Fréttablaðið - 10.03.2003, Blaðsíða 2
2 10. mars 2003 MÁNUDAGUR
Sigurður Þ. Ragnarsson er víðþekktur veðurfræð-
ingur úr Hafnarfirðinum. Hann hefur meðal annars
starfað sem veðurfréttamaður hjá Stöð 2 og Sjón-
varpinu og kennt veðurfræði við Háskóla Íslands.
„Við erum búin að upplifa svo mildan vetur
að það eru engar líkur á öðru en að vorið
sé komið, þó að veturinn minni á sig einn
og einn dag. Svo er páskahretið eftir, og þá
kveðjum við veturinn formlega.“
SPURNING DAGSINS
Sigurður Þ., er vetur eða vor?
ÍRAKSDEILAN
HÚSFYLLI Í VETRARGARÐINUM
Fimmtíu til sextíu þúsund manns sóttu
Brúðkaupssýninguna Já.
Mikill áhugi fyrir
giftingum:
Sextíu
þúsund á
sýningu
SÝNING Brúðkaupssýningin Já var
haldin í Vetrargarðinum í Smára-
lind um helgina. Fimmtíu til sex-
tíu þúsund manns sóttu sýninguna
þetta árið, sem eru um tíu þúsund
fleiri en í fyrra. Elín María
Björnsdóttir, formælandi sýning-
arinnar, sagði í viðtali við Frétta-
blaðið að bæði gestir og aðstand-
endur sýningarinnar væru skýj-
um ofar með sýninguna, allt hefði
gengið upp. Dagskráin var sam-
felld þar sem ýmsar uppákomur
svo sem tónlistaratriði og tísku-
sýningar voru á boðstólum. Áhugi
fyrir brúðkaupum virðist alltaf
vera fyrir hendi og líklegast verð-
ur þessi sýning gerð að árvissum
viðburði. ■
Davíð varar við
vinstristjórn
Forsætisráðherra varar við vinstristjórn og segir landsmenn geta set-
ið uppi með eina slíka eftir næstu kosningar. Síðasta vinstristjórn
lagði grunninn að stöðugleika í efnahagslífinu, segja formenn Sam-
fylkingar og Vinstri grænna.
STJÓRNMÁL Ógöngur í efnahagsmál-
um hafa fylgt vinstristjórnum,
sagði Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, þegar hann ávarpaði
Sjálfstæðismenn á fundi í Valhöll.
Hann varaði við því að þó skoðana-
kannanir sýndu að einungis tvö pró-
sent landsmanna vildu fá vinstri-
stjórn gæti svo farið að landsmenn
sætu uppi með slíka stjórn.
Davíð rifjaði upp að engin
vinstristjórn hefði nokkurn tímann
setið allt kjörtímabilið. Hann sagði
ástæðuna ljósa. „Það er ekki nokkur
leið að koma í gegnum þriggja
flokka vinstristjórn neinum aðgerð-
um sem geta lagfært það sem þeir
hafa komið í koll á þremur árum.“
Davíð kvaðst ekki trúa því að síð-
asta vinstristjórn, sem komst til
valda 1988, hefði ætlað sér það í
upphafi að stuðla að kaupmáttar-
hruni almennings og stórauknum
skuldum ríkissjóðs. „Ég trúi því
ekki að þeir hafi ætlað sér það. En
þannig fór.“
„Þetta er hefðbundinn hægri
áróður þar sem er heldur reynt að
einfalda söguna,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna. Hann segir þessa sögu-
skýringu Davíðs ranga. Sérstaklega
sé hún ósanngjörn gagnvart síðustu
vinstristjórn. „Sú stjórn tók við
haustið 1988 þegar ríkisstjórn undir
forystu Sjálfstæðisflokksins gafst
upp,“ segir Steingrímur og bætir
við að sú vinstristjórn hafi komið
hjólum atvinnulífsins af stað og
unnið grunnvinnuna sem skilaði sér
í lægri verðbólgu. Þar hafi sam-
komulag ríkis, verkalýðsfélaga og
vinnuveitenda skilað miklum og já-
kvæðum árangri.
