Fréttablaðið - 14.02.2003, Page 1
BRUSSEL, AP Peter Struck, varnar-
málaráðherra Þýskalands, gaf í
gær til kynna að
Þjóðverjar muni
samþykkja undir-
búning að varnar-
viðbúnaði í
Tyrklandi vegna
hættu á árásum
Íraka. Hann sagði
að Atlantshafs-
bandalagið myndi
taka ákvörðun í síðasta lagi á
morgun og að sú ákvörðun ætti að
uppfylla allar kröfur Tyrkja.
Þjóðverjar, Frakkar og Belgar
hafa neitað að taka ákvörðun
strax og vilja bíða þar til vopna-
eftirlitsmenn hafa skilað skýrslu
til Sameinuðu þjóðanna í dag.
Frakkar sögðu sína afstöðu
óbreytta. Ekkert varð af funda-
höldum Nató í gær og engir fund-
ir boðaðir í dag. ■
TÍSKA
Kjóll
úr áli
bls. 31
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 14. febrúar 2003
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
MÁLÞING Í tilefni V-dagsins verður
málþing í hátíðarsal Háskóla Ís-
lands klukkan 16.30. Elín Hirst,
Sverrir Björnsson, Sæunn Kjart-
ansdóttir, Erpur Eyvindarson, Hild-
ur Fjóla Antonsdóttir og Jón Þór
Ólason flytja erindi sem tengjast
kynferðisbrotum og viðbrögðum
við þeim. Að loknum erindum
verða pallborðsumræður.
Rætt um
kynferðisbrot
SKÝRSLA Hans Blix og Mohamed El-
Baradei skila öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna skýrslu um vopnaeft-
irlitið í Írak. Skýrsla þeirra getur
ráðið miklu um næstu skref í Íraks-
deilunni.
Skýrsla um Írak
FYRIRLESTUR Í tilefni af 25 ára af-
mæli Samtakanna ‘78 mun Þóra
Björk Hjartardóttir málfræðingur
flytja fyrirlestur í Odda í Háskóla
Íslands klukkan 12. Fyrirlesturinn
ber yfirskriftina: Orð á hreyfingu –
Orð og orðanotkun tengd samkyn-
hneigð.
Orð tengd
samkynhneigð
HANDBOLTI Sex leikir fara fram í
Essó-deild karla og kvenna.
Kvennalið FH og ÍBV mætast í
Kaplakrika klukkan 18 og Valur og
Grótta/KR í Valsheimilinu. Fram
mætir Víkingum klukkan 20. Í
Essó-deild karla tekur Valur á móti
Gróttu/KR klukkan 20. Á sama tíma
leika Selfoss og Víkingur og ÍR og
FH.
Sex leikir
í handbolta
ÍÞRÓTTIR
Ekki blásið
til sóknar
FÖSTUDAGUR
38. tölublað – 3. árgangur
bls. 34
Útsala
afsláttur
70%
allt a›
Girnilegar
tilboðskörfur
Smáralind - Glæsibæ
AFMÆLI
Afar
órómantískur
bls. 18
RIÐUVEIKI Birgir Ingþórsson, bóndi
á Uppsölum í Austur-Húnavatns-
sýslu, sér á eftir 300 fjár í slátur-
hús í dag þar sem yfirdýralæknir
hefur fyrirskipað að 300 fjár af
bænum verði slátrað í dag. Þetta
er gert af ótta við riðuveikismit,
en það hefur eigi að síður ekki
fundist hjá Birgi bónda.
Sigurður Örn Hansson aðstoð-
aryfirdýralæknir segir gripið til
svo harkalegra aðgerða þar sem
allt þurfi að gera til að koma í veg
fyrir útbreiðslu riðuveiki. Birgir
keypti féð, sem verður fargað í
dag, í nóvember í fyrra af bænum
Hvammi í Vatnsdal. Þar var riða í
fé síðast á árinu 1987. Birgir er
afar ósáttur við aðgerðirnar. Hann
segir að hjá sér hafi aldrei fundist
riða og með þessum aðgerðum
verði hann fyrir miklu tjóni þar
sem skaðinn verður honum ekki
bættur. Hann vill að nokkrum
kindum verði fargað og þannig
gengið úr skugga um að féð sé
ósýkt.
Sigurður segir það ekki hægt
og fella verði allan þann stofn sem
minnsti grunur er um að sé sýkt-
ur.
Fulltrúar sýslumanns og yfir-
dýralæknis sækja kindurnar í dag
og leiða þær í sláturhúsið á
Blönduósi. „Mér barst síðan bréf
fyrir nokkru sem sagði að þeir
væru á leiðinni. Fénu yrðu farg-
að,“ segir Birgir og bætir við að
öllum tillögum sínum og kröfum
um annað hafi verið hafnað.
Reglugerð frá árinu 2001 bann-
ar með öllu verslun með fé milli
bæja á sýktum svæðum og þess
vegna verður kindunum fargað. Í
desember þegar kæran barst frá
yfirdýralækni sagði Sigurður Sig-
urðsson, dýralæknir á Keldum, í
samtali við Fréttablaðið að bæirn-
ir Uppsalir og Hvammur til-
heyrðu sama varnarhólfinu sem
næði milli Miðfjarðar og Blöndu.
Riðuveiki hefði fundist á svæðinu
nánast árlega um langt skeið. Sig-
urður Örn Hansson aðstoðaryfir-
dýralæknir segir að mikill árang-
ur hafi náðst í baráttunni við riðu
á síðustu tuttugu árum og þess
vegna megi ekkert gefa eftir í
baráttunni við sjúkdóminn, en
vonir séu um að sigur sé að hafast.
„Það kom síðast upp riðuveiki á
Hvammi árið 1987. Mér sýnist
fordæmisgildið vera tilgangurinn
með þessum harkalegum aðgerð-
um. Að fenginni reynslu finnst
mér sennilegt að þeir sjúkdóma-
væði kindurnar til þess að hafa
rétt fyrir sér. Ég veit ég stend
höllum fæti með þessari yfirlýs-
ingu,“ sagði Birgir bóndi.
Sigurður Örn segir þetta ekki
svaravert en segist skilja sárindi
Birgis.
kolbrun@frettabladid.is
Deilan í Atlantshafsbandalaginu:
Þjóðverjar ámálga
samþykki
REYKJAVÍK Vaxandi suð-
austanátt í fyrramálið, 15-20
m/s og slydda eða rigning
síðdegis. Hiti 0 til 6 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 10-15 Slydda 4
Akureyri 10-15 Slydda 0
Egilsstaðir 10-15 Slydda 0
Vestmannaeyjar 13-18 Skúrir 4
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
300 fjár fargað
Ótti við riðuveiki verður til þess að 300 fjár verður fargað í dag. Annað er
ekki hægt, segja yfirvöld. Bóndinn er óviss og veit ekki hvað tekur við.
AFSTAÐA
AÐILDARRÍKJANNA
Fylgjandi aðstoð Andvíg aðstoð
Bandaríkin Belgía
Bretland Frakkland
Danmörk Þýskaland
Grikkland
Holland
Ísland
Ítalía
Kanada
Lúxemborg
Noregur
Portúgal
Pólland
Spánn
Tékkland
Tyrkland
Ungverjaland
Nýtt Húsasmiðjublað
fylgir blaðinu í dag.
ÍSLAND
SEGIR JÁ
Íslensk stjórnvöld
hafa stutt beiðni
Tyrkja líkt og 15
önnur Natóríki.
HERMENN Á VERÐI
Nokkur hundruð hermenn eru á vakt við
Heathrow-flugvöll.
Bretar óttast hryðjuverk:
Tekinn
með hand-
sprengju
LONDON, AP Hluti Gatwick-flugvall-
ar var rýmdur þegar lögreglu-
menn stöðvuðu karlmann eftir að
handsprengja hafði fundist í far-
angri hans. Farþegar voru fluttir á
brott og öllu flugi aflýst. Tveir
menn voru handteknir nærri
Heathrow. Lögregla vildi ekki upp-
lýsa um ástæðuna en sagði þá
handtekna með vísan í lög um
hryðjuverk.
Bretar eru viðbúnir hryðju-
verkum og hafa eflt mjög varnir
sínar síðustu daga. Lögreglumenn
stöðvuðu bíla nærri flugvöllum og
athuguðu hvort hætta stafaði af
þeim sem í þeim voru. „Við vitum
að al Kaída mun reyna að myrða
fólk og skaða Bretland,“ sagði
David Blunkett innanríkisráð-
herra í þingræðu. ■
ÁREKSTUR Á BÚSTAÐAVEGI Töluvert harður þriggja bíla árekstur varð á Bústaðavegi gegnt Skógarhlíð síðdegis í gær. Að sögn lög-
reglu var einn maður fluttur með eymsli í hálsi á slysadeild en aðrir sluppu með minniháttar meiðsl. Tveir bílanna skemmdust töluvert
og voru fluttir með kranabíl af slysstað. Loka þurfti umferð vestur Bústaðaveg um tíma vegna árekstrarins.
ÍSLENSKAR KINDUR
Allt þarf að gera til þess að koma í veg
fyrir að riðuveiki breiðist út, segir Sigurður
Örn Hansson aðstoðayfirdýralæknir.
bls. 25
FÓLK
Ánægð
með útlitið
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
föstudögum?
66%
71%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M