Fréttablaðið - 07.02.2003, Síða 22
22 7. febrúar 2003 FÖSTUDAGUR
HALF PAST DEAD b.i. 16 8 og 10.15 JAMES BOND b.i. 12 ára kl. 5 og 10.10
SPY KIDS 2 kl. 3.45, 5.50 og 8
ANALYZE THAT kl. 8 og10 HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 5
JUWANNA MANN 4, 6, 8 og 10 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4
THE HOT CHICK kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 bi. 12
Kl. 4 og 8 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 9
kl. 5.50 HAFIÐ
kl. 6 DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
kl. 6 og 10 8 MILE
8.05 og 11IRREVERSIBLE e. texti b. 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8 og 10
kl. 6, 8 og 10STELLA Í FRAMBOÐI
Sýnd kl. 6 og 8 b.i.14.ára
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikarinn Kevin Spacey og EltonJohn héldu stjörnufanstónleika í
London á miðvikudagskvöldið til
þess að safna fé til
uppbyggingar Old
Vic-leikhússins.
Tónleikarnir voru
einnig haldnir í til-
efni þess að
Spacey hefur
ákveðið að taka að
sér að vera list-
rænn stjórnandi
leikhússins. Söngkonan Courtney
Love stal svo auðvitað senunni þeg-
ar hún tók lagið ásamt Elton John
klædd í Daffy Duck-búning. Áður
en laginu lauk var hún komin á und-
irfötin ein. Hún fór á svið aðeins
nokkrum klukkustundum eftir að
lögreglan leysti hana úr haldi vegna
láta í flugvél á leið til landsins.
Dómarinn sem dæmir í máliCatherine Zeta-Jones og Mich-
ael Douglas segir að hjónavígslur
séu gerðar fyrir almenning. Hjónin
höfðuðu mál gegn breska blaðinu
„Hello!“ fyrir að birta myndir af
brúðkaupi sínu í leyfisleysi. Þau
krefjast tveggja milljóna punda í
skaðabætur. Þessi skilgreining dóm-
arans á hjónavígslum þykir benda
til þess að hjónin geti tapað málinu.
Plötuverslanir í Bretlandi hafastaðfest að sala á tónlist popp-
kóngsins Michael Jackson hafi
aukist eftir að um-
deild heimildar-
mynd um hann var
sýnd þar í landi.
Sala plötunnar
„Thriller“ fimm-
faldaðist daginn
eftir þáttinn. Talið
er að um 14 millj-
ónir manna hafi
horft á heimildarmyndina, sem
breski sjónvarpsmaðurinn Martin
Bashir gerði. Hann fylgdi söngvar-
anum hvert fótmál í átta mánuði
og bjó meðal annars á Neverland-
búgarði hans. Jackson segist vera
sár út í sjónvarpsmanninn og
finnst sem hann hafi verið svikinn.
Sýnd kl. 5, 8 og 10 b.i.16.ára
Sýnd í lúxus kl. 5 og 8
KVIKMYNDIR
Merkilegt hvað við föllum auð-veldlega fyrir alls kyns
svikahröppum, hvort sem er í bíó-
inu eða raunveruleikanum (þó
vonandi ekki jafn auðveldlega og
Hollendingarnir sem keyptu sér
jarðarskika á tunglinu og gerðu
enga athugasemd fyrr en þeir
fengu ekki afsal). Við föllum í það
minnsta kylliflöt fyrir 16 ára gutt-
anum sem strýkur að heiman og
tekur að framfleyta sér á kostnað
flugfélaga áður en hann tekur upp
á því að leika lækni og lögmann.
Alvöru athafnaskáld.
Catch Me if You Can er auðvit-
að léttmeti en afar skemmtilegt
léttmeti. Tom Hanks er skemmti-
legri en hann hefur verið í fjölda-
mörg ár í alvarlegri myndum,
sýndi auðvitað að hann gæti þetta
enn í sumum senunum í Cast
Away. Leonardo diCaprio, sem er
búinn að vera óþolandi í mörg ár,
smellpassar svo í hlutverk glaum-
gosans og svikahrappsins sem
skemmtilega leiðinlega löggan
gerir sitt besta til að koma bak við
lás og slá. Ég held þó samt að
Martin Sheen sé skemmtilegastur
í sínu hlutverki.
Sætar stelpur, skemmtilegir
karlar, grín og annað það sem þarf
til að rífa okkur upp eftir þennan
kuldahroll.
Brynjólfur Þór Guðmundsson
CATCH ME IF YOU CAN:
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Leikarar: Leonardo diCaprio, Tom Hanks.
Alvöru
athafnaskáld
„Enginn sprelliþáttur“
Í kvöld hefur göngu sína á Skjá Einum tónlistarþátturinn „Popp & Kók“. Um-
sjónarmenn hans eru Birgir Nielsen úr Landi & Sonum og Ómar Suarez úr
Quarashi. Ekki augljósasti poppkokteill í heimi.
