Holtaveg heldur fræðslukvöld um tvö af bréfum Nýja testamentisins, Hebreabréfið og Júdasarbréf, í húsi KFUM og KFUK, á horni Holtavegar og Sunnuvegar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 20.00 Fræðslufundur um fíkniefnamál verður haldinn í Hlíðaskóla fyrir foreldra nemenda í 8. og 9. bekk. 20.00 Opið hús er hjá Nýrri dögun, sam- tökum um sorg og sorgarviðbrögð, í safnaðarheimili Háteigskirkju. Umræðurnar leiðir sr. Halldór Reyn- isson. Allir syrgjendur eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. 20.30 Tourette-samtökin verða með opið hús að Hátúni 10b, sem er austasta ÖBÍ blokkin, í kaffiteríunni á jarð- hæðinni. Jónas G. Halldórsson taugasálfræðingur mun fjalla um sértæka námsörðugleika og svara fyrirspurnum. TÓNLEIKAR 19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands frum- flytur fjögur splunkuný íslensk tónverk á Myrkum músíkdögum í kvöld. Stjórnandi er Bernharður Wilkinson. Flutt verða verk eftir Atla Ingólfsson, Hróðmar Inga Sig- urbjörnsson, Jón Ásgeirsson og Jónas Tómasson. 20.00 4Klassískar halda söngtónleika í Hafnarborg - menningar- og fræðslumiðstöð Hafnarfjarðar. Flutt verða léttklassísk og klassísk lög ásamt söngleikjatónlist og ljúfum kaffihúsatónum. 4Klassísk- ar eru söngkonurnar Björk Jóns- dóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir og píanó- leikarinn Aðalheiður Þorsteins- dóttir. Gestur þeirra í kvöld er Tómas R. Einarsson bassaleikari. 20.30 Óður til Ellýjar verður endurtek- inn í Salnum í Kópavogi vegna fjölda áskorana. Guðrún Gunn- arsdóttir syngur vinsælustu lög Ellýjar Vilhjálms. Borgardætur syngja raddir og Stefán Hilmars- son er gestasöngvari. LEIKSÝNINGAR 20.00 Halti Billi eftir Martin McDonagh á Stóra sviði Þjóðleikhússins. 20.00 Veislan eftir Thomas Vinterberg og Mogens Rukov á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins. 20.00 Söngleikurinn Sól og Máni eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson á Stóra sviði Borgarleikhússins. 20.00 Jón og Hólmfríður eftir Gabor Rassov á Nýja sviði Borgarleik- hússins. 20.00 Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare í þýðingu Hallgríms Helgasonar á Litla sviði Borgar- leikhússins. 20.00 Nemendaleikhúsið sýnir Tattú eftir Sigurð Pálsson í Smiðjunni. Takmarkaður sýningafjöldi. 20.30 Leikfélag Kópavogs er með aukasýningu á Hljómsveitinni í Hjáleigunni, litla sviði Félagsheim- ilis Kópavogs. 20.30 Nemendur Verslunarskóla Ís- lands frumsýna söngleikinn Made in USA eftir Jón Gnarr. SKEMMTANIR 20.00 Rokktónleikar verða á Fimmtu- dagsforleik í Hinu Húsinu. Hljóm- sveitirnar sem koma fram eru: Royal Dirt, Denver, Bob og I.Q.B.A.L. Allir 16 ára og eldri vel- komnir og ókeypis inn. SÝNINGAR Agatha Kristjánsdóttir sýnir ellefu olíu- málverk í kaffistofunni Lóuhreiðri að Laugavegi 59. Málverkin á sýningunni eru flest ný. Sýningin stendur út febrúar. Um síðustu helgi hófst sýning verkum Ólafs Más Guðmundssonar í sýningar- sal Ingustofu á Sólheimum í Grímsnesi. Sýningin verður opin fram í maí, virka daga frá kl. 9-17 en um helgar frá kl. 14- 18. