Fréttablaðið - 10.03.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 10.03.2003, Síða 6
6 10. mars 2003 MÁNUDAGURVEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Kennarar og starfsmenn í skóla í einu sveitarfélagi landsins hafa kvartað yfir há- vaða af heræfingum orrustu- þotna undanfarið. Hvar er þetta? Hver er No Name-andlitið árið 2003? Davíð Oddsson opnaði sýn- ingu á laugardaginn á mynd- listarverkum sem hann var beðinn um að velja til sýning- ar. Í hvaða galleríi er þetta? HÁSKÓLANÁM „Það var mjög fín að- sókn,“ segir Guðrún Jónsdóttir Backmann, kynningarfulltrúi Há- skóla Íslands, aðspurð um mæt- ingu á hinn árlega Háskóladag, sem er kynning á háskólanámi í Íslandi og var haldinn í gær. Guð- rún segir að ekki færri en 2.000 manns hafi látið sjá sig og mjög líklega fleiri. Níu skólar á háskólastigi kynntu námsframboð sitt í bygg- ingum á háskólasvæðinu. Það vek- ur athygli að mun fleiri komu á kynninguna en nemur þeim fjölda sem mun útskrifast úr framhalds- skólum í vor. Að sögn Guðrúnar bendir allt til þess að um 40% af gestunum hafi verið fólk annars staðar frá, úr atvinnulífinu. Það stemmir við tölur sem Háskóli Ís- lands hefur fyrirliggjandi um samsetningu nemendaflórunnar á síðastliðnum árum. Um 40% af nýjum nemendum hafa fimm ára gamalt stúdentspróf eða eldra. ■ Annasöm helgi á Egilsstöðum: Fíkniefni fundust LÖGREGLAN Fjölmennt var í bænum og mikið að gera hjá lögreglunni um helgina að sögn Davíðs Auð- bergssonar, aðstoðarvarðstjóra lögreglunnar á Egilsstöðum. Um eittleytið aðfaranótt sunnudags var ungur maður handtekinn og fundust á honum þrjú grömm af hassi og þrjú af marijúana. Gekkst hann við efnunum og sagði þau til eigin neyslu. Gisti hann fangageymslur lögreglunnar en var látinn laus eftir skýrslutöku morguninn eftir og málið sent í rannsókn. Hefur maðurinn komið ítrekað við sögu lögreglu. ■ BEATRIX HOLLANDSDROTTNING Systurdóttir hennar, Margarete, segir hana eiga í vandræðum með áfengi. Hér tekur Beatrix á móti Carlo Azeglio Ciampi, for- seta Ítalíu, í Haag, en hann var í opinberri heimsókn í Hollandi í liðinni viku. Holland: Drottningin sögð alkóhólisti HOLLAND Systurdóttir Beatrix Hollandsdrottningar hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að drottning- in sé alkóhólisti. Yfirlýsingin hef- ur vakið mikla umræðu þar í landi, en hún var fyrst um sinn ekki tekin alvarlega og vísað á bug af konungshöllinni. Síðan hafa fleiri stigið fram á sjónar- sviðið og staðfest ummmæli syst- urdótturinnar. Hún heitir Marga- rita og er dóttir Irene, systur Be- atrix. Litlir kærleikar hafa verið á milli Irene og Beatrix, en Irene var svipt öllum titlum og útskúfað úr konungsfjölskyldunni árið 1964 þegar hún gekk að eiga aust- urrískan prins og tók upp kaþ- ólska trú. ■ LONDON, AP Afstaðan til Íraksdeil- unnar hefur reynst Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, erfið- asta málið frá því hann komst til valda í maí 1997. Um 150 til 200 þingmenn Verkamannaflokksins eru sagðir reiðubúnir að rísa upp gegn Blair og greiða atkvæði gegn stjórnarstefnu ef hann ákveður að styðja innrás í Írak án samþykkis öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Fjöldi lágt settra ráðherra hefur einnig hótað afsögn sinni af sömu sökum. Í því samhengi hefur verið nefnt að allt að 30 lágt settir ráð- herrar muni segja af sér fari Bret- land í stríð í trássi við vilja Sam- einuðu þjóðanna. Andstaða við stjórnarstefnu Blair hefur aldrei verið meiri. Þegar 122 þingmenn Verkamanna- flokksins risu gegn valdi Blairs í síðasta mánuði og greiddu at- kvæði gegn stefnu hans í Íraks- deilunni var það stærsta uppreisn- in í flokknum í tæpra sex ára valdatíð hans. Síðan þá virðist andstaðan innan flokksins hafa aukist. Að auki hefur fylgi Verka- mannaflokksins farið minnkandi samkvæmt skoðanakönnunum sem birtar hafa verið að undan- förnu. Meðan á þessu stendur reynir Blair að ná einhverri málamiðlun á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem heimilar innrás. Litlar líkur virðast þó vera á því að það takist enda skilur himinn og haf afstöðu Bretlands og Bandaríkjanna ann- ars vegar og Frakka, Þjóðverja, Rússa og Kínverja hins vegar. Samkvæmt breskum stjórn- sýslulögum þarf forsætisráðherra ekki að leita heimildar þingsins áður en hann beitir hernum. Stjórnin hefur þó lofað því að her- menn fái að greiða atkvæði um hernaðaraðgerðir. Óvíst er þó hvort það verði áður eða eftir að til þeirra kemur. Talsmenn stjórn- arinnar segja að betra geti verið að greiða atkvæði um beitingu hersins eftir að aðgerðir eru hafn- ar til að stofna öryggi hermanna ekki í hættu. ■ GERHARD SCHRÖDER Einn helsti stuðningsmaður Jafnaðar- manna, ver.di verkalýðshreyfingin, mót- mælir frumvarpi kanslarans harkalega. Mótmælt í Berlín: Deilt um opnunartíma BERLÍN, AP Talið er að um 20.000 manns hafi komið saman í Berlín til að mótmæla hugmyndum Ger- hards Schröders, kanslara Þýska- lands, um að rýmka reglur um opnunartíma verslana. Mótmælin voru haldin í helsta verslunarhverfi borgarinnar að undirlagi ver.di, verkalýðsfélags fólks í þjónustugreinum. Þau eru andvíg frumvarpi stjórnvalda um að verslanir megi vera opnar frá sex að morgni til átta að kvöldi laugardaga eins og virka daga. Sá opnunartími er fjórum tímum lengri en nú er leyfilegt. Bannað er að hafa opið á sunnudögum. ■ AP /E N R IC O O LI VE R IO . KYNNING Á HÁSKÓLANÁMI Ríflega 2.000 manns komu á Háskóladag í gær. Hér kynna eðlisfræðinemar deildina sína fyrir áhugasömum. Háskólanám kynnt: Fjölmenni á Háskóladegi VANDAMÁL HVERT SEM LITIÐ ER Mikið álag hefur verið á Tony Blair undanfarið og þykjast kunnugir sjá þess merki að það sé farið að hafa áhrif. Blaðamaðurinn Andrew Rawnsley, sem hefur mikil tengsl inn í Verkamannaflokkinn, skrifar í Observer að þegar Blair hélt ráðstefnu með Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, um friðarferlið á Norður-Írlandi hafi hann verið svo þreyttur að hann hafi ekki verið í takt við umræðurnar. Risið upp gegn Blair Mikillar óánægju gætir í breska Verkamanna- flokknum með framgöngu Tony Blair í Íraks- deilunni. Fjöldi undirráðherra hótar afsögn og á annað hundrað þingmenn flokksins gætu greitt atkvæði gegn stjórnarstefnu. M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.