Fréttablaðið - 10.03.2003, Page 1
STJÓRNMÁL
Risið gegn
Blair
bls. 6
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 10. mars 2003
Tónlist 21
Leikhús 21
Myndlist 21
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FRÆÐSLA Eining-Iðja, Svæðisvinnu-
miðlun Norðurlands eystra, Félag
verslunar- og skrifstofufólks og
fræðslufulltrúi kirkjunnar á Akur-
eyri halda fræðslu- og umræðufund
um atvinnumissi í dag kl. 16.00.
Fundurinn verður haldinn á Græna
hattinum á Akureyri.
Fræðslufundur
um atvinnuleysi
Alpaklúbburinn
sýnir fjallamyndir
KVIKMYNDIR Banff-fjallamyndahátíð
Íslenska Alpaklúbbsins hefst í kvöld
í Smárabíói. Þar verða sýndar átján
fjallamyndir af ýmsum gerðum,
bæði í kvöld og annað kvöld. Á
Banff-fjallamyndahátíðinni gefst
þeim sem hafa áhuga á fjalla-
mennsku og sporti kostur á að sjá
myndir um ísklifur, klettaklifur,
mixað klifur, kajaka og snjóflóð, svo
eitthvað sé nefnt. Forsala aðgöngu-
miða er hafin í Nanoq í Kringlunni
og í 66˚ Norður á Lækjargötu.
DOKTORSVÖRN Chen Hupiping ver
doktorsritgerð sína við læknadeild
Háskóla Íslands í dag kl. 16.00. Rit-
gerðin fjallar um galla í erfðaefni
brjósta- og magakrabbameina.
Andmælandi verður doktor Stefan
Imreh frá Karolinska sjúkrahúsinu
í Stokkhólmi. Athöfnin fer fram í
Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla
Íslands og eru allir velkomnir með-
an húsrúm leyfir.
Gallar í erfðaefni
KAPPAKSTUR
Coulthard
fagnar sigri
MÁNUDAGUR
58. tölublað – 3. árgangur
bls. 22
TÓNLIST
Aftur til
fortíðar
bls. 18
REYKJAVÍK Norðaustan 10-15
m/s og skýjað en úrkomu-
lítið. Frost 0-5 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
-
-
-
-
UMFERÐARÓHAPP Sextán bíla
árekstur varð í Smiðjulaut á Hell-
isheiði um miðjan dag í gær. Ekki
urðu alvarleg slys á fólki en
nokkrir voru fluttir á sjúkrahús.
Aldrei áður hafa jafn margir bílar
lent í árekstri hér á landi.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að einn bílanna stoppaði
vegna þess hve skyggnið var
slæmt. Við það lenti annar bíll aft-
an á honum og svo koll af kolli.
Einn bílanna er lögreglubíll frá
lögreglunni á Selfossi sem var úti
í vegarkanti með blikkandi ljós.
Lögreglan segir ljóst að ekki hafi
verið ekið eftir aðstæðum. Það
sýna skemmdir á bílunum, en
flytja þurfti sex þeirra á brott
með kranabílum.
Ekki var leyfð umferð um
heiðina í nokkrar klukkustundir
meðan lögreglan rannsakaði vett-
vang. ■
HELLISHEIÐI LOKUÐ
Lögreglan lokaði umferð um heiðina meðan rannsókn fór fram á vettvangi.
Hellisheiði lokuð í margar klukkustundir:
Sextán bíla árekstur
KÖNNUN „Út af fyrir sig hef ég haft
ágæta tilfinningu fyrir ástandinu
hvað sem skoðanakönnunum líður.
Ég treysti svo sem ekkert síður á
mitt stóra nef en þessar sveiflóttu
mælingar. Það er
alltaf ánægjulegt
að sjá þróunina
vera í rétta átt,“
segir Steingrímur
J. Sigfússon, for-
maður Vinstri
grænna, en flokk-
urinn mælist með 13,5 prósenta
fylgi, sem er það mesta sem hann
hefur fengið í vikulegum skoðana-
könnunum Fréttablaðsins.
Framsókn missir mikið fylgi,
var með 12,5 prósent fyrir viku en
er nú með 9,7 prósent. „Mér finnst
þetta nú í lægri kantinum,“ segir
Siv Friðleifsdóttir, ritari Fram-
sóknarflokksins. Siv sagði að
væntanlega verði sveiflur fram
og til baka fram að endasprettin-
um.
Frjálslyndi flokkurinn bætir
við sig, er með 4,7 prósent nú en
var með 2,3 prósent í síðustu viku.
„Við fögnum því náttúrlega ef við
bætum við okkur fylgi,“ segir
Guðjón A. Kristjánsson, nýkjör-
inn formaður Frjálslynda flokks-
ins.
