Fréttablaðið - 14.02.2003, Blaðsíða 21
4
- margvísleg starfsemi í bílskúrum
Ekki bara bílskúr
Á leið út
úr skúrnum
Margir tónlistarmenn hafa byrjað
sinn feril í bílskúrshljómsveit. Ein
slík hljómsveit er rokksveitin Lok-
brá sem stofnuð var fyrir tæpum
tveimur árum af þeim Óskari,
Baldvini, Oddi Inga og Trausta.
Hljómsveitin leikur frumsamið efni
og segjast strákarnir bráðlega
koma út úr skúrnum og fyrir sjónir
áhorfenda þegar hljómsveita-
keppnin Músíktilraunir verður
haldin. Þessa stundina er Lokbrá
milli bílskúra. Strákarnir hlæja og
segja slíkt ekki óalgengt hjá bíl-
skúrshljómsveitum. Oft líði ekki
nema þrír mánuðir þangað til ein-
hver nágranninn fái sig fullsaddan
og biðji þá vinsamlegast að fara
eitthvert annað. Strákarnir segja
ákveðna stemningu ríkja í bílskúr-
um sem ekki náist í stærra æf-
ingahúsnæði. Þeir vilja því hvergi
annars staðar vera.
Stutt að fara í mat
Fyrirtækið AB-skilti er í eigu Reynis Sveinssonar.
Hann segir fyrirtækið þess eðlis að honum sé kleift
að hafa það í bílskúrnum heima hjá sér í Garðabæ.
Um sé að ræða alls konar skilti, hvort sem er límstaf-
ir, logó eða merkingar. Þessa stundina sé hann í
auknum mæli að einbeita sér að minni skiltum og
nefnir dyraskilti, skilti á póstkassa og á krossa. Auk
þess að nýta bílskúrinn undir fyrirtækið notar hann
aðstöðuna til að sinna uppáhaldstómstundaiðju sinni,
sem er tréútskurður. Reynir segir það forréttindi að
þurfa ekki að fara út í hina miklu umferð til að komast
til og frá vinnu. Þá sé stutt að fara heim til eiginkon-
unnar í hádegismat.
Hægt að mæta
á sloppnum
Sigríður Sara Sigurðardóttir rek-
ur Hársnyrtistofuna Söru í bíl-
skúrnum heima hjá sér í Mururima
í Grafarvogi. Stofuna opnaði hún í
október í fyrra. Áður hafði hún rek-
ið hárgreiðslustofu á Loftleiðum í
tólf ár. Ástæðan fyrir þessari breyt-
ingu segir Sara vera heimilisað-
stæður en hún og eiginmaður
hennar eiga orðið þrjú börn. Mikil
þægindi hljótist af því að vinna
svona nálægt heimilinu. Stofan sé
opin eftir hádegi fram á kvöld og
um helgar eftir samkomulagi.
Íbúar í hverfinu sækja mikið til
Söru. Einn þeirra lét hafa eftir sér
að nánast væri hægt að mæta til
hennar í náttsloppnum, slík væru
þægindin samfara því að hafa
stofuna í hverfinu.