Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.03.2003, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 10.03.2003, Qupperneq 13
13MÁNUDAGUR10. mars 2003 LÖGREGLUFRÉTTIR Aukum og lífsgleði sjálfstraust Upplýsingar í síma 561 8585 og á www.gauilitli.is Allt þetta er innifalið: Spinnig 2 í viku taiboo, hipp hopp dans, stöðvaþjálfun, leikræn tjáning, styrking sjálfsmyndar o.m.f. Vikuleg vigtun, fitumæling, ummálsmælingar, ítarleg kennslugögn með mataruppskriftum, matardagbókum og leiðbeiningar varðandi fæðuval, eftirlit með mataræði, frír einkaþjálfari í tækjasal, fræðsludagur, vatnsbrúsi, bolur, vegleg verðlaun! Vikuna 10. – 15. mars hefjast í World Class hin vinsælu 8-vikna unglinganámskeið Gauja litla. Ný námskeið með breyttum áherslum. Unglingafjör Gauja litla - 13-16 ára HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra upplýsti á Al- þingi í vikunni að hann hafi átt fund með forsvarsmönnum að- standenda átröskunarsjúklinga. Hann hafi fundað með landlækni og starfsmönnum hans oftar en einu sinni. „Ég hef farið fram á að landlæknir komi með formlegar tillögur um áframhald í þessu máli.“ Þetta kom fram í svari ráðherra til Katrínar Fjeldsted. Heilbrigðis- ráðherra segir að ekki séu til full- nægjandi upplýsingar eða rann- sóknir um tíðni átakanna hér á landi en búast megi við að nýgeng- ið sé svipað og annars staðar í vest- rænum löndum þar sem talið er að 1-1,5% kvenna geti haft þessa röskun. Víða hafi meðferðir verið reyndar og einnig hafi nokkrir sjúklingar farið utan til meðferðar. Heilbrigðisráðherra þakkaði Katrínu Fjeldsted fyrirspurnina og sagðist hafa fullan hug á að fylgja þessu máli eftir að fengnum þeim tillögum sem hann ætti von á. ■ LONDON, AP Íslamskur klerkur hef- ur verið dæmdur til níu ára fang- elsisvistar í Bretlandi fyrir að hafa hvatt til þess að gyðingar, hindúar, Bandaríkjamenn og aðrir sem ekki játa íslamska trú verði myrtir. Hann sagði meðal annars að það mætti nota gjöreyðingar- vopn til að myrða aðra en múslíma rétt eins og það mætti nota skordýraeitur á kakkalakka. Klerkurinn var dæmdur sam- kvæmt lögum frá 1861 sem hafa ekki verið notuð í rúma öld. Hann er fyrsti íslamski klerkurinn til að vera lögsóttur fyrir boðskap sinn í Bretlandi. ■ ABDULLAH EL-FAISAL El-Faisal fæddist á Jamaica, frelsaðist og fluttist til Bretlands. Hvatti til morða: Klerkur dæmdur M YN D /A P KATRÍN FJELDSTED ALÞINGISMAÐUR Lagði fyrirspurn fyrir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra um meðferðarúrræði fyrir sjúklinga með átröskun. Heilbrigðisráðherra um átröskun: Ætlar að fylgja vandanum eftir FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI RÓLEGT Í SKAGAFIRÐI Lögreglan á Sauðárkróki segist ekki muna eftir rólegra laugardagskvöldi í langan tíma. FASTUR Í STROMPI Maður sem var lyklalaus reyndi að komast inn heima hjá sér í gegnum strompinn með þeim afleiðingum að hann sat fastur og þurfti hjálp slökkviliðsins við að komast úr hremmingunum. Hann sakaði ekki en var heldur svartur og sótugur þegar búið var að ná hon- um upp. HVASST UNDIR HAFNARFJALLI Lítill tengivagn fauk á hliðina við Hafnará á sunnudagsmorgun. Engin slys urðu á fólki og aðstoð- aði lögreglan í Borgarnesi við að rétta vagninn af, sem gekk vel. ERILL Í MIÐBORGINNI Nokkuð var um ölvun og pústra í miðborg Reykjavíkur um helgina. Einnig voru fimm kærðir fyrir ölvun- arakstur en að öðru leyti var ró- legt í Reykjavík.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.