SJÓNVARP „Við komum úr ólíkum
sjávarþorpum,“ segir Birgir Niel-
sen um sig og samstarfsmann sinn
Ómar Suarez, en þeir ætla að fjal-
la um tónlist á Skjá Einum í þætt-
inum „Popp & Kók“. „Okkur kem-
ur mjög vel saman, mér líst bara
vel á strákinn. Hann er eiginlega
bara eins og ég var búinn að ímyn-
da mér að hann væri. Það er bara
jákvætt.“
Birgir Nielsen hefur vafrað um
poppland í gegnum árin ásamt
sveit sinni Landi & Sonum á með-
an Ómar lætur rímið flæða með
Quarashi. Þrátt fyrir að koma úr
ólíkum áttum eiga þeir það báðir
sameiginlegt að vera íslenskir tón-
listarmenn sem hafa freistað gæf-
unnar á Bandaríkjamarkaði.
Þeir félagar kynntust fyrst fyr-
ir mánuði síðan. Þeir virðast
ófeimnir að gera út á það hversu
ólíkir persónuleikar þeirra virðast
vera. Tónlistarsmekkur þeirra fé-
laga er víst afar ólíkur. Í auglýs-
ingu fyrir þáttinn má til dæmis sjá
Birgi í sprelligosahlutverkinu á
meðan Ómar fylgist með vopnað-
ur vanþóknunarsvip. Eftir að hafa
hrist hausinn yfir hamaganginum
í trommuleikaranum gefst hann
upp og opnar kókflösku með vin-
stri augntóttinni.
„Veistu, ég held að þessar aug-
lýsingar gefi ekki alveg rétta
mynd af þættinum. Við erum ekki
að fara að gera einhvern sprelli-
þátt. Við ætlum bara að vera við
sjálfir en samt að reyna að hafa
svolítið létt yfirbragð yfir þessu.
Við erum samt báðir svona frekar
djúpar týpur. Í auglýsingunni er
mín týpa þessi „gúddí“-gæi sem
mætir einn á Nasa og reddar sér
inn í hópinn á dansgólfinu.“
Í fyrsta þættinum, sem hefst
kl. 20.30 í kvöld, fá áhorfendur
meðal annars að sjá viðtal við
„atvinnukrimmann“ Móra. Þar
mun stafræn þoka hylja andlit
hans. Kíkt verður í heimsókn til
tónlistarmanns og plötusafn hans
grandskoðað. „Við erum líka með
lið þar sem litið er um öxl. Í kvöld
verður til dæmis viðtal við Felix
Bergsson og myndbandið „Púla“
með Greifunum frá 1988 sýnt.“
Áhorfendur geta svo síðar átt
von á því að þeir félagar skelli sér
á tónleika, skyggnist bak við tjöld-
in við gerð myndbanda og heim-
sæki tónlistarmenn í hljóðver.
Þættirnir verða á dagskrá
Skjásins öll föstudagskvöld fram
eftir vori. Hver þáttur er um hálf-
tími að lengd. „Popp & Kók“ er
framleiddur af Filmus.
biggi@frettabladid.is
POPP & KÓK
Birgir Nielsen segir að áhersla verði lögð á að fjalla um íslenska tónlist. Erlend mynd-
bönd verða því sjaldséðir hvítir hrafnar. „Til þess að byrja með ætlum við að vera aðal-
lega með íslenskt og sýna það sem er að gerast hérna heima. Auðvitað, ef það koma
hingað erlendar hljómsveitir og svona, þá fjöllum við um það. Það er bara orðið tíma-
bært að sjónvarpsþáttur reyni að sinna því sem er að gerast hérna heima.“
VILL BANNA EINRÆKTUN
Leikarinn Kevin Kline heilsar hér Dianne Feinstein öldungardeildarþingmanni eftir ráð-
stefnu sem haldin var um bann við einræktun. Kline slóst í hópinn með þingmönnum til
að berjast fyrir því að klónun verði bönnuð með lögum.
Sendu SMS skeytið „BT“
á 1415 (Tal) - 1848 (Síminn) Gluggi>nýtt>BT
(BTGSM, Rautt, Íslandssími) - SMS-ið kostar 99 kr.
TÍUNDI HVER VINNUR!
2000
SHAKIRA
Poppsöngkon-
an Shakira frá
Kólumbíu sést
hér á tónleik-
um er haldnir
voru í bænum
Laredo í Texas.
Ljósmyndarinn
í Mjódd
er fluttur að Langarima 21
(áður Ljósmyndastofan Grafarvogi )
Fermingarmyndatökur
Nokkrir tímar lausir
Sími 557 9550
GSM 663 2070