Fréttablaðið - 06.02.2003, Síða 19
boði safnsins. Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og
henni lýkur 17. febrúar.
Heimildir nefnist sýning Hafdísar
Helgadóttur í Þjóðarbókhlöðunni. Sýn-
ingin er á vegum Kvennasögusafns. Á
fjórðu hæð er spjaldskrá með sjálfs-
myndum listamannsins frá 1963-1998,
en í sýningarkassa á 2. hæð eru blöð
með myndum af sömu verkum.
Smákorn 2003 nefnist sýning á smá-
verkum 36 listamanna í Baksalnum í
Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Þetta
er í þriðja skipti sem Gallerí Fold efnir til
smáverkasýningar. Eina reglan um gerð
verka er að innanmál ramma sé ekki
meira en 24x30 sentimetrar.
María Kristín Steinsson sýnir olíumál-
verk í Café Cozy, Austurstræti. Sýningin
er opin á opnunartíma Café Cozy.
Margrét Oddný Leópoldsdóttir sýnir
„Storesarnir eru að hverfa“ í gluggum
sínum í Heima er best, Vatnsstíg 9. Sýn-
ingin stendur til 26. febrúar.
Í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, sýna þau
Finnur Arnar Arnarsson, Hlynur Halls-
son og Jessica Jackson Hutchins verk
sín.
Haraldur Jónsson sýnir Stjörnuhverfi og
Svarthol fyrir heimili í galleríinu i8 við
Klapparstíg. Sýningin er opin fimmtu-
daga og föstudaga kl. 11-18, laugardaga
kl. 13-17 og eftir samkomulagi.
Nú stendur yfir samsýning 7 málara í
Húsi málaranna, Eiðistorgi. Allir þessir
málarar eru löngu þjóðkunnir fyrir verk
sín og einkennir fjölbreytni sýninguna.
Þeir sem taka þátt í sýningunni eru:
Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Ein-
ar Þorláksson, Guðmundur Ármann,
Kjartan Guðjónsson, Jóhanna Bogadóttir
og Óli G. Jóhannsson. Sýningin stendur
til 2. mars.
Jón Sæmundur er með myndbandsinn-
setningu í rýminu undir stiganum í gallerí-
inu i8 við Klapparstíg. Sýningin er opin
fimmtudaga og föstudaga kl. 11-18, laug-
ardaga kl. 13-17 og eftir samkomulagi.
Hugarleiftur er yfirskrift á samvinnuverk-
efni bandarísku myndlistarkonunnar Di-
ane Neumaier og gríska rithöfundarins
Christos Chrissopoulos, sem nú er sýnt í
Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Sýning-
in er afrakstur Íslandsferðar þeirra sumar-
ið 2000.
Hitler og hommarnir nefnist sýning þeirra
David McDermott og Peter McGough í
Listasafni Akureyrar. Sýning þeirra fjallar
um útrýmingu samkynhneigðra á nasista-
tímanum.
Aftökuherbergi nefnist sýning í Listasafni
Akureyrar á 30 ljósmyndum eftir Lucindu
Devlin sem teknar voru í bandarískum
fangelsum á tíunda áratugnum.
Hinstu máltíðir nefnist sýning Barböru
Caveng í Listasafni Akureyrar. Viðfangsefni
sýningarinnar eru síðustu máltíðir fanga
sem teknir hafa verið af lífi í Bandaríkjun-
um.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir samsýning
ungra íslenskra og breskra listamanna.
Sýningin ber heitið „then ...hluti 4 - minni
forma“. Sýningin stendur til 2. mars.
Tumi Magnússon sýnir vídeóverk í Kúl-
unni í Ásmundarsafni við Sigtún í
Reykjavík. Safnið er opið alla daga frá kl.
13 til 16. Sýningin stendur til 16. febrúar.
Friðrik Tryggvason ljósmyndari sýnir sex
ljósmyndir á Mokka kaffi. Sýninguna kall-
ar hann Blátt og rautt. Hún stendur til 15.
febrúar og er opin á opnunartíma kaffi-
hússins.
Í Ketilshúsinu á Akureyri stendur yfir
sýningin Veiðimenning í Útnorðri.
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
stendur nú yfir sýning á 124 ljósmyndum
frá árunum 1921-81. Ljósmyndararnir eru
41 talsins, allir þýskir og aðhylltust allir
Bauhaus-stefnuna, sem fólst í því að
myndlist og iðnhönnun ættu að samein-
ast í byggingarlistinni.
Sýningin BókList stendur yfir í anddyri
Norræna hússins. Þar sýnir finnska lista-
konan Senja Vellonen 22 handunnar
bækur. Sýningin stendur til 9. febrúar og
er opin frá kl. 9-17 alla daga nema sunnu-
daga frá kl. 12-17.
Hallgrímur Helgason sýnir í austursal
Gerðarsafns í Kópavogi nokkur málverk
af Grim, teiknimyndapersónunni með
tennurnar stóru. Myndirnar eru unnar
með nýjustu tölvutækni. Safnið er opið
11-17 alla daga nema mánudaga.
FLYING/DYING er heiti sýningar Bjargeyjar
Ólafsdóttur sýnir í vestursal Gerðarsafns
í Kópavogi. Á sýningunni eru ljósmyndir
og vídeóverk, sem meðal annars fjalla um
bílslys sem listakonan lenti sjálf í og
komst nálægt því að deyja. Safnið er opið
11-17 alla daga nema mánudaga.
Húbert Nói sýnir á neðri hæð Gerðar-
safns í Kópavogi. Sýningin, sem nefnist
HÉR OG HÉR / 37 m.y.s., er sérstaklega
unnin fyrir salinn og er innsetning á ol-
íumálverkum sem sýna annars vegar
hluta af salnum og hins vegar málverk
sem hanga þar á veggjum. Safnið er
opið 11-17 alla daga nema mánudaga.
Anna Guðrún Torfadóttir myndlistarmað-
ur sýnir verk unnin með blandaðri tækni í
Scala, Lágmúla 5 í Reykjavík.
BÓKMENNTIR Síðar í þessum mán-
uði verður tilkynnt hver hlýtur
bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs þetta árið. Ellefu rit-
höfundar voru tilnefndir, þar af
þau Álfrún Gunnlaugsdóttir og
Jóhann Hjálmarsson frá Íslandi.
Í kvöld gefst færi á að heyra
sjö af þessum ellefu rithöfund-
um lesa upp úr verkum sínum í
Norræna húsinu í Reykjavík.
Þetta eru þau Pirjo Hassinen frá
Finnlandi, Jørgen Norheim og
Liv Kølzow frá Noregi, Morten
Søndergaard frá Danmörku og
Kelly Berthelsen frá Grænlandi,
auk Íslendinganna Jóhanns og
Álfrúnar.
Rithöfundarnir eru á hring-
ferð um Norðurlöndin í þessu
skyni. Ferðalagið byrjaði í
Helsinki og svo verður endað íá
Stokkhólmi, með viðkomu í
Aabenraa, Eskilstuna, Marie-
hamn, Asker og Þórshöfn auk
Reykjavíkur. Hins vegar er mis-
jafnt hvaða rithöfundar mæta á
hverjum stað.
„Það var byrjað á svona kynn-
ingarferðum í fyrra í tilefni þess
að bókmenntaverðlaunin áttu af-
mæli,“ segir Jóhann Hjálmars-
son ljóðskáld. „Það þótti ástæða
til að endurtaka það núna.“
Jóhann er nýkominn frá
Mariehamn, höfuðborg Álands-
eyja, þar sem hann las upp úr
verkum sínum ásamt fleiri rit-
höfundum.
„Kosturinn við þessar ferðir
er ekki síst sá að fólk hittist og
getur rætt saman. Þetta er mjög
gaman fyrir okkur.“ ■
19FIMMTUDAGUR 6. febrúar 2003
...ljómandi skemmtileg barnasýning!
Hafliði Helgason, Fréttablaðið.
Útfærsla Ólafs Gunnars er ágætlega frumleg
og skemmtileg ... Benedikt búálfur er afar
skemmtilegur söngleikur og stuðla margir þættir
að því, eins og ætíð þegar góð leiklist er á ferðinni!
Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðið.
Miðapantanir í síma 552 3000 frá kl. 13. – 18.
eftir Ólaf Gunnar
Guðlaugsson
Næstu sýningar:
Su. 9/2 kl. 14. örfá sæti
Su. 16/2 kl.14. og kl.17 örfá sæti
Su. 23/2 kl.14. og kl.17 örfá sæti
Hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda
Meira enn3500sýningargestir
Sjö norrænir rithöfundar í Norræna húsinu:
Á hringferð um Norðurlöndin
EINN HINNA TILNEFNDU
Jóhann Hjálmarsson skáld kynnir verk sín í
Norræna húsinu í kvöld ásamt Álfrúnu
Gunnlaugsdóttur og fimm öðrum norræn-
um rithöfundum, sem tilnefndir eru til
bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár.
