Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.02.2003, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 07.02.2003, Qupperneq 8
8 7. febrúar 2003 FÖSTUDAGUR Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Bi llu nd Bi llu nd DANMÖRK Beint leiguflug me› ICELANDAIR 29 . m aí - 4. s ep t. 21 .6 52 21 .6 52 V er › fr á kr. á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. Innifalið er flug og flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman, 24.950 kr á mann. Takmarkað sætaframboð VÆNDI Sjö prósent auglýsinga um skyndikynni á einkamálavefnum einkamal.is virðast snúast um vændi. Þetta er meðal þess sem í ljós kom í lauslegri könnun Tölvu- heims í tengslum við grein í nýjasta tölublaði tímaritsins. Rit- stjóri blaðsins skoðaði auglýsing- ar á vefnum í byrjun janúarmán- aðar og svo aftur nú í byrjun febr- úar. Í báðum tilvikum var hlutfall vændisauglýsinga það sama, en skoðaðar voru auglýsingar frá konum sem tengst höfðu vefnum undanfarinn mánuð í flokki skyndikynna. Skoðaðar voru aug- lýsingar frá konum á öllum aldri, en þær sem falbuðu blíðu sína voru á aldrinum 25 til 42 ára. Tölvuheimur hefur eftir forsvars- mönnum vefsins að reynt sé að sía út vændisauglýsingar, enda séu þær óheimilar á vefnum. Hins vegar treysta forsvarsmenn vefs- ins sér ekki til að hreinsa til á vefnum þar sem að sögn er oftar en ekki talað undir rós, eins og það er orðað. ■ ÍRAKSDEILAN Hún er orðin fræg spurningin sem Madeleine Al- bright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna í ríkisstjórn Bills Clint- ons, spurði þegar henni ofbauð varfærni bandarískra herfor- ingja. „Til hvers að hafa þennan frábæra her sem þið eruð alltaf að tala um ef við getum ekki notað hann?“ Spurningin beindist öðrum fremur að Colin Powell, herfor- ingjanum sem mæltist til þess að efnahagsþvinganir yrðu notaðar til að reka Íraka frá Kúvæt og forðast í lengstu lög að senda her- inn inn. Hann talaði líka gegn loft- árásum í Bosníu og sagði ólíklegt að þær myndu binda enda á borg- arastríðið í Júgóslavíu. Árum saman var Powell mað- urinn sem hélt fram kostum samningaviðræðna og efnahags- þvingana í stað þess að fara í stríð, maðurinn sem andstæðing- ar og efasemdarmenn um herskáa stefnu bandarískra stjórnvalda töldu best til þess fallinn að halda aftur af George W. Bush Banda- ríkjaforseta og haukunum í kring- um hann. Nú fer hann þó fremstur í flokki við að sannfæra þjóðir heims um nauðsyn þess að taka á Írökum af fullri hörku. Powell-kenningin um beit- ingu hersins Í sjálfsævisögu sinni sagði Powell að margir af sinni kynslóð, ungu herforingjanna sem börðust í Víetnam, hefðu svarið að gefa ekki auðveldlega eftir og heyja stríð á vafasömum forsendum sem bandaríska þjóðin skildi ekki. Bandarískum her ætti aðeins að beita þegar brýnir þjóðarhags- munir væru í veði. Þetta virtist hann hafa í huga allt fram á síðustu vikur. Eftir skýrslugjöf Hans Blix og Mo- hameds ElBaradei um gang vopnaeftirlits í Írak og framgang Íraka var komið annað hljóð í skrokkinn. Þá sagði hann að það mætti aldrei útiloka beitingu valds heldur stæði spurningin um hvenær þyrfti að beita því til varnar Bandaríkjunum og heims- byggðinni. Annað sem