Fréttablaðið - 10.03.2003, Side 21

Fréttablaðið - 10.03.2003, Side 21
MÁNUDAGUR 10. mars 2003 RSK             þessi gildir jafnt fyrir skil á pappír og rafræn skil. Hann er hinn  fyrir launþega og menn með sjálfstæða starfsemi.      að sækja um frekari frest á heimasíðu RSK, enda verði skattframtali síðan      . Viðbótarfrestur getur lengstur orðið til .      hafa verið send framteljendum. R Í K I S S K A T T S T J Ó R I  hvað?hvar?hvenær? 7 8 9 10 11 12 13 MARS Mánudagur Fljótlegtí hádeginu Upplýsingar í síma 561 8585 og á www.gauilitli.is Allt þetta er innifalið: Yogaspuni 3 til 5 sinnum í viku, vikuleg vigtun, fitumæling, ummálsmælingar, ítarleg kennslugögn með mataruppskriftum, matardagbókum og leiðbeiningar varðandi fæðuval, eftirlit með mataræði, frír einkaþjálfari í tækjasal, fræðsludagur, vatnsbrúsi, bolur, vegleg verðlaun. Vikuna 10. – 15. mars Samanlagt höfum við misst 40 kg á 8 vikum Þetta getur þú líka! hefjast í World Class hin vinsælu 8-vikna aðhaldsnámskeið Gauja litla á aðeins 14.500 kr. Ný námskeið með breyttum áherslum. Í boði eru morgun- og kvöldtímar. Frír prufutími. Fagmennska í fyrirrúmi. Arthur -14,9 kg Sigurjón -11,7 kg Anna -13,4 kg KVIKMYNDIR Sumir klifra upp á hæstu tinda heims. Aðrir láta sér nægja stuttar gönguferðir inn á milli fjalla. Enn aðrir ana á snjó- sleðum um fjöll og firnindi. Allt fellur þetta undir fjalla- mennsku eins og íslenskir áhuga- menn um útivist á fjöllum vilja skilgreina hana. „Fjallamennska er ekki bara hættulegt klifur, heldur erum við að tala um alla flóruna. Fjallahjól- in, kajakana, gönguferðir og hvað eina,“ segir Halldór Kvaran, for- maður Íslenska Alpaklúbbsins. Meginmarkmið þess klúbbs er að efla áhuga fólks á fjalla- mennsku. Í kvöld og annað kvöld efnir hann til kvikmyndahátíðar í Smárabíói. Þar verða sýndar átján bíómyndir um fjallamennsku, gerðar ýmist af atvinnumönnum eða áhugamönnum í kvikmynda- gerð. Sú stysta er ekki nema tvær mínútur að lengd en sú lengsta 49 mínútur. Þessi kvikmyndahátíð er kennd við bæinn Banff í Kanada. „Þar voru menn svo sniðugir að búa til fjallamyndahátíð sem er orðin að miðstöð fjallamynda í heiminum. Á síðasta ári bárust um það bil 250 myndir frá 29 lönd- um í þessa keppni. Dómnefnd vel- ur svo bestu myndir ársins í nokkrum flokkum, bestu heimild- armyndina, bestu stuttmyndina, bestu klifurmyndina og svo fram- vegis.“ Úr þessum myndum valdi Íslenski Alpaklúbburinn myndirn- ar sem sýndar verða í Smárabíói. Tvær myndir frá Íslandi fá svo að fljóta með, þótt þær hafi ekki tek- ið þátt í keppninni í Banff. ■ FUNDIR  12.30 Bandarísku kvikmyndagerð- armennirnir Brad Grey og So Yong Kim flytja fyrirlestur um verk sín í Listahá- skóla Íslands, Laugarnesi, stofu 024.  14.00 Doktorsvörn fer fram við Læknadeild Háskóla Íslands. Chen Hupiping ver ritgerð sína um galla í erfðaefni brjósta- og magakrabbameina. Andmælandi er doktor Stefan Imreh frá Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Athöfnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbygg- ingu Háskóla Íslands og eru allir vel- komnir meðan húsrúm leyfir.  15.30 Jens Thomsen, bankastjóri danska seðlabankans, verður frummæl- andi á fundi um hið sérstaka samband Danmerkur og evrunnar, sem haldinn verður í Seðlabanka Íslands.  16.00 Svæðisvinnumiðlun Norður- lands eystra, Eining-Iðja, Félag verslunar- og skrifstofufólks og fræðslufulltrúi kirkj- unnar á Akureyri halda fræðslu- og um- ræðufund um atvinnumissi, áhrif hans á líðan fólks og hvað hægt er að gera á meðan atvinnuleysi varir. Fundurinn verður haldinn á Græna hattinum á Ak- ureyri. TÓNLIST  20.00 Gunnar Kvaran sellóleik- ari verður gestur Jónasar Ingimund- arsonar á námskeiðinu „Hvað ertu tónlist“, sem haldið er í Salnum í Kópavogi. KVIKMYNDIR  20.00 Íslenski Alpaklúbburinn heldur Banff-fjallamyndahátíð í kvöld og annað kvöld í Smárabíói. Þar verða sýndar átján fjallamyndir af ýmsum gerðum. Í Bankastræti 14 er The Deli þar sem hægt er að fá samlokur á 480 krónur, baguettes á 580, grilluð panini á 580 og pastasalöt á 550 eða 650 krónur. Þarna starfa mat- reiðslumenn sem baka sjálfir brauðin og sinna matargerðinni af fagmennsku og natni. Gestir geta hvort heldur sem er snætt á staðnum eða tekið með sér mat- inn. Þar rétt hjá, á Laugavegi 2, er svo Gott í gogginn þar sem hægt er að ná sér í lasagna eða burritos á 680 krónur. Einnig eru þeir með pizzur og baguettes, nachos og ýmis konar risotto. Yfirleitt eru nokkrar tegundir af pastaréttum líka í boði. Lítill skammtur kostar 490 en stór 650 krónur. Áhersla er á mexíkanskt bragð á þessum stað. Í Vallarstræti 4 við Ingólfstorg, þar sem áður var Björnsbakarí, eru nú seldar smurðar langlokur, bæði heitar og kaldar. Pronto heitir staðurinn og var opnaður síðasta sumar. Langlokurnar kosta 480 krónur og eru fáanlega með nánast hverju sem manni dettur í hug, þar á meðal græn- meti, kjúkling og roastbeef. Einnig er hægt að fá þarna kleinuhringi, kanelsnúða og fleira bakkelsi. Fjallamyndir í Smárabíói ÚR MYNDINNI JEHOVAH’S WETNESS Íslenski Alpaklúbburinn heldur Banff-fjalla- myndahátíð í Smárabíó í kvöld og annað kvöld. Veislan hefst klukkan átta bæði kvöldin og stendur í rúma þrjá tíma með hléi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.