„Forsætisráðherra á bersýnilega
erfitt með að leggja saman tölur
þessa dagana,“ segir Össur Skarp-
héðinsson, formaður Samfylkingar,
og bendir á að 45% vilji Samfylk-
inguna í stjórn samkvæmt þeirri
könnun sem Davíð vísar til. „Það er
sömuleiðis ljóst að hann kann ekki
sögu síðustu áratuga. Það var ein-
mitt ríkisstjórn jafnaðarmanna og
framsóknarmanna sem náði niður
verðbólgunni um 1990 sem þá hafði
grafið um sig undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins árin á undan. Sú
ríkisstjórn, sem var að meginhluta
samsett úr þeim flokkum sem nú
mynda Samfylkinguna, lagði grunn-
inn að stöðugleikanum. Sjálfstæðis-
flokkurinn kom þar hvergi nærri.“
brynjolfur@frettabladid.is
Skoðanakönnun um Lundúnafundinn:
41 prósent telja Davíð segja satt
KÖNNUN Svarendur í skoðana-
könnun Fréttablaðsins voru
spurðir hvort þeir telji að Davíð
Oddsson hafi greint satt og rétt
frá fundi hans með Hreini Lofts-
syni fyrir þrettán mánuðum. 40,8
prósent telja hann hafa greint
satt og rétt frá, 33 prósent telja
hann ekki hafa greint satt og rétt
frá og 25,5 prósent eru óákveðin.
Kjósendur Sjálfstæðisflokks
trúa Davíð meir og betur en
stuðningsmenn annarra flokka.
78 prósent þeirra telja hann hafa
sagt satt og rétt frá, átta prósent
taka ekki afstöðu og 13,9 prósent
kjósenda Sjálfstæðisflokksins
trúa ráðherranum ekki. Kjósend-
ur Samfylkingarinnar eru tor-
tryggnastir, en aðeins 17,3 pró-
sent þeirra telja Davíð hafa
skýrt satt og rétt frá. 36,2 pró-
sent þeirra trúa honum ekki á
meðan 46,5 prósent eru óákveð-
in. Kjósendur Framsóknar-
flokksins koma næstir kjósend-
um Sjálfstæðisflokks hvað varð-
ar trú á túlkun Davíðs af Lund-
únafundinum. 41,2 prósent þeir-
ra telja Davíð hafa sagt satt og
rétt frá, jafn margir þeirra telja
þessu þveröfugt farið og 17,6
prósent eru óákveðin. Jafn marg-
ir kjósendur Vinstri grænna
telja Davíð hafa sagt satt og rétt
frá og telja hann ekki hafa gert
það. 31,9 prósent segja hann hafa
sagt satt og jafn margir að hann
hafi ekki gert það. Svör þeirra
sem hyggjast kjósa Frjálslynda
flokkinn skiptast þannig að 29,4
prósent telja ráðherrann segja
satt og rétt frá, 52,9 prósent eru
óákveðin og 17,6 prósent telja
hann ekki hafa greint satt og rétt
frá.
Meðal þeirra sem ekki nefna
neinn flokk eru 31,3 prósent
þeirrar skoðunar að ráðherrann
hafi sagt satt og rétt frá, 22,9
prósent eru óákveðin og 45,8 pró-
sent trúa honum ekki.
Að venju voru 600 kjósendur
spurðir. ■
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Jafnaðarmenn komu vitinu fyrir Sjálfstæð-
ismenn í Evrópumálinu. EES-samningurinn
er undirstaða góðærisins.
DAVÍÐ ODDSSON
Kjósendur eru ekki á eitt sáttir um hvort
hann hafi sagt satt og rétt frá fundi hans
og Hreins Loftssonar í Lundúnum í janúar
2002.
DAVÍÐ ODDSSON
Vinstristjórnir hafa leitt til kaupmáttarhruns
almennings og skuldasöfnunar ríkissjóðs.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Söguskýringar Davíðs einföldun og rangar.
