Fréttablaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 30
30 6. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
Ætlaði að verða flugfreyja
Signý Sæmundsdóttir sópransöngkona á afmæli í dag. Hún sér
ekki eftir því að hafa lagt fyrir sig sönginn, þótt hún hafi ætlað
að verða flugfreyja.
45 ÁRA „Ég er með tónleika í
kvöld í Hafnarborg með stöllum
mínum í Fjórum klassískum.
Það er reyndar tilviljun, en
kannski verður einhver afmæl-
isbragur á því,“ segir Signý Sæ-
mundsdóttir sópransöngkona,
en hún á afmæli í dag. Að öðru
leyti verður dagurinn ósköp
venjulegur, segir Signý, en hún
kennir í Nýja tónlistarskólanum.
Hver veit þó nema þrjár klass-
ískar muni syngja fyrir þá
fjórðu afmælissönginn þríradd-
að á tónleikunum í kvöld. Þeir
fara fram í Hafnarborg og eftir
tónleikana gerir Signý ráð fyrir
að gleðjast í faðmi fjölskyldunn-
ar.
Signý hefur komið víða við á
ferlinum, sungið í fjölmörgum
óperuuppfærslum sem og með
sönghópum og á einsöngstón-
leikum. En hvað er eftirminni-
legasta hlutverkið?
„Ég held ég verði að segja að
það hafi verið hlutverk mitt í
Mannsröddinni eftir Poulenc í
Íslensku óperunni haustið 1999,
en þar söng ég einþáttung og
þurfti að standa ein á sviðinu,“
segir Signý.
Signý leiddist út í sönginn og
tók framhaldsnám í söng við
Tónlistarháskólann í Vínarborg
á sínum tíma. En hún ætlaði sér
ekki alltaf að verða söngkona.
„Ég ætlaði alltaf að verða flug-
freyja,“ segir Signý. „Það var
draumur hverrar stúlku á mín-
um yngri árum.“
Að sögn Signýjar er mikil
gróska í söng hér á landi. „Það
eru spennandi tímar,“ segir hún.
„Atvinnutækifærin eru að vísu
ekki til að hrópa húrra fyrir, en
ef maður er duglegur er hægt að
gera mjög margt.“ Hún tekur
undir það að óperusöngvarar
séu að jafnaði miklir egóistar.
Hún segir að þeir verði að vera
það. „Röddin er svo mikill hluti
af sjálfum manni, þannig að
maður verður ósjálfrátt sjálf-
hverfur,“ segir Signý. „Það sem
er stundum talið vera hroki er
oftast bara leið söngvaranna til
þess að gíra sig upp.“
Ef Signý verður í stuði til að
syngja lag þegar hún vaknar á
afmælisdaginn er hún ekki í
vafa um hvaða lag það verður: Í
dag er ég ríkur, í dag er ég glað-
ur, eftir Sigfús Halldórssson.
gs@frettablaðið.is
AFMÆLI
FRAMKVÆMDASTJÓRI „Ég ólst upp í
Hvassaleitinu og Kringlusvæðið
var mitt leiksvæði, þá óbyggt og
skemmtilegt,“ segir Gunnar Örn
Gunnarsson, skrifstofustjóri í iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytinu, en
hann tekur við starfi fram-
kvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins af Úlfari Steindórs-
syni um mánaðamótin. „Ég á hins
vegar ættir að rekja út á land, eins
og flestir. Móðir mín er að norðan
og faðir minn úr Norður-Þing-
eyjarsýslu.“
Gunnar Örn gekk í Hvassaleit-
isskóla. „Ég fór þessa beinu leið og
alltaf án truflana, tók landspróf frá
Gaggó Aust, eða Vörðuskóla eins
og hann var kallaður, og því næst
stúdentspróf frá MS árið 1978.“
Gunnar Örn hóf síðan nám í verk-
fræði við Háskóla Íslands og hélt
að því loknu til Danmerkur og lauk
mastersprófi í DTH í Kaupmanna-
höfn 1984.
Gunnar Örn hefur starfað hjá
iðnfyrirtækjum síðan hann var
strákur en undanfarin ár hefur
hann meðal annars unnið við fram-
leiðslu og fyrirtækjastjórnun,
meðal annars hjá Íslenska álfélag-
inu, Marel og Kísiliðjunni við Mý-
vatn. „Ég tel mig hafa ágæta sýn á
starfsemi fyrirtækja af ýmsum
gerðum og vonast því til að ég geti
látið eitthvað gott af mér leiða hjá
sjóðnum.“ Gunnar Örn segist hafa
verið mjög ánægður í ráðuneytinu
en staða hans hafi verið tímabund-
in og því hafi hann ákveðið að
sækja um hjá Nýsköpunarsjóði
þegar starfið losnaði óvænt.
Gunnar Örn er 45 ára, kvæntur
Olgu Bergljótu Þorleifsdóttur og
saman eiga þau fjögur börn, tvo
drengi 18 og 16 ára og tvær stúlk-
ur 11 og 7 ára. Hann segist leggja
sig fram um að skapa sjálfum sér
og fjölskyldunni tíma þrátt fyrir
annir í starfi. „Ég var hjá Marel í
fimm ár og það var brjálað að gera
enda ógurleg uppbygging í gangi.
Ég komst þá að því að ég gerði
engum gagn með því að hafa ekki
tíma fyrir sjálfan mig.“ ■
Nýráðinn framkvæmdastjóri Nýsköpun-
arsjóðs atvinnulífsins leggur áherslu á
að skapa sér frítíma. Hann syngur með
Mótettukór Hallgrímskirkju og er aðeins
byrjaður í golfinu. Þá er hann mikill
náttúruunnandi þótt hann sé fylgjandi
iðnaði og framkvæmdum.
