Fréttablaðið - 07.02.2003, Síða 18
18 7. febrúar 2003 FÖSTUDAGURKÖRFUBOLTI
IVERSON
Brian Scalabrine (21), leikmaður New Jers-
ey Nets, reynir að stöðva Allen Iverson,
leikmann Philadelphia 76ers, í leik liðanna
í fyrrakvöld. Nets vann leikinn örugglega
með 111 stigum gegn 85. Iverson skoraði
28 stig í leiknum.
HAMM
Mia Hamm var valin knattspyrnukona árs-
ins á síðasta ári af Alþjóðaknattspyrnusam-
bandinu. Brasilíumaðurinn Ronaldo vann í
karlaflokki.
Landsleikur Íslands og
Bandaríkjanna:
Mia Hamm
í hópnum
FÓTBOLTI Mia Hamm, sem valin
var knattspyrnukona ársins í
fyrra af Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu (FIFA), er í lands-
liðshóp Bandaríkjanna sem
mætir Íslendingum í vináttuleik
þann 16. febrúar næstkomandi.
Landsliðsþjálfari Bandaríkj-
anna, April Heinrichs, hefur
valið 24 leikmenn í æfingahóp
fyrir leikinn en hópurinn verður
síðan skorinn niður í 18 leik-
menn fyrir leikinn.
Leikurinn fer fram á Black-
baud leikvanginum í Charleston,
Suður-Karólínu. ■
ÍÞRÓTTIR Í DAG
18.00 Sýn
Sportið með Olís
19.00 Egilshöll
Reykjavíkurmótið knattspyrnu
(KR-Þróttur R.)
19.30 Sýn
Football Week UK
(Vikan í enska boltanum)
20.00 Austurberg
Handbolti karla (ÍR-HK)
20.00 Framhús
Handbolti karla (Fram-FH)
20.00 Ásvellir
Handbolti karla
(Haukar-Víkingur)
20.00 KA-heimilið
Handbolti karla (KA-Grótta/KR)
20.00 Selfoss
Handbolti karla (Selfoss-Valur)
20.00 Varmá
Handbolti karla (UMFA-Þór Ak.)
20.00 Vestmannaeyjar
Handbolti karla (ÍBV-Stjarnan)
21.00 Egilshöll
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu
(Valur-Léttir)
22.35 Sýn
Gillette-sportpakkinn
FÓTBOLTI Þjóðverjinn Thomas
Hitzlsperger, samherji Jóhannes-
ar Karls Guðjónssonar hjá Aston
Villa, segist hafa átt sinn besta
leik í langan tíma í 3:0 sigri liðs-
ins gegn Blackburn á sunnudag
„Við höfum leikið með þrjá
menn á miðjunni og mér líður vel
við hliðina á Jóhannesi og Gareth
[Barry]. Jóhannes hefur slegið í
gegn hjá áhangendum liðsins síð-
an hann kom til okkar. Hann hef-
ur einnig kveikt neista hjá mér
og hinum leikmönnum liðsins.
Hann hefur góða kosti. Hann er
sterkur, hann tæklar og hefur
góðan hægri fót. Það er ekki
slæm blanda og það er gott að
spila með honum,“ sagði hinn 21
árs gamli Hitzlsperger á heima-
síðu Aston Villa.
Næsti leikur Aston Villa er á
útivelli gegn Fulham á laugar-
dag. ■
Thomaz Hitzlsperger, leikmaður Aston Villa:
Jóhannes Karl
kveikti neistann
JÓHANNES KARL
Jóhannes Karl Guðjónsson er vinsæll á
meðal áhangenda Aston Villa.
Gerard Houllier svekktur:
Verðum
að nýta
færin
FÓTBOLTI Gerard Houllier, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, var gífur-
lega svekktur eftir 2:0 tap liðsins
á heimavelli gegn Crystal Palace í
5. umferð ensku bikarkeppninnar
í fyrrakvöld.
„Við áttum slæman dag. Við
hefðum átt að klára leikinn í fyrri
hálfleik en við klúðruðum allt of
mörgum færum. Við verðum að
nýta þessi færi. Ef við gerum það
ekki er alltaf hætta á að okkur
verði refsað fyrir það í skyndi-
sóknum, sem er nákvæmlega það
sem gerðist,“ sagði Houllier. ■
HANDBOLTI Tvær umferðir verða
leiknar í Essó-deild karla í hand-
bolta um helgina eftir langt hlé
vegna heims-
meistarakeppn-
innar í Portúgal.
Fyrri umferðin
og sú 18. í röðinni
verður leikin í
kvöld klukkan 20
en sú síðari á
sunnudag.
Í kvöld mæt-
ast meðal annars
efsta og neðsta lið deildarinnar, Val-
ur og Selfoss, á heimavelli Selfyss-
inga. Þá er búist við hörkuleik í
Breiðholti þar sem næstefsta lið
deildarinnar, ÍR, tekur á móti HK,
sem situr í sætinu fyrir neðan. ■
HANDBOLTI
Það verður hart barist í Essó-deild karla í
kvöld. Efsta lið deildarinnar, Valur, sækir
Selfoss heim.