Powell hefur lagt áherslu á er að byggja upp bandalög. Hann hefur ferðast víða til viðræðna við menn og verið helsta vopn Bandaríkja- manna í viðræðum við þjóðir sem hafa treyst honum betur en mönnum eins og Donald Rums- feld og Dick Cheney. Þess vegna lagði hann áherslu á að ná sam- komulagi um að öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna stæði að aðgerð- um gagnvart Írak með samþykkt- inni í desember. Þá þótti honum nauðsynlegt að mynda breiða samstöðu. Nú segir hann Banda- ríkin geta staðið ein að aðgerðum bregðist Sameinuðu þjóðirnar. Þær dæmi sig sjálfar til áhrifa- leysis. Hvað breyttist og hvenær? Erlendir fjölmiðlar hafa látið að því liggja að það sem hafi ráð- ið breyttri afstöðu Powells hafi ekki verið skýrslur þeirra Blix og ElBaradei heldur bandalag Þjóðverja og Frakka gegn fyrir- sjáanlegri innrás. Viku fyrir fund öryggisráðs- ins þar sem Blix og ElBaradei fluttu skýrslur sínar fundaði ráð- ið um hryðjuverk. Frakkar stýrðu þeim fundi og beindu sjónunum aðallega að Írak. Það og hörð afstaða Frakka og Þjóð- verja gegn innrás reitti Powell til reiði. Hann hafði barist fyrir því að fá Bush til að hafa samráð við Sameinuðu þjóðirnar um að- gerðir gagnvart Írak og þurft að teygja sig langt. Því fannst hon- um sem komið væri í bakið á sér þegar Evrópuríkin tvö vildu halda vopnaeftirliti áfram en ekki láta kné fylgja kviði eins og Powell taldi að hefði verið sam- þykkt í öryggisráðinu í desem- ber. Hvað sem öðru líður virðast andstæðingar innrásar í Írak hafa glatað helsta bandamanni sínum í Bandaríkjastjórn. brynjolfur@frettabladid.is Vaxandi vændi á vefnum einkamal.is: Hlutfall vændis- auglýsinga nú 7% VILL EINHVER ELSKA... Dæmigerð vændisauglýsing á vefnum. Dúfan sem breyttist í hauk Maðurinn sem Þjóðverjar og Frakkar vonuðust til að gæti haldið aftur af herskárri mönnum í Bandaríkjastjórn fer nú fremstur í flokki þeirra sem réttlæta innrás í Írak. Umskiptin, sem hafa átt sér stað á síðustu vikum, hafa komið mörgum á óvart. Í HLUTVERKI HAUKSINS „Hverjir tóku hörðu drifin? Hvert var farið með þau? Hvað er verið að fela? Hvers vegna?“ Powell lét spurningunum rigna yfir öryggisráðið milli þess sem hann sýndi myndir og lék upptökur sem hann sagði sýna fram á brot Íraka gegn samþykktum Sameinuðu þjóðanna. EKKI MEIR, EKKI MEIR Írakar hafa þvælst fyrir vopnaeftirlitsmönnum og ítrekað logið um vopnaeign sína, sagði Powell. Það er kominn tími til að þeir fái ekki lengur notið vafans. BLIX OG ELBARADEI Fyrir nokkrum vikum sagði Powell ekki úti- lokað að vopnaeftirlitsmenn fengju lengri tíma. Það hefur breyst og nú segir hann Íraka koma í veg fyrir að markmið vopna- eftirlitsins náist. FLUGIÐ STÖÐVAÐ Air Lib, næst stærsta flugfélag Frakklands, missti flugrekstrarleyfi sitt á fimmtudag eftir að því mistókst að semja við hollensk fjármála- fyrirtæki um fjármögnun til að komast hjá gjaldþroti. MIKIÐ UM SNJÓFLÓÐ Milli 30 og 40 manns sem voru staddir í veit- ingastað í Flims í Sviss sluppu ómeiddir þeg- ar snjóflóð féll á veitinga- staðinn þannig að hann fór á kaf. Fimm skíða- menn hafa farist í snjóflóðum í Sviss það sem af er vikunni. EVRÓPA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.