StöðuveitingVill láta gott af sér leiða
SIGNÝ SÆMUNDSDÓTTIR
Segir að óperusöngvarar verði að vera miklir egóistar ef þeir ætla sér að ná langt.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
GUNNAR ÖRN GUNNARSSON
„Ég er í raun með sex ára verkfræðinám
að baki í stað fimm eins og gengur og ger-
ist en skólinn í Danmörku gerði kröfu um
að fólk sæti tvö ár í mastersnáminu.
Þannig að ef maður hefði verið praktískur
hefði maður farið aðra leið en er bara
sprenglærðari fyrir bragðið.“
LÓÐRÉTT: 1 norðanvindur, 2 eigi, 3 príl, 4 takmarkað, 5 hlass, 6 mjúki, 7 skít,
8 borða, 11 menn, 14 nabbi, 16 stærstan, 18 sleif, 20 forvitin, 21 flugufregn, 23
karlmannsnafn, 26 tjón, 28 stórþorsk, 30 dragi, 31 brodd, 33 nudd.
LÁRÉTT:
1 brellur,
4 hamingjan,
9 meyrir,
10 megni,
12 stöku,
13 kjagar,
15 anga,
17 kæpa,
19 tínir,
20 eklu,
22 ágerðust,
24 hjón,
25 kvenfugl,
17 dysja,
29 ögnin,
32 röð,
34 óska,
35 óhjálpfús,
36 máttlausi,
37 uppspretta.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 viss, 4 gæskan, 9 umbylta, 10 lóna, 12
lurg, 13 andlát, 15 ágæt, 17 alur, 19 aða, 20 stæra, 22 æfrar, 24 vit, 25 góma,
27 erta, 29 salina, 32 Inga, 34 aðal, 35 nauðaði, 36 starði, 37 inna. Lóðrétt: 1
vola, 2 sund, 3 smalar, 4 gyltu, 5 ælu, 6 strá, 7 kaggar, 8 neitar, 11 ónýtir, 14
álag, 16 æðanna, 18 ræma, 20 sveins, 21 ættina, 23 falaði, 26 ósaði, 28 anar,
30 iðin, 31 alda, 33 guð.
KROSSGÁTAFRÉTTIR AF FÓLKI
KR-ingur, Skagamaður og svart-ur maður biðu saman á fæð-
ingardeildinni að fá fréttir af fæð-
ingu barna sinna. Allt í einu kom úf-
inn og sveittur læknir fram og sagði
að allt hefði gerst í einu og nú vissi
enginn hver ætti hvaða barn. Þeir
yrðu sjálfir að leysa úr því. Þegar
þeir komu inn á fæðingarstofuna
gekk KR-ingurinn rakleitt að
dekksta barninu og sagðist eiga það.
Læknirinn dró þetta í efa og spurði
hvort hann væri viss. „Já, ég er al-
veg viss. Ég tek sko ekki sénsinn á
að fá Skagamann.“
Leikstjórinn Róbert Douglas,sem gerði meðal annars
kvikmyndina Maður eins og ég
með Jóni Gnarr í aðalhlutverki,
vinnur nú að gerð heimildar-
myndar, eða „Docu-soap“, sem
nefnist Slá í gegn - Saga úr
Mjóddinni. Myndin gerist að
mestu leyti í verslunarkjarnan-
um í Mjóddinni og hann fylgir
fólki sem þar starfar eftir með
myndavélina að vopni.
Söngsnillingnum Geir Óalfssyni
bregður fyrir í myndinni og
hann tekur að sögn lagið eins
og hans er von og vísa. Myndin
er í vinnslu og nánari upplýs-
ingar er að finna á vef Kvik-
myndafélags Íslands
(www.icelandicfilmcompany.
com).
Jarðarfarir
13.30 Bjarkey Gunnlaugsdóttir, Lang-
holti 5, Akureyri, verður jarðsung-
in frá Akureyrarkirkju.
13.30 Vigfús K. Gunnarsson, löggildur
endurskoðandi, Sóltúni 5, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju.
14.00 Guðni Halldórsson, fyrrverandi
heilbrigiðisfulltrúi, Kirkjubraut 52,
Akranesi, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
15.00 Hjörtur Marinósson, Strandaseli
8, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Seljakirkju.
15.00 Ólafur Bjarnason, múrarameist-
ari, Holtagerði 72, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju.
16.00 Lúðvík Reimarsson frá Heiðatúni,
Vestmannaeyjum, verður jarð-
sunginn frá Landakirkju.
FRÉTTIR AF FÓLKI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
TÍMAMÓT
Magnús Leopoldsson.
Phil Spector.
Kevin Spacey.
1.
2..
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Veistu svarið?
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er
ráðgert að fjöldaframleiða styttuna af
Leirfinni og selja sem minjagrip á
Suðurnesjum.
Leiðrétting
Nýlegar fréttir af lokun versl-unarinnar Top Shop í Lækj-
argötu hafa vakið eftirtekt og
menn verið að velta því fyrir sér
hvað verður um þetta einkar vel
staðsetta 1400 fm húsnæði. Nú
liggur fyrir svar við þeirri
spurningu. Framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar, Karl Th.
Birgisson, sá sér leik á borði og
festi flokknum húsnæðið sem
kosningamiðstöð fyrir komandi
kosningar. Það er fyrirtækið
Baugur sem framlegir Samfylk-
ingunni en húsið er í eigu
ÍSTAK.