Íslensk-samísk vináttusamtök stofnuð í dag:
Gleymda þjóðin á
Norðurlöndum
Lau. 1/2 kl. 21, UPPSELT
Fös. 7/2 kl. 21, UPPSELT
Lau. 8/2 kl. 21, UPPSELT
Fim. 13/2 kl. 21, UPPSELT
Fös. 14/2 kl. 21, AUKASÝNING, UPPSELT
Lau. 15/2 kl. 21, UPPSELT
Fim. 20/2 kl. 21, UPPSELT
Fös. 21/2 kl. 21, UPPSELT
Lau. 22/2 kl. 21, nokkur sæti
Fim. 27/2 kl. 21, AUKASÝNING, nokkur sæti
Fös. 28/2 kl. 21, UPPSELT
Lau. 1/3 kl. 21, 100 SÝNING, laus sæti
Fös. 7/3 kl. 21, laus sæti
RÉTTLÆTISMÁL Í hádeginu í dag, á
þjóðhátíðardegi Sama, verða
stofnuð í Reykjavík samísk-ís-
lensk vináttusamtök. Stofnfundur-
inn verður haldinn í Norræna hús-
inu en þaðan verður haldið að Suð-
urgötu 8 þar sem þjóðfáni Sama
verður dreginn að húni í fyrsta
sinn á Íslandi.
Frumkvæði að stofnun samtak-
anna hafa haft þeir Einar Bragi
rithöfundur og Sigurður Helgi
Guðmundsson lögfræðingur.
„Þetta verður vel skipulagður
fundur hjá okkur í Norræna hús-
inu. Fluttur verður í fyrsta sinn
þjóðsöngur Sama í íslenskri þýð-
ingu séra Sigurðar Ægissonar.
Einnig taka Hjalti Rögnvaldsson
leikari og Hilmar Örn Hilmarsson
tónlistarmaður þátt í athöfninni.
Nú þegar hafa um fimmtíu manns
skráð sig sem stofnfélagar, en
þarna eru allir velkomnir.“
Sigurður Helgi er af samískum
ættum og hefur látið sig málefni
þeirra varða.
„Einar Bragi rithöfundur hefur
hins vegar verið aðalsprautan. Það
er mikill eldmóður í honum. Ég er
með samískt blóð í æðum en í hon-
um slær samískt hjarta.“
Mjög illa var farið með Sama á
Norðurlöndunum allt fram á
seinni hluta tuttugustu aldar. Á
síðustu áratugum hefur staða þeir-
ra batnað verulega. Þeir eiga sér
eigið tungumál og hafa sinn eigin
fána og þjóðsöng. Hins vegar
skortir enn á að þeir hafi náð full-
um pólitískum réttindum sem
þjóð.
„Ég held að Thor Vilhjálmsson,
sem er með okkur í þessu, hitti
naglann á höfuðið þegar hann seg-
ir: Þetta er svo fallegt mál.“ ■
SIGURÐUR HELGI GUÐMUNDSSON
OG HUNDURINN BONUS PATER
Sigurður er hægra megin á myndinni.
Leyndarmál rósanna
Sýning föstudag 07.02. kl. 20
Sýning laugard. 15.02. kl. 19
Hversdagslegt kraftaverk
Sýning laugard. 08.02. kl. 19
Sýning sunnud. 09.02. kl. 15
Sýning föstud. 14.02. kl. 20
Allra síðustu sýningar
Barn fær frítt í leikhúsið
í fylgd með fullorðnum.
Uppistand um jafréttismál
Sýning laugard. 08.02. kl. 22.30
Gesturinn
í samvinnu við Borgarleikhúsið
Sýning laugard. 22.02. kl. 19
Sýning sunnud. 23.02. kl. 20
Aðeins þessar sýningar.
Miðasölusími 462 1400
www.leikfelag.is
Ljós
í myrkrinu
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Tónleikar í bláu röðinni í Háskólabíói
í kvöld kl. 19:30
Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
Einleikari: Ásgeir Steingrímsson
Jón Ásgeirsson: Trompetkonsert
Atli Ingólfsson: Orchestra B
Hróðmar I.Sigurbjörnsson: Sinfónía
Jónas Tómasson: Sinfóníetta I
Myrkir músíkdagar