Fréttablaðið - 10.03.2003, Side 11

Fréttablaðið - 10.03.2003, Side 11
11MÁNUDAGUR 10. mars 2003 GJAFIR Akureyrardeild Rauða krossins hefur auglýst eftir rúm- um og öðru innbúi í sex íbúðir á Akureyri sem ætlaðar eru flótta- mönnum sem væntanlegir eru frá fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. Gerist þetta um leið og Vestur- landsdeild Rauða krossins gefur 14 rúm til fangelsisins á Kvía- bryggju fyrir tilstuðlan Árna Johnsen, sem nýhafið hefur af- plánun á staðnum. Þykir mörgum þarna skjóta skökku við: „Það er ekkert samband þarna á milli. Við vorum fyrir löngu búnir að ákveða að auglýsa eftir innbúinu og rúmunum í íbúðirnar áður en við fengum fregnir af Rauða kross rúmunum á Kvía- bryggju,“ segir Hafsteinn Jóns- son, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Akureyri. „En ég skil að fólki þyki þetta skondið,“ segir hann. Sex fjölskyldur flóttamanna eru væntanlegar til Akureyrar í lok mánaðarins; alls 24 manns. Um er að ræða Serba sem hraktir voru frá Króatíu í átökunum sem þar geisuðu. Bæjaryfirvöld á Ak- ureyri leggja flóttamönnunum til sex íbúðir en Rauði krossinn sér um innbúið. „Bæjarbúar hafa tekið okkur vel og við erum allt að því búin að fá allt sem við þurfum gefins - líka rúmin,“ segir Hafsteinn. ■ RÚM Sömu gerðar og gefin voru til fangelsisins á Kvíabryggju. Rauði krossinn kemur víða við: Gefur fangelsisrúm – fær gefins flóttamannarúm Lok átaka í Kongó: Samið um frið RÚANDA, AP Uppreisnarmenn og stjórnvöld í Kongó hafa náð sam- komulagi um að koma á friði eftir fjögurra og hálfs árs borgarastríð í landinu. Meðal samkomulags- atriða er að herir stjórnvalda og uppreisnarmanna verða samein- aðir undir merki nýs hers. Ríkisstjórnin, uppreisnarmenn og óvopnaðir stjórnarandstöðu- flokkar hafa samið um tíma- bundna stjórnarskrá og millibils- stjórn sem mun stjórna landinu næstu tvö árin áður en efnt verð- ur til fyrstu lýðræðislegu kosn- inganna í Kongó frá því landið fékk sjálfstæði 1960. ■ DÆMDIR MENN Í HÉRAÐSDÓMI Forsprakki þjófanna í Héraðsdómi. Pólverjarnir fjórir: Dæmdir fyr- ir innbrot DÓMSMÁL Pólverjarnir fjórir sem fóru ránshendi á stolnum sendi- ferðabíl um sveitir og bæi á Snæ- fellsnesi í fyrra hafa verið dæmd- ir til fangelsisvistar. Tveir voru dæmdir í sex mánaða fangelsi en einn í fimm mánaða fangelsi. Sá fjórði fékk hins vegar 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm. Þjófarnir stálu meðal annars munum fyrir 1,2 milljónir króna á bænum Böðvarsholti í Snæfells- bæ. Segja má að þeir hafi hrein- lega stolið öllu steini léttara á bænum; allt frá gólfmottum og málverkum til djúpsteikingar- potts, kerta og tepakka. ■ Grænmetisfæði: Dregur úr greind NOREGUR Grænmetisfæði getur haft neikvæð áhrif á greind barna sé þess neytt eingöngu, sam- kvæmt nýrri rannsókn sem gerð var við Oslóarháskóla. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að börn sem neyttu eingöngu grænmetisfæðis í móð- urkviði og á fyrstu mánuðum æv- innar mældust, þegar á heildina er litið, með lægri greindarvísitölu en jafnaldrar þeirra sem einnig fengu kjöt og fisk. Þetta er einkum rakið til þess að grænmetisfæði inniheldur yfirleitt ekki Omega-3 fitusýrur en talið er að þær geti haft afgerandi áhrif á andlegan þroska barnanna. ■ Dýr í útrýmingarhættu: Dvergkanín- ur að deyja út WASHINGTON, AP Dvergkanínum sem kenndar eru við Kólumbíu- dalinn í Washington-ríki í Banda- ríkjunum hefur verið bætt á al- þjóðlegan lista yfir dýr í bráðri út- rýmingarhættu. Gripið hefur ver- ið til aðgerða til þess að bjarga stofninum en líffræðingar telja að það sé nú þegar orðið um seinan. Kanínurnar, sem eru að líkind- um þær minnstu í heiminum, eru aðeins um tíu til fimmtán sentí- metrar á lengd og vega innan við 300 grömm. Talið er að innan við 30 dýr séu nú eftir í heiminum en aðeins þriðjungur þeirra lifir villtur í náttúrunni. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.