STAÐAN Í DEILDINNI
Lið L S
Valur 17 27
ÍR 17 25
HK 17 24
Haukar 16 23
KA 16 23
Þór 17 20
FH 17 20
Grótta/KR 17 19
Fram 17 19
Stjarnan 17 12
Afturelding 17 10
ÍBV 17 10
Víkingur 17 4
Selfoss 17 0
LEIKIR
KVÖLDSINS
Selfoss-Valur
KA-Grótta/KR
ÍR-HK
ÍBV-Stjarnan
Haukar-Víkingur
Fram-FH
Afturelding-Þór
Essó-deild karla í kvöld:
Efsta liðið mætir
því neðsta
UNITED
Manchester United á harma að hefna
gegn nágrönnum sínum í Manchester City.
Gary Neville,
leikmaður Man.Utd.:
Fullir ein-
beitingar í
nágranna-
slag
FÓTBOLTI Gary Neville, leikmaður
Manchester United, segir að ekk-
ert annað en sigur komi til greina
í nágrannaslagnum gegn
Manchester City í ensku úrvals-
deildinni á sunnudag.
City vann United í síðustu
rimmu liðanna á Maine Road með
þremur mörkum gegn engu og á
United, sem er í öðru sæti deildar-
innar, því harma að hefna. „Við
verðum fullir einbeitingar gegn
City vegna þess að við þurfum á
sigri að halda. Þetta er í okkar
höndum. Við eigum eftir að mæta
Arsenal aftur þannig að ef við
vinnum alla leikina sem eftir eru
verðum við meistarar,“ sagði
Neville. ■
Verður Keflavík tvö-
faldur bikarmeistari?
Leikið verður í úrslitum bikarkeppninnar í körfubolta á morgun. Snæ-
fell mætir Keflavík í karlaflokki og ÍS mætir Keflavík í kvennaflokki.
Landsliðsþjálfarar Íslands spá báðir Keflvíkingum sigri í leikjunum.
KÖRFUBOLTI „Maður getur vel unnt
Snæfellsliðinu að vera komið aftur
í bikarúrslitaleik eftir 10 ára fjar-
veru. Auðvitað veltur töluvert á
því hvernig þeir koma stemmdir í
leikinn og hvernig leikurinn þró-
ast,“ segir Friðrik Ingi Rúnarsson,
þjálfari karlalandsliðsins, um leik
Snæfells og Keflavíkur.
„Fyrir aðra en stuðningsmenn
Keflavíkur eru margir sem vonast
til þess að Snæfellsliðið standist
álagið sem fylgir því að spila til úr-
slita í Laugardalshöll. Þeir fóru
flatt á því fyrir 10 árum. Ég vonast
til að Snæfellsliðið komi með rétt
spennustig í leikinn með það að
leiðarljósi að njóta dagsins og spila
sinn besta körfubolta. Geri þeir
það koma þeir alveg örugglega til
með að stríða Keflvíkingunum
verulega. Þeir eru með rosalega
mikið baráttulið. Hlynur Bærings-
son og Clifton Bush er magnaðir
leikmenn og taka gjarnan mjög
mikið af fráköstum og eru góðir
varnarmenn. Þeir eiga fína skytt-
ur, en ég held að það sé algjört lyk-
ilatriði fyrir Snæfellinga að bak-
verðirnir nái sér vel á strik,“ segir
Friðrik.
„Ég hallast hins vegar að því að
Keflvíkingar vinni öruggan sigur.
Þeir eru með miklu breiðari hóp og
geta keyrt nánast á öllum 10 leik-
mönnunum án þess að liðið veikist
mjög mikið. Þrátt fyrir hetjulega
baráttu held ég að Snæfell nái ekki
að koma í veg fyrir að Keflavík
vinni nokkuð þægilegan sigur.“
ÍS-Keflavík
„Ég held að þetta verði
skemmtilegur leikur. Keflavík var
með yfirburðastöðu lengi framan
af Íslandsmóti en hefur nú aðeins
misstigið sig. Það geta greinilega
allir unnið alla,“ segir Hjörtur
Harðarson, þjálfari kvennalands-
liðsins, um leik ÍS og Keflavíkur.
„ÍS er í botnsæti í deildinni en
liðið styrktist mikið með tilkomu
Öldu Leifar Jónsdóttur þannig að
þær sigla upp á við og geta alveg
bitið frá sér. Það er spurning hvaða
hugarfar Keflavík kemur með í
þennan leik. Ef þær spila sinn allra
besta leik þá myndi ég telja þær
sigurstranglegri en það getur samt
allt gerst. Ætli ég spái samt ekki
Keflavík 10 stiga sigri,“ segir
Hjörtur.
„Það mæðir mjög mikið á Öldu
Leif og Meadow Overstreet. Yfir-
leitt skora þær mest. En það getur
allt gerst á svona degi, það koma
alltaf upp einhverjar nýjar stjörn-
ur í svona leikjum.“ ■
GUÐJÓN SKÚLASON
Guðjón Skúlason, leikmaður Keflavíkur, verður í sviðsljósinu í dag. Keflavík er í fjórða sæti
Intersportdeildarinnar en Snæfell í því áttunda. Keflvíkingar unnu Snæfellinga stórt í bikar-
úrslitum fyrir 10 árum.
ÍS GEGN KR
ÍS er í neðsta sæti 1.deildar kvenna en
Keflavík í því efsta.
Robert Pires, leikmaðurArsenal, hefur verið valinn í
franska landsliðið fyrir vináttu-
leik gegn Tékklandi þann 12.
febrúar. Pires, sem er nýkominn
á fullt aftur eftir erfið meiðsli,
lék síðast með landsliðinu fyrir
ári síðan gegn Rúmeníu.
MOLAR