Fréttablaðið - 07.02.2003, Side 11
11FÖSTUDAGUR 7. febrúar 2003
EVRÓPA
Reykjavík • Akureyri
Selfoss • Reykjanesbær
www.blomaval.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
01
63
02
/2
00
3
útsölulok um helgina
Rósatilboð, 10 stk.
990kr.
STJÓRNVÖLD VÖRUÐ VIÐ Breskir
embættismenn hafa varað stjórn-
völd við því að dómstólar myndu
ógilda tilraunir stjórnvalda til að
segja sig frá alþjóðlegum skuld-
bindingum um meðferð hælisleit-
enda. Tony Blair forsætisráð-
herra hefur látið í veðri vaka að
hann grípi til þess ráðs til að
draga úr fjölda hælisleitenda í
Bretlandi.
HUNGURVERKFALL Í LAUNADEILU
25 forystumenn verkalýðsfélaga í
risastórri járnverksmiðju í Síber-
íu hafa farið í hungurverkfall til
að knýja á um hærri laun og
lengri frítíma. Þeir krefjast
einnig upplýsinga um laun stjórn-
enda.
ÓMETANLEG MENNINGARVERÐMÆTI
Bandarískir sérfræðingar eru að aðstoða
Íraka við að meta áhrif stíflunnar og reyna
að finna leiðir til að bjarga rústunum.
Fornar rústir:
Menningar-
verðmætum
sökkt
LOS ANGELES, AP Óttast er að stífla
sem fyrirhugað er að byggja við
ána Tígris í Írak muni færa á kaf
rústir merkrar menningarborgar
frá tímum Assýríumanna. Búið
var í borginni Assur í yfir 1000 ár
eða þar til Babýlóníumenn lögðu
hana í rúst árið 614 e.Kr en heiti
assýrska menningarsamfélagsins
er dregið af nafni borgarinnar.
Sumir vilja meina að Írakar
hafi neyðst til þess að byggja stífl-
una vegna efnahagslegra tak-
marka sem þeim voru sett í kjölfar
Persaflóastríðsins. Þeir hafa orðið
að auka matvælaframleiðslu í
landinu og eina leiðin til þess virð-
ist vera að reisa fleiri stíflur. ■
Rússneskar geimferðir:
Ekki fleiri
geimtúrista
MOSKVA, AP Rússar hafa ákveðið að
hætta að bjóða fólki far með geim-
förum sínum gegn ríflegum
greiðslum. Auðmenn sem hafa
viljað komast út í geiminn hafa
reitt fram fúlgur fjár til að láta
draum sinn verða að veruleika og
hefur það fé að hluta staðið undir
kostnaði við geimferðir Rússa.
Ákvörðun þeirra um að loka fyrir
þessa geimferðamenn kostar þá
andvirði um þriggja og hálfs
milljarðs íslenskra króna.
Rússar tóku þessa ákvörðun í
kjölfar þess að bandaríska geim-
ferjan Columbia fórst þegar hún
var að koma inn til lendingar. ■
ÞRÍR LÁTNIR VEGNA
ÖLVUNARAKSTURS Ölvaður öku-
maður í New York ók á ljósa-
staur og ruddist því næst í gegn-
um hóp gangandi vegfarenda
með þeim afleiðingum að kona,
unglingsstúlka og eins árs gam-
all drengur létust. Maðurinn hélt
áfram akstrinum nokkra stund
en lenti loks á vörubíl og velti
bílnum. Hann liggur nú þungt
haldinn á sjúkrahúsi.
SKOTÁRÁS Í SKÓLA Fjórtán ára
gamall drengur tók upp skamm-
byssu og skaut ítrekað úr henni á
skólalóð í Ranum-gagnfræðaskól-
anum í Colorado. Skólafélagar
drengsins hlupu inn í skólann og
varð enginn fyrir skoti. Pilturinn
á yfir höfði sér ákæru fyrir til-
raun til morðs. Ranum er aðeins
35 km frá Columbine, skólanum
þar sem tveir nemendur myrtu
13 manns árið 1999.
N-AMERÍKA