Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.03.2003, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 10.03.2003, Qupperneq 10
10 10. mars 2003 MÁNUDAGURSVONA ERUM VIÐ SVEITASTJÓRNIR Bæjarfulltrúar sem sátu hjá þegar bæjarstjórnin í Reykjanesbæ samþykkti í síðustu viku að koma á banni við einka- dansi segjast ekki telja það hlut- verk yfirvalda að hafa vit fyrir bæjarbúum. Fjórir bæjarfulltrúar af ellefu sátu hjá; tveir úr meirihluta Sjálf- stæðisflokks og tveir úr minni- hluta Samfylking- arinnar. Aðrir greiddu banntil- lögunni atkvæði. Með banninu á að koma í veg fyrir að nektardans- meyjar geti verið einar með við- skiptavinum og hugsanlega framið með þeim lögbrot þar sem lögregla sér ekki til. Bann- ið, sem styðst við nýlegan Hæsta- réttardóm, er sagt fela í sér sið- ferðisskilaboð til bæjarbúa. „Það gilda um þetta almenn lög í landinu. Við teljum það ekki vera í verkahring sveitarfélaga að setja fyrirtækjum þrengri skorð- ur,“ segir Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar. Garðar Vilhjálmsson, varabæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir að gild rök hafi verið í báðar áttir. „En ég sá ekki ástæðu til þess að vera með þá forsjárhyggju sem í þessu birtist,“ segir hann. Garðar segir hjásetu sína nokkuð hafa markast af því að hann hefði tekið sæti á umrædd- um bæjarstjórnarfundi á síðustu stundu. „Ég hafði ekki mótað mér fullkomlega afstöðu í málinu. Þess vegna sat ég hjá,“ segir hann. Að sögn Garðars er það ekki hans reynsla að nektardansstað- urinn Casino, sem er sá eini í Reykjanesbæ, sé eitthvert vanda- mál í bæjarfélaginu. „Það eru líka talsverðir hagsmunir í húfi fyrir þann fjölda sem starfar á staðn- um. Mér skilst að það séu um tutt- ugu manns,“ bendir varabæjar- fulltrúinn á. Að sögn Guðbrands Einarsson beittu fylgismenn bannsins í bæj- arstjórn fyrir sig órökstuddum fullyrðingum um vændi og eitur- lyfjasölu: „Við vitum að þessi fyrirbæri þrífast úti um allt þjóðfélagið; ekkert frekar þarna heldur en ein- hvers staðar annars staðar. Við teljum okkur ekki eiga að drottna hér sem einhverja siðgæðispost- ula í samfélaginu,“ segir Guð- brandur. gar@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Í fyrirspurnartíma á Alþingi í vikunni beindi Katrín Fjeldsted þeirri spurningu til heil- brigðisráherra hvort ráðherra hafi ákveðið að fara að tillögum Læknafélags Íslands að komið verði á fót miðstöð fyrir neytendur ópíata og sterkra verkjalyfja þar sem þeir fái skyld lyf eða önnur til að mæta fíkninni og venjast henni. Einnig hvort miðlæg verkjameð- ferð verði styrkt á Landspítala þannig að læknar geti vísað þeim þangað sem þurfi að fá flókna verkjameðferð. Í svari ráðherra kom fram að hann ásamt starfsmönnum ráðu- neytisins hafi átt fund með land- lækni um hvernig þessum málum skyldi háttað. „Ég á von á að land- læknir muni fljótlega leggja fyrir ráðuneytið tillögur um þau atriði sem að honum snúa. Tel ég allar líkur á að að miklu leyti verði ein- nig farið að tillögum Læknafélag- ins um miðstöð fyrir neytendur.“ ■ SKATTAFRÁDRÁTTUR Ár Skattafrádráttur 1998 301.444.000 1999 369.542.000 2000 407.839.000 2001 479.114.000 Heimild: Svar fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur. Drottnum ekki sem siðgæðispostular Þverpólitískur minnihluti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar er andvígur banni við einkadansi sem samþykkt hefur verið að koma á. Þeir segjast andvígir forsjárhyggju. Það sé ekki hlutverk bæjarfulltrúa að drottna sem siðgæðispostular. „Það eru líka talsverðir hagsmunir í húfi fyrir þann fjölda sem starfar á staðnum. Mér skilst að það séu um tutt- ugu manns.“ REYKJANESBÆR Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur falið bæjarstjóranum að gangast fyrir því að lögreglu- samþykkt verði breytt þannig að einkadans verði ekki lengur leyfilegur í bæjarfélaginu. Málvernd: Bölvuð amerískan ÁSTRALÍA, AP Það eru fleiri en Ís- lendingar og Frakkar sem óttast áhrif enskunnar. Peter Beattie, fylkisstjóri í Queensland í Ástral- íu, var ómyrkur í máli þegar hann talaði um þá ógn sem áströlskunni stæði af amerísku og sagði fólk væra hætt að nota góð og gegn áströlsk orð sem væru í raun ein- stök. Meðal þess sem fer í taug- arnar á Beattie er að Ástralir tala nú um sælgæti sem „candy“ í stað „lollies“, bleiur heiti núorðið „dia- pers“ en ekki „nappies“, tómat- sósa sé „ketchup“ í stað „tomato sauce“ og frönskurnar nefnist nú „fries“ en ekki „chips“. ■ HEILBRIGÐISRÁÐHERRA JÓN KRISTJÁNSSON Á von á að farið verði að tillögum Lækna- félagsins um að á fót verði komið miðstöð fyrir fíkla sem neyta sterkra verkjalyfja. Heilbrigðisráðherra um miðstöð fyrir ópíatafíkla: Farið verði að tillögum lækna HÁLFUR MILLJARÐUR Í FRÁDRÁTT Fyrirtæki fengu nær hálfan milljarð króna í frádrátt frá sköttum árið 2001 vegna gjafa og framlaga til kirkjufélaga, líknarstarfsemi, stjórnmálaflokka, menningarmála og rann- sóknastarfa. Mestur var frádrátturinn hjá fyrirtækjum í verslun og viðgerðarþjónustu, 128 milljónir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.