Fréttablaðið - 10.03.2003, Blaðsíða 22
22 10. mars 2003 MÁNUDAGUR
LORD OF THE RINGS kl. 4/ 4 í lúxusSPY KIDS 2 kl. 1.40, 3.45 og 5.50
GANGS OF NEW YORK kl. 8 í Lúxus
GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.10
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali 4
THE RING kl. 5.45, 8 og 10.20
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6
TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.10
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.30 b.i.16.ára
kl. 8CATCH ME IF YOU CAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kl. 8 og 10.15THE RING
kl. 6STELLA Í FRAMBOÐI
kl. 6TWO WEEKS NOTICE
MAN WITHOUT A PASTkl. 6, 8 og 10
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Fréttiraf fólki
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.30 b.i.12
CATCH ME IF YOU CAN kl. 8
kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Velgengni í fjármálum
Námskeið um
nýja hugsun í rekstri heimilisins
Kennt verður að:
● Auka frjálsar ráðstöfunartekjur heimilisins.
● Greiða hratt niður skuldir.
● Stýra útgjöldum.
● Fjárfesta í sparnaði og mynda sjóði.
● Skoða áhrif viðhorfa og hegðunar á fjármálin.
Námskeiðið verður haldið í Háskólanum í Reykjavík
15. og 16. mars, kl. 9.00-13.00
Skráning og upplýsingar í síma 575 1551
Leiðbeinandi: Ingólfur H. Ingólfsson, félagsfræðingur
og rekstrarstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Taktu hugann úr lás
www.avatar.is Avatar
JENNIFER LOPEZ
Er ekki eins pen og hún virðist vera ef
marka má orð fyrrverandi eiginmanns
hennar.
Jennifer Lopez:
Ropar í gríð
og erg
Dansarinn Cris Judd segir aðJennifer Lopez, eiginkona hans
fyrrverandi, hafi þann leiða ávana
að ropa í gríð og erg.
Judd opinberaði leyndarmálið
þegar hann kom fram í sjónvarps-
þættinum „I’m a Celebrity, Get Me
Out of Here!“.
Í þættinum sagði Judd að söng-
og leikkonan hefði meðal annars
ropað á fyrsta stefnumótinu þeirra.
„Hún talaði lítið sem ekkert en
ropaði þess í stað í gríð og erg.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Judd
talar um hjónaband þeirra opinber-
lega en það stóð ekki yfir nema í
átta mánuði. Þau skildu í fyrra.
Hann segir að þau talist ekki leng-
ur við. „Hún ákvað að halda áfram
með líf sitt,“ sagði dansarinn
hryggbrotni. ■
Rokkarinn Paul Weller og hljóm-sveitin Faithless eru á meðal
þeirra tónlistarmanna sem komu
fram á tónleikum gegn stríðsátök-
um í Írak í London á laugardags-
kvöld. Aðrir listamenn eru meðal
annars Ian McCulloch úr Echo &
the Bunnymen og Evan Dando sem
áður var í Lemonheads. Yfirskrift
tónleikanna er „One Big No“ (eða
„Eitt stórt nei“) og ætlar Faithless
meðal annars að leika órafmagnað,
sem hlýtur að teljast athyglisvert í
ljósi þess að sveitin leikur raftón-
list.
KvikmyndagerðarmaðurinnGeorge Lucas, skapari Stjörnu-
stríða, hefur tekið að sér að vera
andlit herferðar gegn því að al-
menningur sæki
kvikmyndir ólög-
lega á Netið. Hann
segir að ef þetta
haldi áfram muni
það aðeins leiða til
þess að fjöldi
manna missi vinn-
una. Hann kemur
fram í auglýsingaherferð þar sem
hann segir meðal annars: „Ef þið
haldið þessu áfram, þá endar þetta
með því að hætt verði að fram-
leiða kvikmyndir. Svo einfalt er
þetta.“
Leikarinn Bruce Willis segist far-inn að efast um
að af framleiðslu
fjórðu „Die Hard“
myndarinnar
verði. Hann segist
einfaldlega vera
orðinn leiður á
persónu sinni í
myndunum og að
Anthony Kiedis, söngvari RedHot Chili Peppers, ætlar að
senda frá sér ævisögu .
