Fréttablaðið - 10.03.2003, Page 8
STJÓRNSÝSLA Óhemjumikil óreiða
hjá Löggildingarstofu mun líkleg-
ast leiða til þess að forstjóra
stofnunarinnar verði vikið úr
starfi.
Ríkisendurskoðun kannaði
fjármál og bókhald Löggildingar-
stofu fyrir árin 1999 til 2002. Með-
al þess sem kom í ljós var að alls
kyns tæki og tól voru horfin,
greiddar voru áskriftir og afnot af
persónulegum tölvutengingum og
símum starfsmanna og jafnvel
fólks sem ekki vann hjá stofn-
uninni. Tölvur voru ekki keyptar
hjá því fyrirtæki sem Ríkiskaup
höfðu gert rammasamning við.
Jeppi var endurnýjaður fyrir for-
stjórann í heimildarleysi.
Dæmi um hömlulaus tækja-
kaup er að keyptir voru 57 farsím-
ar fyrir 20 starfsmenn. Þriðjung-
ur símanna fannst ekki við eftir-
grennslan Ríkisendurskoðunar.
Fjölskyldufyrirtæki
Margir ættingjar starfsmanna
fengu verktakagreiðslur frá Lög-
gildingarstofu. Atorkusamastur
að þessu leyti var þáverandi skrif-
stofustjóri. Eiginkona skrifstofu-
stjórans og dóttir, tvær systur og
bróðir auk systkinabarns fengu
verktakagreiðslur fyrir ýmis
störf.
Sjálfur fékk skrifstofustjórinn
verulega launahækkun á meðan
hann var í löngu veikindaleyfi.
Forstjórinn ákvað að setja hann í
hæsta launaflokk frá og með 1.
janúar 2002. Þar með var skrif-
stofustjórinn launahæstur allra
ríkisstarfsmanna í sínu stéttarfé-
lagi:
„Þessi ákvörðun er óskiljanleg
í ljósi þess að viðkomandi einstak-
lingur hefur verið frá vinnu lengi
vegna veikinda,“ segir Ríkisend-
urskoðun. Starfslokasamningur
hefur verið gerður við skrifstofu-
stjórann.
Laun eins starfsmanns voru
hækkuð um 45% þrjú síðustu árin
sem hann var í starfi. Þar með
voru honum tryggðar verulega
hærri lífeyrisgreiðslur en ella.
Laun annars starfsmanns voru í
fyrra hækkuð langt umfram aðra
launaþróun. Samið var við hann
um launalækkun eftir að Ríkis-
endurskoðun komst á snoðir um
málið.
Fjórðungur starfsmanna rek-
inn
Ferðakostnaður Löggildingar-
stofu var 11 til 12 milljónir króna
á hverju ári. Það þykir Ríkisend-
urskoðun hátt í ljósi þess að
starfsmenn eru aðeins 20.
Bæði skrifstofustjórinn og for-
stjórinn höfðu sérstakt greiðslu-
kort frá olíufélagi til að kaupa
eldsneyti og rekstrarvörur fyrir
bíla sem þeir höfðu til umráða. Í
ljós kom að út á kortin voru
keyptar ýmsar aðrar vörur sem
Ríkisendurskoðun telur aðeins
geta talist vera persónulega
neyslu. Til dæmis var greitt fyrir
þvott og bón á bíl sem forstjórinn
átti sjálfur.
Ríkisendurskoðun telur tækja-
kaup Löggildingarstofu hafa ver-
ið úr hófi. Á rúmlega tveimur
árum hafi stofnunin notað eina
milljón króna að meðaltali á hvern
hinna 20 starfsmanna. Í þeirri
upphæð eru ekki talin með sér-
LÖGGILDINGARSTOFA
Fjármálin fóru úr böndunum og bókhaldi var ábótavant hjá Löggildingarstofu á árunum 1999 til 2002, segir Ríkisendurskoðun. Iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra ætlar ekkert að segja um mál forstjóra Löggildingarstofu fyrr en athugasemdir forstjórans berast eftir helgi.
Forstjóri riðar til
falls vegna óreiðu
Ríkisendurskoðun segir mikla óreiðu hjá Löggildingarstofu. Forstjórinn
er að missa starfið. Fyrrverandi skrifstofustjóri réði hjörð ættmenna til
verktakastarfa og fékk sjálfur óhóflega launahækkun frá forstjóranum.
