Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 11
11FIMMTUDAGUR 6. febrúar 2003 Kröftug sprenging: Eldur í flug- eldagámi PAKISTAN, AP Kröftug sprenging varð þegar eldur kviknaði í flug- eldum í borginni Sialkot í Pakist- an. Tilkynnt hefur verið að að minnsta kosti sautján manns hafi látist, þar á meðal skólabörn. Tug- ir manna slösuðust og eru sjö þeirra enn í lífshættu. Atvikið átti sér stað þegar ver- ið var að setja flugeldana í gáma sem flytja átti til Lahore en ekki er vitað hvað olli því að eldur kviknaði í birgðunum. Margir flugeldanna lentu á þaki og lóð skóla í nágrenninu með þeim af- leiðingum að mannskæður eldur braust þar út. ■ Greiðvikinn lestarstjóri: Bjargaði framtíð skólastúlku TÓKÍÓ, AP Japönsk hraðlest með þúsundir manna innanborðs stöðvaði utan áætlunar til þess að hleypa út ungri stúlku sem var að verða of sein í inntöku- próf í menntaskóla. Að sögn járnbrautarstarfsmanns var lit- ið svo á að framtíð ungrar manneskju væri í húfi en ekki eru fordæmi fyrir greiðvikni af þessu tagi meðal lestarstjóra í Tókíó. Stúlkan hafði lagt tímanlega af stað um morguninn en orðið það á að fara upp í vitlausa lest á brautarstöðinni. Þegar hún uppgötvaði að lestin sem hún var í myndi ekki stoppa fyrr en í miðborg Tókíó varð hún skelf- ingu lostin en með aðstoð annars farþega tókst henni að gera lest- arstjóranum viðvart. Stúlkan náði í prófið á réttum tíma en ekki mátti tæpara standa. ■ Skemmtisiglingu aflýst: Veirusýking meðal farþega HONOLULU, AP Aflýsa varð ferð skemmtiferðaskipsins Sun Princess þegar veirusýking braust út meðal farþega um borð. Skipið var á fimmtán daga siglingu frá Los Angeles til Hawaii en þegar tíu dagar voru liðnir af ferðinni voru um 300 farþegar og áhafnarmeðlimir komnir með slæma magakveisu. Var þá ákveðið að sigla í land í Honululu þar sem farþegarnir gátu tekið flug heim. Skipafé- lagið greiddi fyrir flugið og bauðst til að endurgreiða við- skiptavinum sínum hluta af verði siglingarinnar. Veirusýkingin var ekki talin alvarleg og nokkrir farþeganna urðu eftir um borð í skipinu og sigldu með því til meginlands- ins. Sambærilegar veirur hafa herjað á skemmtiferðaskip í Karíbahafinu og víðar að undan- förnu. ■ ALFREÐ STJÓRNAÐI Alfreð Þor- steinsson, borgarfulltrúi R-listans, stjórnaði fundi borgarráðs í fyrra- dag. Hann hefur tekið við stjórnar- taumum af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi borgar- stjóra. NÝR FRAMHALDSSKÓLI Í SUÐUR- MJÓDD Borgarráð hefur samþykkt að taka upp viðræður við mennta- málaráðuneytið og Kópavogsbæ um byggingu nýs framhaldsskóla í Suður-Mjódd, vestur af íþrótta- svæði ÍR. Þá á sérstakur vinnuhóp- ur að skoða mögulega uppbyggingu annarra framhaldsskóla í borginni. EFASEMDIR UM AÐALSTRÆTI 16 Eitt af síðustu verkum Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrver- andi borgarstjóra, var að stað- festa samning um byggingu hótels og sýningarskála við Aðalstræti. Samningurinn var í gær lagður fyrir borgarráð, sem frestaði stað- festingu hans vegna efasemda um að nægilega vel væri staðið að varðveislu Aðalstrætis 16. BORGARMÁL

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.