Samfylkingin mælist stærsti
flokkurinn þó litlu muni á henni
og Sjálfstæðisflokki. Samfylking-
in mælist með 36,2 prósent og
Sjálfstæðisflokkur með 35,2 pró-
sent. Fyrir viku var Samfylking
með 37,9 prósent og Sjálfstæðis-
flokkur var með 35,2 prósent.
Stjórnarflokkarnir fá samkvæmt
könnuninni 30 þingmenn, Sjálf-
stæðisflokkur 24 og Framsókn
sex. Samfylking fengi 24 þing-
menn og Vinstri grænir níu.
„Samkvæmt þessu er stjórnin
kolfallin. Það er athyglisvert mið-
að við þá ófrægingarherferð sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur stað-
ið fyrir gagnvart Samfylkingunni
að Sjálfstæðisflokkurinn gerir
ekki annað en að tapa fylgi á því,“
segir Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingar.
„Fylgið sveiflast mikið milli
Vinstri grænna og Framsóknar.
Hins vegar er Sjálfstæðisflokkur-
inn nokkuð stöðugur. Hann er með
38 plús/mínus tvö til þrjú prósent
og hefur verið það mjög lengi.
Þetta er reyndar í neðri mörkun-
um á því. Samfylkingin virðist
hafa tekið frá Vinstri grænum og
Framsókn. Nú er bara spurningin
hvað gerist á næstu tveimur mán-
uðum fram að kosningum, þegar
kosningabaráttan byrjar fyrir al-
vöru,“ segir Pétur Blöndal, þing-
maður Sjálfstæðisflokks.
Sjá einnig bls. 4
HJÖRTUR MAGNI JÓHANNSSON
Segir hróplegt ójafnræði vera milli þjóð-
kirkjunnar og minni trúfélaga.
Fríkirkjuprestur:
Trúfélögum
mismunað
TRÚFÉLÖG Séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson Fríkirkjuprestur segir
mikið ójafnræði vera milli þjóð-
kirkjunnar og annarra trúfélaga í
landinu. Hann segir Fríkirkjuliða
þurfa að verja mannréttindi sín
gegn þjóðkirkjunni, sem grafi
undan smærri trúfélögum. Í
predikun sinni í gærmorgun
gagnrýndi séra Hjörtur bréfa-
sendingu Jóns Helga Þórarinsson-
ar, formanns Prestafélags Ís-
lands, til félagsmanna, þar sem
þeir eru hvattir til að leitast við að
skrá þá sem fermast í þjóðkirkj-
unni, en eru utan hennar, í þjóð-
kirkjuna. Í bréfi Jóns Helga segir
að þannig verði börn þessara
fermingarbarna í framtíðinni
meðlimir í þjóðkirkjunni, og líkir
Jón Helgi þróuninni við „...snjó-
bolta sem er fljótur að hlaða utan
á sig.“
Þess ber að geta að samkvæmt
lögum um stöðu, stjórn og starfs-
hætti þjóðkirkjunnar byggir fjöl-
di presta á launum frá ríkinu á
fjölda safnaðarmeðlima í kirkj-
unni.
Í sunnudagsprédikun sinni
sagði séra Hjörtur ástæðurnar
fyrir baráttukveðjunum til þjóð-
kirkjupresta undarlegar, þar sem
ekki væri verið að útbreiða boð-
skap Krists, heldur væri hvatinn
að fá fleiri stöðugildi frá ríkinu og
meiri peninga en önnur trúfélög.
Það kostar hvert fermingarbarn
átta þúsund krónur að fermast í
þjóðkirkjunni, en Fríkirkjan inn-
heimtir ekki slík gjöld.
Jón Helgi Þórarinsson kveðst
ekki hafa skrifað bréfið til félags-
manna sinna sem formaður
Prestafélagsins. „Þetta var óform-
legt bréf í spjalli milli félags-
manna. Þar ræða prestar allt milli
himins og jarðar, meðal annars
Íraksmálið.“ Hann segir það eðli-
legt að prestar upplýsi fólk um
stöðu þeirra gagnvart trúfélögum,
þar sem mörgum sé ekki kunnugt
um að börn þeirra séu sjálfkrafa
skráð í trúfélag móður. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
VG og Frjálslyndir
bæta við sig fylgi
Bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking fá minna fylgi nú en fyrir viku.
Ríkisstjórnin missir þingmeirihluta.
„Það er alltaf
ánægjulegt að
sjá þróunina
vera í rétta
átt.“
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49 ára
samkvæmt fjölmiðlakönnun
Gallup frá október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa
25 til 49 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu
á mánudögum?
73%
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 15-23 Él 5
Akureyri 8-13 Él 5
Egilsstaðir 8-13 Él 4
Vestmannaeyjar 8-13 Snjókoma 2