Síðasta vinstristjórn þurfti að leysa vanda
sem hægristjórn stakk af frá.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
POWELL BJARTSÝNN Colin
Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagðist í sjón-
varpsviðtali
við NBC bjart-
sýnn á að níu
eða tíu ríki
myndu sam-
þykkja álykt-
un Bandaríkj-
anna og Bret-
lands. „Við
sjáum þá til
hvort einhver vill beita neitun-
arvaldi.“ Bandarískir og breskir
erindrekar eru sagðir reyna að
einangra Frakka, sem eru harð-
astir í afstöðu sinni gegn stríði
af ríkjunum sem geta beitt neit-
unarvaldi. Atkvæði um ályktun-
ina verða greidd í vikunni,
hugsanlega á morgun.
VILJA LEIÐTOGAFUND Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands,
hefur tekið
undir
beiðni
Jacques
Chirac
Frakk-
landsfor-
seta um að
leiðtogar
þeirra
ríkja sem
eiga sæti í
öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna komi saman til fundar um
Íraksdeiluna.
Davíð Oddsson:
Kannast ekki við afsögn í
Lundúnum
STJÓRNMÁL Þegar Hreinn Loftsson
sagði af sér sem formaður einka-
væðinganefndar sendi hann frá sér
tilkynningu þar sem hann segist
hafa greint Davíð Oddssyni frá
ákvörðun sinni á fundi tveimur
dögum fyrr, en það var á hinum
margumrædda Lundúnafundi. Dav-
íð hefur síðar sagt að afsögn Hreins
hafi ekki borið á góma í Lundúnum.
Í tilkynningu Hreins segir: „Ég
undirritaður hef í dag sagt af mér
formennsku í framkvæmdanefnd
um einkavæðingu. Á fundi sem ég
átti með Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra sl. laugardag greindi ég
honum frá þessari ákvörðun minni
og forsendum hennar. Auk for-
mennsku í nefndinni hef ég jafn-
framt starfað undanfarin ár sem
s t j ó r n a r f o r -
maður Baugs
hf. Í utandag-
skrárumræð-
um á Alþingi í
sl. viku deildi
forsætisráð-
herra hart á
fyrirtækið og
s t j ó r n e n d u r
þess og hafa
þau ummæli
orðið til þess að
ég tel mér í
raun ókleift að
sinna for-
mennsku í nefndinni. Því hef ég
tekið framangreinda ákvörðun.“
Þetta er sent frá Hreini 28. janúar
2002.
Forsætisráðuneytið sendir frá
sér aðra tilkynningu um sama mál
1. febrúar 2002 og gerir engar at-
hugasemdir við skýringar Hreins.
Í Kastljósi fyrir réttri viku segir
Davíð Oddsson þegar hann er
spurður hvort Lundúnafundurinn
hafi einungis verið til að ræða stöðu
Baugs: „Hann óskaði eftir að fá að
koma og hitta mig. Nú er reyndar
sagt að hann hafi gert það til að
segja af sér sem formaður einka-
væðinganefndar. Hann tilkynnti
mér það ekki.“ ■
DAVÍÐ ODDSSON
Orð hans nú stangast
á við það sem kom
fram í fréttatilkynn-
ingu í janúar í fyrra.
BJÖRGUNARSTARF
ÞRIGGJA MANNA LEITAÐ Fjöl-
mennt lið björgunarsveitarmanna
var á Langjökli við leit að þrem-
ur vélsleðamönnum þegar blaðið
fór í prentun. Einn mannanna
hafði grafið sig í fönn. Ekki var
vitað af ferðum hinna mannanna.
Tveir félagar þeirra náðu til
byggða.
Harður árekstur:
Þrír á
slysadeild
SLYS Þrír voru fluttir á sjúkrahús
eftir að fólksbíll og sjö sæta leigu-
bíll lentu í árekstri á Reykjanes-
braut vestan Vogaafleggjara í
gærkvöldi. Einn hinna slösuðu var
meðvitundarlaus og alvarlega
slasaður. Tvísýnt þótti um afdrif
hans. Engar upplýsingar var að fá
á slysadeild Landspítalans um líð-
an hans áður en blaðið fór í prent-
un. Hinir tveir slösuðust minna. ■