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Mannakyn og meiri fræði er yfirskrift sýningar á myndlýsingum í gömlum ís- lenskum handritum, sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Þar gefur að líta myndir Jóns bónda Bjarnasonar og ýmissa annarra mynd- skreyta. Einnig hljómar á sýningunni hljóðlistaverkið Forneskjutaut eftir Sjón og Hilmar Örn Hilmarsson. Sýningin stendur til 9. mars. Um síðustu helgi opnaði Freygerður Dana Kristjánsdóttir myndlistarsýningu á Te og Kaffi, Laugavegi 27, Reykjavík. Sýningin heitir Tilfinningar og stendur út febrúarmánuð. Um síðustu helgi hófst í Listasafni Borgarness sýning á málverkum eftir Hubert Dobrzaniecki. Þar sýnir lista- maðurinn olíumálverk og grafík frá ár- unum 1999-2002. Sýningin er opin frá 13-18 alla virka daga og til kl. 20 á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum. Sýningin stendur til 26. febrúar. Um síðustu helgi hófst í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarð- ar, sýningin Akvarell Ísland. Þetta er fjórða sýningin sem hópurinn Akvarell Ísland heldur í Hafnarborg og er hún í TÓNLIST Hvernig skyldi tónverk hljóma ef það væri skrifað fyrir tvær hljómsveitir en aðeins önnur þeirra léki sinn part á tón- leikum? Þessa spurningu ættu áheyrendur á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í kvöld kannski að hafa í huga, að minnsta kosti þegar þeir hlusta á fyrsta verk tónleikanna, sem er eftir Atla Ingólfsson. Verk Atla nefnist Orchestra B, eða Hljómsveit B, sem gefur til kynna að hljómsveit A sé fjarverandi á þessum tónleik- um. Ekki má þó skilja þetta sem svo að Atli hafi í raun og veru skrifað þetta verk fyrir tvær hljómsveitir. „Nei, þetta er frekar ákveðið bragð sem ég nota til þess að fá áheyrendur til að hlusta öðru- vísi,“ segir Atli. „Ég er svolítið að prófa hvað það er sem gerist í hlustuninni. Svo vil ég bara að fólk hafi það á hreinu að það sé ekki að koma til að hlusta á venjulegar laglínur, einhver grípandi stef. Hins vegar má segja að ég hafi hugsað mér aðra hljómsveit til hliðar við hina. Ég veit alveg hvernig hún myndi hljóma. En hún er samt alls ekki partur af því verki sem flutt verður á tónleikunum í Há- skólabíói.“ Atli segist líta frekar á verk- ið eins og einn hljóðmassa, sem leiðir áheyrendurna áfram. „Þótt engar eiginlegar laglínur séu í verkum mínum hef ég stundum sagt að í heildarformi verksins megi greina eitthvað sem kalla mætti laglínu. Eitt- hvað sem situr í fólki eftir hlust- unina. En til þess að fólk geti bara slappað af og hlustað er gott að búast ekki fyrir fram við neinum laglínum.“ Atli segist samt ekki telja þetta erfitt verk að hlusta á. „Ég bind þetta svolítið saman með ýmsum aðferðum, til dæmis með rytmanum.“ Hann segir þessa nálgun í raun ekkert frábrugðna því, sem margir þekkja úr popp- heiminum á síðustu árum. Í teknótónlist er ekki beinlínis lagt mikið upp úr laglínum, heldur er „sándið“ í aðalhlut- verki. Verk Atla er splunkunýtt, samið á síðustu mánuðum. Á tónleikunum í kvöld verða ein- nig frumflutt ný verk eftir þrjú önnur íslensk tónskáld, þá Hróð- mar Inga Sigurbjörnsson, Jón Ásgeirsson og Jónas Tómasson. Tónleikarnir eru á dagskrá Myrkra músíkdaga, tónlistarhá- tíðarinnar sem Tónskáldafélag Íslands efnir til í skammdeginu á hverju ári. gudsteinn@frettabladid.is Sándið í sinfóníunni Myrkir músíkdagar halda áfram. Sinfóníuhljómsveit Íslands frum- flytur í kvöld fjögur splunkuný verk eftir íslensk tónskáld. NÝSKÖPUN Í SKAMMDEGINU Sinfóníuhljómsveit Íslands æfði í gær ný verk eftir fjögur íslensk tónskáld. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR hvað? hvar? hvenær? FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Borgarskjalasafn Reykjavíkur www.rvk.is/borgarskjalasafn Sími: 563 1770 LESSTOFA opin alla virka daga kl. 10-16. www.ljosmyndasafnreykjavikur.is Langar þig í mynd af Reykjavík t.d. frá árinu 1910, 1930 eða 1950? Verð frá 1000 kr. Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Opið mán.-fös. kl. 10-16 www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200 HAFNARHÚS Lýsir (1.2.), Hugarleiftur, Erró. Leiðsögn sunnud. kl. 15.00 KJARVALSSTAÐIR then ...hluti 4, Odd Nerdrum, Kjarval Leiðsögn sunnud. kl. 15.00 ÁSMUNDARSAFN Tumi Magnússon, Ásmundur Sveinsson Minjasafn Reykjavíkur Árbæjarsafn - Viðey www.arbaejarsafn.is Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og föstudaga kl. 13. Einnig er tek- ið á móti hópum eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í síma 577 1111. Upplýsingar um leiðsögn í Viðey í síma 568 0535. www.gerduberg.is Gerðubergi 3-5, s. 575 7700 Opnunartími sýninga frá kl.11-19 mán.-fös., kl.13-17 lau.-sun. Ókeypis aðgangur. Sýning: Bauhaus ljósmyndasýning. Sýningin stendur til 23. febrúar. Í félagsstarfi: Árni Sighvatsson. www.borgarbokasafn.is • s. 563 1717 Upplýsingar um afgreiðslutíma s. 5527545 Aðalsafn Tryggvagötu 15 verður lokað vegna eignatalningar 5., 6. og 7. febrúar Seljasafn lokað 7. febrúar Opið eins og venjulega í Kringlusafni, Gerðubergi, Foldasafni og Sólheimasafni www.borgarbokasafn.is Minjasafn Orkuveitunnar Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal er opið sun. 15-17 og eftir samkomulagi í s. 567-9009 STÓRA SVIÐ SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Í kvöld kl. 20 Fös. 7/2 kl. 20 Lau. 8/2 kl. 20 UPPSELT Fös. 14/2 kl. 20 UPPSELT Lau. 15/2 kl. 19 ath. breyttan sýn.tíma Lau. 22/2 kl. 20 Fös. 28/2 kl. 20 Lau. 1/3 kl. 20 SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Sun. 9/2 kl. 20 Sun. 16/2 kl. 20 Fim. 20/2 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. G. Stiles og A. Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Sun. 9/2 kl. 14 Sun. 16/2 kl. 14 Sun. 23/2 kl. 14 FÁAR SÝNINGAR EFTIR NÝJA SVIÐ MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Fös. 7/2 kl. 20 Lau. 8/2 kl. 20 Fim. 13/2 kl. 20 Lau. 15/2 kl. 20 JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Í kvöld kl. 20 AUKASÝNING Lau. 22/2 kl. 20 AUKASÝNING SÍÐASTA SÝNING KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Sun. 9/2 kl. 20 UPPSELT Sun. 16/2 kl. 20 Fös. 21/2 kl. 20 MYRKIR MÚSIKDAGAR Lau. 8/2 kl. 14 Spunatónleikar Lau. 15/2 kl. 15 Kammertónleikar-Stelkur Sun. 16/2 kl. 15 Flaututónleikar Mið. 19/2 kl. 20 ÞRIÐJA HÆÐIN PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Sun. 16/2 kl. 20 Fös. 21/2 kl. 20 LITLA SVIÐ STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Leikrit með söngvum í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ Frumsýning lau. 8/14 UPPSELT Lau. 15/2 kl. 14 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Fim. 6/2 kl. 20 UPPSELT Fös. 14/2 kl. 20 UPPSELT Lau. 15/2 kl. 20 Mið. 19/2 kl. 20 Lau. 22/2 kl. 16 ath. breyttan tíma Mið. 26/2 kl. 20 Miðasalan, sími 568 8000, er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka dag. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is Miðasalan er opin virka daga á milli 10.00 og 16.00 og laugar- daga 14.00-17.00 og frá kl. 19.00 sýningardaga, en síminn er 562 9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4 dögum fyrir sýningar. 7. feb. ÖRFÁ SÆTI LAUS 8. feb. NOKKUR SÆTI LAUS 14. feb. NOKKUR SÆTI LAUS 22. feb. NOKKUR SÆTI LAUS 22. feb. kl. 23.00 AUKASÝNING 28. feb. Sendum mat til fyrirtækja í hádeginu Enginn sykur - ekkert ger Upplýsingar fyrir hádegi í síma 552 2028

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.