Fréttablaðið - 06.02.2003, Page 12
6. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
PEKING, AP Kínverjar segjast ekki
ætla að láta örlög geimflaugarinnar
Columbia hafa áhrif á áætlun sína
um að senda mann út í geiminn áður
en árið er á enda. Að sögn kín-
verskra geimvísindamanna stendur
ekki til að aflýsa eða fresta fyrir-
huguðu geimskoti heldur muni þeir
draga lærdóm af slysinu og fara
grannt yfir öll þau vandamál sem
hugsanlega gætu komið upp.
Kínverjar sendu ómannaða flaug
út í geiminn í desember síðastliðn-
um og kom hún til jarðar heilu og
höldnu í byrjun janúar. Í kjölfarið
lýstu geimvísindamenn því yfir að
stefnt væri að því að senda fyrstu
mönnuðu geimflaugina frá Kína af
stað á þessu ári. ■
Skuldir borgarinnar
innan hættumarka
Skuldastaða borgarinnar hefur aldrei komið til
sérstakrar skoðunar hjá eftirlitsnefnd með fjár-
málum sveitarfélaga. Sjálfstæðismenn ósáttir.
BORGARMÁL Skuldir Reykjavíkur-
borgar hafa fram að þessu ekki
verið taldar komnar á hættumörk
að mati Garðars Jónssonar hjá
eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga, sem
hefur það hlutverk
að fylgjast með
fjármálum allra
sveitarfélaga í
landinu.
Borgarráðsfull-
trúar Sjálfstæðis-
flokksins spurðu
Þórólf Árnason,
nýjan borgar-
stjóra, hvort hann
ætlaði að grípa í taumana hvað
varðaði skuldasöfnun borgarinnar
í tíð Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur. Þeir telja skuldasöfnunina
hafa verið óhóflega. Garðar segir
hins vegar að Reykjavíkurborg
hafi fram að þessu aldrei komið til
sérstakrar skoðunar hjá eftirlits-
nefndinni vegna slæmrar skulda-
stöðu sinnar.
Sjálfstæðismenn segja að
skuldir borgarinnar hafi aukist
um 1.100% síðan árið 1993 og að
heildarskuldir á hvern Reykvík-
ing séu 733 þúsund krónur eða
hærri en í nokkru öðru sveitarfé-
lagi. Inni í útreikningum sjálf-
stæðismanna á skuldum borgar-
innar er tekin staða borgarsjóðs
og fyrirtækja borgarinnar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
fyrrverandi borgarstjóri, hefur
sagt að fjárhagsstaða borgarinnar
sé góð. Ekki sé rétt að taka inn í
reikninginn skuldir fyrirtækja
borgarinnar, sem greiðist af
þeirra eigin tekjustofnum en ekki
af skatttekjum. Borgin sé með
lægstar skuldir á hvern íbúa á
höfuðborgarsvæðinu að frátöld-
um Seltjarnarnesbæ.
Aðspurður um það hvort taka
eigi inn í reikninginn skuldir fyr-
irtækja borgarinnar, líkt og sjálf-
stæðismenn gera, segir Garðar:
„Það segir okkur auðvitað hverjar
heildarskuldir samstæðunnar eru
en það er hins vegar spurning
hvort það sé rétt að draga skuldir
fyrirtækja borgarinnar fram í
þessu samhengi. Það verður að
hafa það í huga að þegar skuldir
fyrirtækja eru teknar með inn í
reikninginn er um að ræða fyrir-
tæki í rekstri og á móti skuldun-
um koma eignir.“
trausti@frettabladid.is
ÓMÖNNUÐ GEIMFLAUG
Kínverjar hafa unnið að geimferðaáætlun
sinni um árabil en geimflaugar þeirra eru
talsvert nýrri en flaugar Bandaríkjamanna.
„Það er spurn-
ing hvort það
sé rétt að
draga skuldir
fyrirtækja
borgarinnar
fram í þessu
samhengi.“
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Inni í útreikningum sjálfstæðismanna á skuldum borgarinnar er staða borgarsjóðs og fyrir-
tækja borgarinnar. Garðar Jónsson, hjá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, segir að
þegar það sé gert verði að taka inn í reikninginn að um sé að ræða fyrirtæki í rekstri og á
móti skuldunum komi eignir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Geimferðaáætlun Kína:
Mönnuð geimflaug
innan árs