FRÉTTASKÝRING
8 10. mars 2003 MÁNUDAGUR
Síldarvinnslan og SR-mjöl sameinast:
Síldarvinnslan stækkar
SJÁVARÚTVEGUR Síldarvinnslan er
orðin stærsta fyrirtæki landsins í
veiðum og vinnslu á uppsjávar-
fiski eftir að aðalfundur félags-
ins samþykkti samruna við SR-
mjöl.
„Við horfum fram á að þarna
verður til öflugt fyrirtæki sem
verður miklu stærra og sterkara
saman en fyrirtækin voru sitt í
hvoru lagi,“ segir Björgólfur Jó-
hannsson, forstjóri Síldarvinnsl-
unnar. Hann tók við því starfi
snemma árs 1999 og gegnir því
áfram. Síldarvinnslan hefur
stækkað mjög á þeim tíma. 1999
keypti fyrirtækið uppsjávarhluta
útgerðarinnar Snæfells sem rann
inn í Samherja og ári síðar sam-
einaðist fyrirtækið Snæfugli á
Reyðarfirði.
Áætluð ársvelta fyrirtækisins
eftir samrunann er tíu til ellefu
milljarðar króna. Fyrirtækið og
hlutdeildarfélög þess ráða yfir
veiðiheimildum sem nema um
25.000 þorskígildistonnum.
Samherji er stærsti einstaki
hluthafinn í Síldarvinnslunni eft-
ir sameiningu með um það bil
fimmtungs hlut. Samherji á
einnig helming í Snæfugli, sem á
tíu prósenta hlut. Aðrir stærstu
hluthafar eru Kaupþing, Sjóvá-
Almennar og samvinnufélag út-
gerðarmanna í Neskaupstað. ■
SÍLDARVINNSLAN NESKAUPSTAÐ
Hlutafé Síldarvinnslunnar verður aukið um nær helming, 528 milljónir króna. Eigendur
SR-mjöls fá það sem greiðslu fyrir hlut sinn í því félagi. Heildarhlutafé verður 1,7 milljarð-
ar króna.
LÖGREGLUFRÉTT Karlmaður á sex-
tugsaldri var fluttur á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi með
höfuðáverka. Atburðurinn átti
sér stað rétt fyrir klukkan hálf
fimm aðfaranótt sunnudags á
Tryggvagötu við Glaumbar. Of
snemmt er að segja til um alvar-
leika áverkanna en að sögn lög-
reglu er maðurinn heldur á bata-
vegi.
Ekki er alveg ljóst hvernig
áverkarnir hlutust en ástæða er
til að ætla að þeir hafi komið að
völdum ryskinga og beinist rann-
sókn málsins að því. Enn sem
komið er er enginn grunaður.
Lögreglan í Reykjavík óskar eft-
ir hugsanlegum vitnum af at-
burðinum, ákveðnar frásagnir
eru komnar fram þó enn vanti
inn í þær og er fólk beðið um að
hafa samband við lögregluna hafi
það upplýsingar um málið. ■
KEMUR FYRIR BESTU MENN
Mér strikaði fótur og datt ofan í
strompinn.
Ungur Reykvíkingur sat fastur í strompi
um hríð eftir að hafa reynt að koma inn
til sín þá leið á sunnudagsmorgun.
Morgunblaðið, 9. mars 2003.
VORU HINIR AÐ GRÍNAST?
Í alvöru talað er mikil nauðsyn á
að lækka skatta á lágtekjufólk.
Sverrir Hermannsson í ræðu á landsþingi
Frjálslynda flokksins á föstudaginn. Morg-
unblaðið, 8.mars 2003.
ÍHUGUNAREFNI
Væri ekki einfaldara fyrir Fram-
sókn að banna í stjórnarskránni
að lög séu brotin?
Sverrir Hermannsson í sömu ræðu, um þá
tillögu Framsóknarflokksins að sett verði
í stjórnarskrána að sjávarauðlindin skuli
vera sameign þjóðarinnar. Sverrir bendir á
að klausa af því tagi sé þegar í lögum og
hafi verið þar um árabil.
ORÐRÉTT
Lögreglan óskar eftir vitnum:
Á sjúkrahús með höfuðáverka
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M