Fréttablaðið - 07.02.2003, Page 10

Fréttablaðið - 07.02.2003, Page 10
10 7. febrúar 2003 FÖSTUDAGUR SAMSTILLTAR AÐGERÐIR Allir sem tóku þátt í aðgerðunum voru í hlífðarvestum þar til búið var að tryggja öryggi þeirra á vettvangi. Meintir hryðjuverka- menn í Bretlandi: Sjö hand- teknir LUNDÚNIR, AP Breska lögreglan handtók sjö meinta hryðjuverka- menn í samstilltum aðgerðum í Englandi og Skotlandi í gær. Gerð var atlaga að fólkinu á heimilum í Glasgow, Edinborg, Lundúnum og Manchester. Sex karlmenn og ein kona voru handtekin en ekki hef- ur verið lagt hald á nein hættuleg efni enn sem komið er. Að sögn lögreglu voru aðgerð- irnar þaulskipulagðar og skiluðu tilætluðum árangri. Verið er að fínkemba íbúðirnar þar sem fólk- ið fannst og ekki hægt að útiloka að eitthvað eigi eftir að finnast. Þeir sem eru í haldi verða allir fluttir á öruggan stað í Skotlandi til yfirheyrslu. ■ SAMKEPPNISMÁL Háttsemi Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar hf. sem tengist forvali á viðskiptatæki- færum í flugstöðinni í ágúst í fyrra brýtur í bága við samkeppn- islög. Þetta er niðurstaða Samkeppn- isstofnunar vegna kvörtunar Ís- lensks markaðar hf. Megin- ástæða kvörtunarinnar er forval um aðgang og afnot verslunar- og þjónusturýmis í flugstöðinni sem kvartandi telur ekki samrýmast samkeppnislögum. Misnotkun á markaðsráðandi stöðu segir kvart- andi að komi glögglega í ljós í for- valsgögnum. Í þeim komi fram að verslunarsvið Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar haldi áfram bestu staðsetningu verslunarrýmis og jafnframt verðmætustu vöru- flokkunum. Þetta tvennt komi ekki til úthlutunar samkvæmt for- valsgögnum. Samkeppnisstofnun beinir þeim fyrirmælum til flugstöðvar- innar að fresta forvalinu til 1. júní eða þar til Samkeppnisstofnun hefur verið upplýst um hvaða að- gerða hafi verið gripið til í því skyni að tryggja að starfsemi Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. varðandi útleigu á verslunarrými sé í samræmi við ákvæði sam- keppnislaga. Það er mat samkeppnisráðs að sú skipan sem varð með því að Frí- höfnin á Keflavíkurflugvelli var færð undir eignarhald Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar hafi þegar í upphafi boðið heim hættu á hagsmunaárekstrum og sam- keppnishömlum. Þá er það skoðun samkeppnisráðs að stjórn flug- stöðvarinnar hefði þurft að gera umfangsmiklar breytingar á rekstrarformi flugstöðvarinnar innan þess lagaramma sem starf- að er eftir áður en til forvals á við- skiptatækifærum kom á síðasta ári. Að mati samkeppnisráðs væri æskilegast, með vísan til mark- miðs samkeppnislaga, að skipta rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar upp í tvö aðskilin félög sem ekki lúti sömu stjórn eða fram- kvæmdastjórn. Annað félagið ann- ist rekstur allra mannvirkja flug- stöðvarinnar en hitt félagið annist allan verslunarrekstur sem stjórn- völd telja æskilegt að flugstöðin eða sambærilegur aðili annist. Samkeppnisráð telur einnig hugsanlegt að bjóða út allan versl- unarrekstur í flugstöðinni, þar með talið núverandi fríhafnar- rekstur, til einkaaðila. Ef það yrði gert yrði afgjald greitt til eiganda eða rekstraraðila flugstöðvarinn- ar eftir ígildi þeirra tekna sem flugstöðin hefur nú af fríhafnar- rekstrinum. trausti@frettabladid.is FJÁRMÁL Í fyrsta sinn í sögu Lífeyrissjóðs lækna hafa réttindi verið skert. Á sjóðs- félagsfundi sjóðsins var ákveðið að lækka áunnin réttindi um 9% og eftir breytinguna eru heildar- skuldbindingar hans 4% umfram eignir. Frá árinu 1997 hafa rétt- indin hins vegar þrisvar verið aukin um alls 60%, síðast um 45% árið 2000. Bráðabirgðauppgjör fyrir síðasta ár sýnir að raun- ávöxtun sjóðsins var nei- kvæð um 3,94% og hefur raun- ávöxtun því verið neikvæð síðast- liðin þrjú ár. Erlendar eignir sjóðsins rýrn- uðu mikið á síðasta ári, aðallega vegna verðlækkana á hlutabréfa- mörkuðum og hækkunar gengis íslensku krónunnar. Lækkun á er- lendum eignum varð því 37%. Hins vegar skiluðu innlendar eignir sjóðsins í skuldabréfum 10,7% nafnávöxtun og hlutabréf 17,6%. Meðalraunávöxtun sjóðs- ins