Fréttablaðið - 07.02.2003, Side 30
Óbreyttir þingmenn veltumjög vöngum á Alþingi í gær
yfir háttsemi Halldórs Blöndal,
forseta Alþingis og fyrsta þing-
manns Norðurlands eystra. For-
seti tók snerru
við Össur Skarp-
héðinsson, for-
mann Samfylk-
ingarinnar, um
samkeppnisstöðu
fyrirtækja á
landsbyggðinni.
Kosningalykt var
í lofti og hiti í
umræðum. Athygli óbreyttra
þingmanna vakti að forseti Al-
þingis, sem svo mjög hefur brýnt
fyrir þingmönnum að virða
strangar reglur þingsins, meðal
annars að kalla ekki úr sal meðan
ræður eru fluttar, varð uppvís að
því að kalla ótt og títt fram í fyr-
ir Össuri. Engar hlaut forseti Al-
þingis þó skammirnar eða gula
spjaldið frá sitjandi forseta.
30 7. febrúar 2003 FÖSTUDAGUR
Amerískar pönnu-
kökur í rúmið
Ívar Örn Sverrisson leikari er 26 ára í dag. Hélt upp á afmælið í gær.
Þarf að fljúga norður í dag. Fékk amerískar pönnukökur í rúmið.
26 ÁRA Þar sem Ívar Örn Sverr-
isson, afmælisbarn dagsins, þarf
að fljúga til Akureyrar í dag hélt
hann upp á afmælið í gær. Hann
ákvað því að sleppa körfubolta-
æfingu og spænskutíma og fór
með konu sinni á leikritið „Tattú“
í Nemendaleikhúsinu.
„Ég er að fara að sýna fyrir
norðan. Þar sem veðrið er svolít-
ið óstöðugt þessa dagana þarf ég
að taka flug snemma svo ég nái
sýningartíma,“ segir afmælis-
barnið, sem fer með eitt aðalhlut-
verka í „Hversdagslegu krafta-
verki“, fjölskylduævintýri sem
sýnt er hjá Leikfélagi Akureyrar.
Það hefur verið nóg að gera
hjá Ívari Erni síðan hann útskrif-
aðist úr Listaháskólanum í vor.
Hann sló meðal annars í gegn í
Hamlet hjá LA og síðastliðinn
fimmtudag fékk hann stöðu í
Þjóðleikhúsinu. Aðspurður hvort
það sé erfitt fyrir unga leikara að
fá stöðu í „stóru leikhúsunum“
sagði Ívar Örn: „Það er misjafnt
og fer eftir því hvað er að gera
og hversu mikil þörf er fyrir
unga leikara í hlutverk. Þetta fer
oft eftir aldri og eftirspurn, eins
og allt í þessu þjóðfélagi gengur
út á.“
Leiklistarferill Ívars Arnars
hófst þegar hann var ungur
strákur. Hans fyrsta hlutverk
var í „Landi míns föður“ sem
Kjartan Ragnarsson leikstýrði
og sett var upp í gamla Iðnó.
Hann tók þátt í ýmsum sýning-
um en ákvað að hvíla sig á leik-
listinni og mennta sig. Fór með-
al annars sem skiptinemi til
Mexíkó.
„Þetta var yndislegur tími.
Þegar það fer að líða lengra frá
þessu eina ári og þetta ár verður
minnihluti af öllu lífinu, verður
þetta hálf absúrd,“ segir Ívar
Örn hlæjandi. „Þegar ég hugsa til
baka spyr ég mig hvort þetta hafi
verið draumur.“
Ívar Örn er nýlega byrjaður
að búa. Leigir íbúð með kærustu
sinni, Örnu Ösp Guðbrandsdótt-
ur, í Reykjavík.
„Við erum að kynnast leigu-
markaðnum,“ segir Ívar Örn og
bætir við að búskapurinn gangi
býsna vel. „Ég fékk til dæmis
amerískar pönnukökur í rúmið í
tilefni dagsins.“
kristjan@frettabladid.is
AFMÆLI
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR „Ég vissi að
þetta yrði stórt og mikið mál og það
reyndist líka vera svo,“ segir Lára
V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmað-
ur, sem skipuð var saksóknari í
rannsókn á tildrögum þess að
Magnús Leopoldsson dróst saklaus
inn í Geirfinnsmálið.
