Fréttablaðið - 10.03.2003, Síða 9
hæfð mælitæki heldur er um að
ræða tölvur, síma og þess háttar.
Mörg tækjanna fundust heima
hjá starfsmönnum eða fundust
einfaldlega alls ekki þegar Rík-
isendurskoðun reyndi að rekja
slóð þeirra.
Eftir að athugun Ríkisendur-
skoðunar hófst hefur Löggild-
ingarstofa gripið til aðgerða til
að bæta ástandið. Starfsmönn-
um hefur verið fækkað niður í
fimmtán, innra eftirlit er
strangara, sagt var upp samn-
ingi við einkafyrirtækið Rökver
ehf. um tölvueftirlit og lækka á
ferðakostnað í 7,7 milljónir
króna.
Ráðherra vill úrskurðar-
nefnd
Sérstaklega er vikið að þætti
kerfisfræðings sem þáði 300
þúsund krónur á mánuði fyrir
veitta þjónustu við Löggilding-
arstofu á sama tíma og hann var
fastur starfsmaður Iðntækni-
stofnunar. Ríkisendurskoðun
dró í efa að kerfisfræðingurinn
gæti hafa unnið svo mikið fyrir
Löggildingarstofu á sama tíma
og hann var í fullu starfi hjá
annarri ríkisstofnun. Samning-
um um þetta tölvueftirlit hefur
verið rift. Starfsmaðurinn hefur
sagt Fréttablaðinu að hann hafi
unnið fyrir Löggildingarstofuna
um kvöld og helgar. Til séu
skýrslur um hverja einustu
vinnustund.
Valgerður Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra,
sagðist í bréfi sínu til forstjór-
ans, Gylfa Gauts Péturssonar,
telja rétt að víkja honum tíma-
bundið úr starfi. Síðan verði
skipuð þriggja manna nefnd
sem meti mál hans. Um er að
ræða sams konar nefnd og úr-
skurðaði í máli Guðmundar
Magnússonar, sem var sviptur
starfi forstöðumanns Þjóðmenn-
ingarhúss árið 2001.
Gylfi Gautur fékk frest til 28.
febrúar til að standa fyrir máli
sínu gagnvart iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytinu. Hann óskaði
eftir auknum fresti og var hann
veittur til dagsins í dag, mánu-
dagsins 10. mars.
Valgerður Sverrisdóttir hef-
ur sagt að hún tjái sig ekki um
málefni Löggildingarstofu fyrr
en þau séu til lykta leidd.
gar@frettabladid.is
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra vill víkja
Gylfa Gauti Péturssyni, forstjóra Löggild-
ingarstofu, tímabundið frá störfum og fá
rannsóknarnefnd til að meta stöðu
hans. Forstjórinn hefur frest til dagsins í
dag, mánudags, til að kynna ráðherran-
um sjónarmið sín.
9MÁNUDAGUR 10. mars 2003
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna fær gjöf:
Hálf milljón að gjöf
GJÖF Alþjóðleg samtök Hard
Rock safnara afhentu Styrktar-
félagi krabbameinssjúkra barna
rúma hálfa milljón króna að
gjöf.
Samtökin, sem á ensku nefn-
ast Pincollectors International
Network (PIN), stóðu fyrir upp-
boði á minjagripum, frá Hard
Rock Cafe vítt og breitt um
heiminn, á Hard Rock Cafe í
Kringlunni á laugardag. Fyrir
fram var ákveðið að allt söfnun-
arféð myndi renna óskipt til
Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna á Íslandi. Um
hundrað PIN-félagar víðs vegar
að úr heiminum komu til Íslands
til að taka þátt í uppboðinu, sem
var öllum opið. Formaður PIN,
BigBernd Goebel, afhenti í lok
uppboðsins Gunnari Ragnars-
syni, framkvæmdastjóra Styrkt-
arfélags krabbameinssjúkra
barna á Íslandi gjöf að upphæð
kr. 531.100. ■
Kofi Annan vill þjóðaratkvæðagreiðslu:
Leiðtogar sniðgengnir
KÝPUR, AP Kofi Annan, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, vill snið-
ganga leiðtoga grísku og tyrk-
nesku hluta Kýpur og láta úrslit
þjóðaratkvæðagreiðslu ráða úr-
slitum um tillögu Sameinuðu þjóð-
anna um hvernig megi sameina
eyjuna, sem hefur verið skipt í
tvennt í nær þrjá áratugi.
Bæði Tassos Papadopoulos,
leiðtogi Kýpur-Grikkja, og Rauf
Denktash, leiðtogi Kýpur-Tyrkja,
eru andvígir tillögunum og þykir
hvorum sem sinn hluti eyjunnar
fái ekki nóg í sinn hlut. Annan
fundar með þeim í dag og reynir
að fá þá til að samþykkja að úrslit
þjóðaratkvæðagreiðslu ráði úr-
slitum. Annan hefur þegar valið
30. mars sem þann dag sem þjóð-
aratkvæðagreiðslan eigi að vera.
Fyrr í mánuðinum efndu 70.000
Kýpur-Tyrkir til mótmæla gegn
Denktash fyrir andstöðu hans við
tillögu Annans, það er um þriðj-
ungur Tyrkja á eynni. Mótmælin
þykja vísbending um að almenn-
ingur myndi samþykkja tillöguna.
Erfiðara er að meta afstöðu Kýp-
ur-Grikkja. ■
STOLTUR SAFNARI
PIN-samtökin voru stofnuð árið 1997 og
hafa þau staðið fyrir nokkrum uppboðum
síðan vítt og breitt um heiminn.
Eltingaleikur við lögreglu:
Ofsaakstur
fyrir austan
LÖGREGLAN Lögreglan á Egils-
stöðum reyndi að stöðva bifreið
sem var á leið út úr bænum um
fimmleytið aðfaranótt sunnu-
dags. Ökumaður sinnti ekki
merkjum lögreglu um að stöðva
bifreiðina heldur keyrði út
Vallaveg á ofsahraða og hófst þá
eftirför lögreglu um tíu kíló-
metra leið.
Var ökumaðurinn, ungur karl-
maður um tvítugt, grunaður um
ölvunarakstur og handtekinn. Að
lokinni skýrslutöku var hann lát-
inn laus en bifreiðinni haldið eft-
ir í gæslu lögreglunnar á
Egilstöðum. ■
Árekstur í Hafnarfirði:
Þrír slasaðir á
sjúkrahús
LÖGREGLAN Slys varð við nýju göngu-
brúna á Hraunholtshæð á Hafnar-
fjarðarvegi á laugardagsmorgun.
Fólksbíl á norðurleið var ekið yfir á
rangan vegarhelming með þeim af-
leiðingum að hann lenti framan á bíl
sem var að koma úr gagnstæðri átt.
Klippa þurfti út ökumann annarrar
bifreiðarinnar sem var mikið slas-
aður en ekki í lífshættu. Átta önnur
umferðaróhöpp urðu í Hafnarfirði
um helgina en þau voru öll minni-
háttar. Mikið var um umferðarlaga-
brot í umdæmi lögreglunar í Hafn-
arfirði þar sem þrjátíu og sex voru
kærðir fyrir hraðakstur og einn fyr-
ir ölvunarakstur. ■
MÓTMÆLI Í NIKÓSÍU
Tyrkneskir Kýpurbúar efndu til mótmæla gegn Denktash í síðustu viku og hvöttu til þess
að tillaga Sameinuðu þjóðanna yrði samþykkt.