síðustu 5 árin er 2,4% og með- alraunávöxtun síðustu 10 ára er 5,4%. Heildareignir Lífeyrissjóðs lækna í árslok 2002 voru 12,9 milljarðar króna og stækkaði sjóðurinn um 141 milljón á árinu. Greidd iðgjöld voru 714 milljónir króna og hækkuðu þau um 13%. Lífeyrissjóðurinn greiddi 297 milljónir króna í lífeyri á árinu og jukust þær um 22% frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur hafa vaxið mik- ið undanfarin ár og má sem dæmi nefna að þær hafa ellefufaldast á síðustu 10 árum. ■ Á VAKTINNI Erlendir hermenn eru tíð sjón á götum Kabúl. Friðargæsluliðar: Verða að vera til staðar KABÚL, AP Friðargæslusveitir verða að vera til staðar í Kabúl, höfuðborg Afganistan, næstu tvö til þrjú árin hið minnsta, segir Hilmi Akin Zorlu, yfirmaður fjöl- þjóðasveitanna sem eiga að tryggja öryggi í landinu. Zorlu segir að ef friðargæsluliðið yfir- gefur svæðið fyrr geti það leitt til ringulreiðar í höfuðborginni og sett ríkisstjórnina í vandasama stöðu. Um 4.000 friðargæsluliðar eru í höfuðborginni. Nokkrar sprengjuárásir og eldflaugaárásir hafa verið gerðar á borgina en Zorlu segir hana samt öruggari stað en áður. ■ BORGARMÁL Skipulagsvinna vegna uppbyggingar á Mýrargötusvæð- inu, þar sem gamli slippurinn var, hefst á þessu ári. Í aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir allt að 200 íbúðum á svæðinu. Borgarráð hefur samþykkt til- lögu skipulags- og byggingarsviðs og hafnarstjóra um að stofna sér- stakan stýrihóp, sem á að undirbúa skipulagsvinnuna og hafa yfirum- sjón með henni. Í hópnum eiga sæti Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og bygging- arnefndar, Árni Þór Sigurðsson, formaður hafnarstjórnar, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Skipulagssvæðið nær frá fyrir- huguðu tónlistar- og ráðstefnuhúsi við Faxagarð og vestur að Granda. Auk þess að færa og tvöfalda Mýr- argötu er gert ráð fyrir íbúða- byggð á svæðinu, eins og áður sagði. Steinunn Valdís segir að upp- bygging á svæðinu ætti að geta hafist innan fimm ára. Hún segir að hvorki sé búið að ákveða hversu mörg hús verði rifin né hvaða. Því sé enn óljóst hvort slippfélagshús- ið og hraðfrystistöðin muni stan- da. Óskað hefur verið eftir því að breyta hraðfrystistöðinni í íbúðar- húsnæði, en ekkert er búið að ákveða í þeim efnum. Í aðalskipulaginu segir að á hafnarsvæði miðborgarsvæðis skuli samhæfa miðborg og fjöl- breytta, hefðbundna hafnarstarf- semi. Þá er gert ráð fyrir breikkun Mýrargötu. ■ Forval brýtur í bága við samkeppnislög Samkeppnisstofnun hefur beint þeim tilmælum til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar að fresta forvali á viðskiptatækifærum. Íslenskur markaður hf. kvartaði. Samkeppnisráð telur æskilegast að skipta rekstri flugstöðvarinnar upp í tvö aðskilin félög. FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Það er mat samkeppnisráðs að sú skipan sem varð með því að Fríhöfnin á Keflavíkurflug- velli var færð undir eignarhald Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hafi þegar í upphafi boðið heim hættu á hagsmunaárekstrum og samkeppnishömlum. Lífeyrissjóður lækna lækkar áunnin réttindi um 9%: Lífeyrisréttindi lækna skert LANDSPÍTALINN VIÐ HRINGBRAUT Lífeyrissjóður lækna greiddi 297 milljónir króna í lífeyri á síðasta ári og jukust þær um 22% frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur hafa vaxið mikið undanfarin ár og má sem dæmi nefna að þær hafa ellefufaldast á síðustu 10 árum. Skipulagsvinna vegna Mýrargötusvæðis hefst á árinu: Gert ráð fyrir 200 íbúðum GAMLA HRAÐFRYSTISTÖÐIN Á MÝRARGÖTU Óskað hefur verið eftir því að breyta hraðfrystistöðinni í íbúðarhúsnæði, en ekkert er búið að ákveða í þeim efnum. Samkvæmt hugmyndum eignarhaldsfélags um Mýrargötu 26 frá því í nóvember sl. á að breyta frystistöðinni í 43 íbúðir. SVONA ERUM VIÐ FJÖLDI ÍBÚA Í HVERFUM REYKJAVÍKUR* 101: 14.652 103: 1.757 104: 9.362 105: 15.298 107: 9.372 108: 12.125 109: 12.376 110: 9.148 111: 9.159 112: 17.492 113: 848 160: 753 *1. desember 2002. Heimild: Hagstofa Íslands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.