Lára segir það hafa verið mikla
áskorun að taka við rannsókninni
enda eitt umtalaðasta sakamál á Ís-
landi. „Mér fannst svolítil ögrun í
því að kona skyldi takast á við að
vera saksóknari í svona máli. Starf-
andi lögmenn, konur, eru yfirleitt í
skilnaðar- og forsjármálum.“
Lára var í lagadeild Háskóla Ís-
lands þegar Guðmundar- og Geir-
finnsmálin komu upp. Hún segir
nemendur hafa fylgst grannt með
og að miklar umræður hafi skapast
um málið. Hallvarður Einarsson,
fyrrverandi vararíkissaksóknari,
var kennari í lagadeildinni á þess-
um tíma. „Þetta mál var afar
reyfarakennt og hefur haldið áfram
að vera það. Á meðan ég vann að
rannsókninni fannst mér ég oft vera
stödd í miðjum reyfara,“ segir Lára.
Lára ólst upp á Skólavörðuholt-
inu og gekk í Austurbæjarskóla.
Þaðan lá leiðin í Verslunarskóla Ís-
lands og fór hún meðal annars sem
skiptinemi til Iowa í Bandaríkjun-
um. Eftir Verslunarskólann skráði
hún sig í lagadeildina.
„Ég tók að vísu ekki ákvörðun
um það fyrr en skömmu áður en
skráningarfrestur rann út. Ég ætl-
aði alltaf í viðskiptafræði og hafði
fengið verðlaun á stúdentsprófi fyr-
ir viðskiptagreinar,“ segir Lára og
skellir upp úr. „Braut viðskiptanna
átti því að liggja bein fyrir mér.“
Eftir lagapróf gerðist Lára full-
trúi hjá Jóni E. Ragnarssyni. Með-
fram kenndi hún verslunarrétt í
Verslunarskólanum.
Lára starfaði fyrir ASÍ um ára-
bil, fyrst sem lögfræðingur þess og
síðar sem framkvæmdastjóri. Þá
hóf hún rekstur eigin lögmanns-
stofu. Hún gegnir einnig lektors-
stöðu í Háskólanum. Hún segir fjöl-
skylduna vera aðaláhugamálið, en
auk þess er hún talsverð útivistar-
manneskja og bókaormur. ■
Lára V. Júlíusdóttir
hæstaréttarlögmaður ólst upp á
Skólavörðuholtinu. Var í laganámi
þegar Geirfinnsmálið kom upp. Ætl-
aði í viðskiptafræði en hætti við á
síðustu stundu.
Persónan
Bókaormur af Skólavörðuholtinu
ÍVAR ÖRN SVERRISSON
Ívar Örn útskrifaðist úr Listaháskólanum nú í vor. Hann hóf störf hjá Þjóðleikhúsinu
síðastliðinn fimmtudag og er að æfa verkið „Pabbastrákur“ eftir Hávarð Sigurjónsson.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR
Lára er gift Þorsteini Haraldssyni endur-
skoðanda, sem hún kynntist á mennta-
skólaárunum. Þau eiga þrjú börn og eitt
barnabarn.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tveir Hafnfirðingar tóku talsaman. Annar þeirra segir:
„Bandaríkjamenn eru víst búnir
að finna upp vél sem uppgötvar
þegar fólk er að ljúga.“
Hinn horfir á hann forviða en
segir svo: „Iss, ég er lengi búinn
að vera giftur einni slíkri.“
Hann er ekki húmorslaus.Hann er ekki endurskoðandi.
Og hann er ekki snyrtipinni.
