Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 27
KVIKMYNDIR Kanadíska leikkonan
Renée Zellweger bað sérstaklega
um að skoski leikarinn Ewan
McGregor yrði mótleikari sinn í
nýrri rómantískri gamanmynd sem
hún er að fara að leika í. Umboðs-
maður hennar sagði að hún hefði
beðið um McGregor vegna þess að
hann væri „kynþokkafullur, vel
vaxinn og heillandi“.
Myndin heitir „Down With Love“
og kemur McGregor til með að leika
glaumgosa og blaðamann sem fellur
fyrir kvenréttindakonu er leikin er
af Zellweger. Myndin er sögð í anda
rómantískra gamanmynda frá dög-
um Rock Hudson og Doris Day.
„Renée gerir sér grein fyrir því
að hann er giftur maður og tveggja
barna faðir,“ útskýrir umboðsmað-
ur hennar. „Hana langar ekki að
næla sér í hann á þann hátt. Þetta
eru einungis viðskipti. Hún var að
leita að kynþokkafullum manni og
Ewan varð fyrir valinu.“
„Down With Love“ verður frum-
sýnd í lok árs. ■
27FIMMTUDAGUR 6. febrúar 2003
Frábær
gaman/spennumynd
með Eddie Murphy
og Owen Wilson.
Sýningar hefjast
7. febrúar
OG KIPPUM
Í FLÖSKUM
Ef þú vilt vinna þá tekurðu þátt í SMS leik BT, þú færð svar um hæl sem segir þér hvað þú vannst eða
númer hvað þú ert í röðinni að næsta vinningi. Með þátttöku ertu orðinn meðlimur í SMS klúbb BT
Tíundi
hver vinnur!
Sendu SMS skeytið „BT“
á 1415 (Tal) - 1848 (Síminn) Gluggi>nýtt>BT (BTGSM, Rautt, Íslandssími)l í i l i l í i
400
GSM
SÍMAR
TÍUNDI HVER VINNUR - SMS-ið KOSTAR KR. 99,-
SKJÁ
VARPI
1
2000 3
HE
ILD
ARV
ERÐMÆ
TI
VINNING
A
1.000.000
SK
JÁVARPI AÐ
VERÐMÆTI
kr. 249.950
SONY SKJÁVARPI VPL-CX5
Allt að 150“ stærð á skjá • Upplausn SVGA 800x600
450
EKKI STRAX
Hann var ekki alveg tilbúinn til að hleypa börnunum inn í bílinn úr slagviðrinu í gær þessi bílstjóri og sagði að þau yrðu að bíða eftir
kennaranum sínum.
EWAN MCGREGOR
Býr yfir miklum kynþokka að mati Renée
Zellweger.FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Leikkonan Renée Zellweger:
Vill Ewan McGregor
GERÐUR G. BJARKLIND
Getspakari en atvinnumennirnir á RÚV.
Veðbanki RÚV:
Gerður G.
Bjarklind
vann 50.000
VEÐMÁL Skapast hefur hefð fyrir
því að stofna til veðbanka innan-
húss í Ríkisútvarpinu. Síðast var
veðjað grimmt um úrslit leikja í
HM í handbolta og fór svo að
lokum að sjálf Gerður G.
Bjarklind hreppti pottinn, sem
þá var alls 50.000 kr.
Veðbankastjórinn er Logi
Bergmann Eiðsson og hann seg-
ir líf og fjör í kringum þessa
starfsemi. „Við veðjum á allt
sem hægt er að veðja á með
góðu móti. Það merkilega við
þennan HM-pott er að hann
gekk út þrisvar sinnum og alltaf
voru það konur sem unnu, okkur
karlmönnunum til háðungar.
Hér innanhúss er fullt af yfir-
lýstum íþróttaspekúlöntum en
nei, lokapottinn tók Gerður
„Gjóla“ en hún sagði nákvæm-
lega til um hvernig leikur Ís-
lendinga og Júgóslava færi,“
segir Logi.
Framkvæmdin er sú að geng-
ið er um stofnunina og starfs-
menn angraðir þar til þeir borga
í pottinn. Svo er veðjað. „Ef
potturinn gengur ekki út, þá er
haldið partí fyrir peningana. Ég
kýs að kalla þetta menningar-
sjóð Ríkisútvarpsins, mjög
þægilegur sjóður. Í seinni tíð
hefur potturinn alltaf gengið út
þannig að nú eru tekin 30% af
veltu sem renna í sjóðinn. Þó að
þetta sé ríkisstofnun er miklum
mun skemmtilegra í vinnunni en
margur heldur,“ segir Logi
Bergmann, sem aldrei hefur
unnið, segir það ekki við hæfi í
ljósi stöðu sinnar. „Það er nánast
meiri spenna í tengslum við veð-
bankann en leikina sjálfa. Úlfur
Grönvold leikmyndameistari
var næstum farinn yfir um.
Hann var kominn með aðra hönd
á 60 þúsund króna pott í tengsl-
um við leikinn við Pólverja, en
þeir skoruðu þegar tvær sek-
úndur voru til loka leiksins. En
nú er Júróvisjón næst og veð-
bankinn í startholunum.“ ■
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT