Fréttablaðið - 14.02.2003, Blaðsíða 16
17FÖSTUDAGUR 14. febrúar 2003
Handtekin í Bolungarvík:
Grunuð um
að dreifa
fíkniefnum
FÍKNIEFNI Maður og kona voru
handtekin á Bolungarvík eftir
að lögreglan réðist til inngöngu í
leit að fíkniefnum. Lá fólkið
undir grun um að dreifa fíkni-
efnum úr íbúðinni, auk þess að
neysla færi þar fram.
Við leit í íbúðinni fundust
nokkur grömm af hassi auk
áhalda sem greinilega höfðu
verið notuð til neyslu fíkniefna.
Skömmu áður en húsleitin fór
fram var annað par handtekið í
Hnífsdal á leið til Ísafjarðar. Við
leit í bílnum fundust áhöld til
fíkniefnaneyslu.
Barn var í bílnum og var því
komið til vandamanna. Parið
viðurkenndi að hafa fengið
keypt tvö grömm af hassi úr
fyrrgreindi íbúð.
Fólkinu öllu sem að málinu
kom hefur verið sleppt úr haldi
lögreglu og telst málið að mestu
upplýst. ■
LONDON, AP Þegar Mary Martin var
tveggja ára gömul flutti hún ásamt
foreldrum sínum frá Bandaríkjun-
um til Bretlands. Þar hafði hún
búið í 54 ár og eignast fjögur börn
þegar henni var tilkynnt að hún
hefði ekki dvalarleyfi og var fyrir-
skipað að snúa aftur heim, til
Bandaríkjanna.
„Ég hef ekkert að sækja til
Bandaríkjanna,“ sagði Mary í við-
tali við BBC. „Ég veit ekkert um
Bandaríkin. Ég vil ekkert vita um
Bandaríkin. Þau eru ekki heima-
land mitt, þetta er landið mitt. Ég
hef aldrei farið út fyrir Suffolk.“
Segja má að vandræði Mary
Martin hafi hafist fyrir tveimur
árum þegar móðir hennar lést. Þá
komst hún að því að hún væri
bandarískur ríkisborgari en ekki
breskur. Þegar hún sótti um bresk-
an ríkisborgararétt var henni sagt
að hún hefði ekki sýnt fram á bú-
setu í landinu síðustu 14 ár þrátt
fyrir að hún hafi framvísað skatt-
framtölum og afsali að íbúð sinni.
Það var ekki fyrr en þingmaður
gerði málið opinbert að bresk yfir-
völd ákváðu að veita Mary lands-
vistarleyfi og ákváðu að rannsaka
hvernig á því stæði að opinberir
starfsmenn hefðu ætlað að gera
hana brottræka. ■
Strangar reglur um búsetu í Bretlandi:
Rekin úr
landi eftir 54
ára búsetu
STJÓRNMÁL Sérframboð Kristjáns
Pálssonar alþingismanns í Suður-
kjördæmi þyrfti að fá um 2000 at-
kvæði ætti þingmaðurinn að gera
sér vonir um að ná kjöri. Sam-
svarar það um tíunda hluta allra
atkvæða í kjördæminu: „Það er
töluvert,“ segir Kristján sem bíð-
ur þess nú að miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins komi saman og taki af-
stöðu til óskar hans um að fá að
bjóða fram DD-lista í nafni
flokksins.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
er æðsta valdastofnun flokksins á
milli landsfunda og fundar að öllu
jöfnu nokkrum sinnum á ári. Að
sögn Ágústar Ragnarssonar,
skrifstofustjóra Sjálfstæðis-
flokksins, hefur ekki enn verið
ákveðið hvenær miðstjórnin verði
kölluð saman til að fjalla um er-
indi Kristjáns. Formaður mið-
stjórnarinnar er Davíð Oddsson
forsætisráðherra en hann aftekur
með öllu að heimilað verði að
bjóða fram í kjördæminu undir
listabókstafnum DD og gildi það
reyndar um öll önnur kjördæmi. ■
Sérframboð:
Kristján þarf
2000 atkvæði
KRISTJÁN PÁLSSON
Hann þarf um tvö þúsund atkvæð til að ná
þingsæti fari hann í sérframboð.
SAGT AÐ YFIRGEFA LANDIÐ
Breskir embættismenn vildu reka Mary Martin úr landi og sögðu hana ekki geta
sýnt fram á að hafa búið í Bretlandi síðustu 14 árin.