Heldur þvert á móti: Húmoristi
og hæfilega skipulagður,“ segir
Björk Jakobsdóttir leikkona um
eiginmann sinn til sjö ára, Gunn-
ar Helgason leikara. „Ég náði
mér í fyrirmyndareiginmann,
sálufélaga og vin sem er virkur í
heimilishaldinu. Svo er orkan í
okkur lík og áhugamálin líka þó
að hann sé ef til vill ögn ofvirkari
en ég.“
Vefmiðillinn www.visir.is hefurum árabil haldið úti spjall-
þræðinum Innherjar þar sem
áhugasamir geta úttalað sig um
allt milli himins og jarðar. Mest líf
er á stjórnmálaspjallinu og þar
takast Innherjarnir á, mismálefna-
lega eftir því hvernig vindarnir í
pólitíkinni blása. Einn Innherjinn
hefur tekið sig til og rannsakað
þátttöku félaga sinna í spjallinu og
samkvæmt talningu hans voru
4330 stjórnmálaspjallþræðir opn-
aðir í síðasta mánuði. Stefán Frið-
rik Stefánsson er einn fárra
manna sem tjáir sig á Innherjun-
um undir nafni og er sjálfsagt ein
öflugasti málsvari Sjálfstæðis-
flokksins og frjálshyggjunnar í
netheimum. Hann opnaði sam-
kvæmt talningunni 367 þræði í
janúar og ef hann heldur sínu stri-
ki má því ætla að hann opni um-
ræðuna á vefnum rúmlega fjögur
þúsund sinnum á árinu, ef ekki
oftar þegar tekið er tillit til þess
að það er um kosningaár að ræða.
MAÐURINN TÍMAMÓT
Colin Powell.
Alex Ferguson.
Fleetwood Mac.
1.
2..
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Veistu svarið?
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að sá á leir sem finnur.
Leiðrétting
Góð tannheilsa
og reykingar
fara ekki saman
www.tannheilsa.is
FR
ÉT
TA
LB
AÐ
IÐ
/V
IL
H
EL
M
JARÐARFARIR
13.30 Bjarkey Gunnlaugsdóttir, Lang-
holti 5, Akureyri, verður jarðsung-
in frá Akureyrarkirkju.
13.30 Jenný Magnúsdóttir, Tryggvagötu
7, Selfossi, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju.
13.30 Vigfús K. Gunnarsson, löggiltur
endurskoðandi, Sóltúni 5, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju.
14.00 Guðni Halldórsson, fyrrverandi
heilbrigðisfulltrúi, Kirkjubraut 52,
Akranesi, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
15.00 Hjörtur Marinósson, Strandaseli
8, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Seljakirkju.
15.00 Ólafur Bjarnason, múrarameist-
ari, Holtagerði 72, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju.
16.00 Lúðvík Reimarsson frá Heiðatúni,
Vestmannaeyjum, verður jarð-
sunginn frá Landakirkju.
16.00 Sigfús Örn Ólafsson, heimilis-
læknir, frá Gröf á Höfðaströnd,
verður jarðsunginn frá Digranes-
kirkju.
MINNINGARATHÖFN
15.00 Minningarathöfn um séra Björn
Sigurbjörnsson, Dambakken 47,
3460 Birkerød, verður í Hallgríms-
kirkju.
AFMÆLI
Ívar Örn Sverrisson leikari er 26 ára.
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Heimasíða Hæstaréttar(www.haestirettur.is) er eng-
inn sérstakur afþreyingarvefur.
Fréttamenn og annað forvitið
fólk getur skoðað alla birta dóma
réttarins á síðunni og allt bendir
til þess að vefurinn hafi verið
með þeim mest sóttu í gær.
Hæstiréttur dæmdi Árna John-
sen, fyrrum alþingismann, í
tveggja ára fangelsi í gær og eft-
irvæntingin eftir úrskurðinum
virðist hafa verið slík að laust
fyrir klukkan 17 í gær var ekki
vinnandi vegur að komast þar
inn. Ástæðan er væntanlega sú að
vefþjónninn sem hýsir dómsorðin
hafi ekki ráðið við gestafjöldann
og www.haestirettur.is hefur því
að öllum líkindum verið Íslend-
ingabók dagsins á vel flestum
nettengdum vinnustöðum lands-
ins.
Á RAUÐAVATNI
Að leika sér á seglbretti á sjó er vinsælt víða um heim. Öllu óalgengara er að vera með
seglið á lofti og skíði á fótum eins og þessi piltur sem ljósmyndari smellti af mynd á
Rauðavatni. Engum sögum fer þó af hvernig honum miðaði yfir vatnið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M