Í bókinni, sem hefur fengið
nafnið „Scar Tissue“, talar hinn
fertugi rokkari meðal annars opin-
skátt um eiturlyfjanotkun sína.
Larry Sloman mun rita bókina í
samstarfi við Kiedis en hann skrif-
aði meðal annars bókina „Private
Parts“ um útvarpsmógúlinn
Howard Stern.
Talið er að bókin komi út síðla
næsta árs þegar Red Hot Chili
Peppers fagnar 20 ára starfsaf-
mæli sínu. Hljómsveitin hefur ver-
ið á tónleikaferðalagi upp á síðkast-
ið. Sveitin hyggst endurútgefa fjór-
ar fyrstu breiðskífur sínar,
„Mothers Milk“, „Red Hot Chili
Peppers“, „Freaky Styley“ og „The
Uplift Mofo Party“, í næstu viku. ■
■ FÓLK ■ TÓNLIST
Söngvarinn Jón Kr. Ólafssonsöng fyrst inn á plötu árið 1969.
Þá söng hann lagið „Ég er frjáls“
við flutning hljómsveitar sinnar
Fagon. Hann söng einnig lagið
„Tondeleyo“ í kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, „Börn náttúr-
unnar“. Með framkomu sinni í
myndinni vill Jón meina að hann
sé sá Íslendingur sem eigi þá út-
setningu lagsins sem hafi farið
víðast um heiminn. Eftir flutning
Bjarkar Guðmundsdóttur á laginu
á Gling-Gló plötunni hlýtur það að
teljast álitamál.
Jón Kr. segist alla tíð hafa ver-
ið safnari. Hann fékk þá hugdettu
rétt fyrir aldamót að stofna tón-
listarsafnið Melódíur minning-
anna á heimili sínu á Bíldudal þar
sem gestum er boðið að líta, og
hlusta, um öxl. Safnið var opnað á
afmælisdegi vinar hans, og plötu-
útgefanda, Svavars Gests 17. júní
árið 2000.
„Það má eiginlega segja að allt
heimili mitt sé eins konar tónlist-
arsafn,“ útskýrir Jón. „Á neðri
hæð hússins er safnið en á efri
hæðinni er mitt einkasafn. Ég
nenni nú ekki að fá alla heims-
byggðina upp í rúm til mín þannig
að efri hæðin er lokuð. Það væri
þó kannski ágætt samt að fá smá
hluta af henni.“
Á safninu geta gestir fengið að
skoða ýmsa muni og minningar
tengdar íslenskri dægurlagatón-
list, allt frá veggspjöldum, hljóð-
færum og gömlum 78, 45 og 33
snúninga vínylplötum. Á staðnum
eru svo vitanlega hljómflutnings-
tæki til þess að gestir geti fengið
að heyra hljómplöturnar. „Ís-
lenska þjóðin er gífurlega dugleg
að henda hlutum. Það er verið að
tala í ræðum og riti hvað við séum
gáfuð á sagnfræðina og menning-
una en svo henda menn öllu.“
Á veggjum hanga einnig föt og
skartgripir sem voru í eigu dæg-
urlagasöngvara á borð við Hauk
Morthens, Hallbjörgu Bjarna,
Ellý Vilhjálms, Ragga Bjarna, Sig-
ríði Sigurðardóttur og Krist-
björgu Löve. „Þetta er allt fólk
sem stóð upp úr. Þjóðin hefur ekki
átt betri dægurlagasöngkonu en
Ellý Vilhjálms var, þó að henni
hafi ekkert endilega fundist það
sem hún var að gera neitt sér-
stakt. Hún var á heimsmæli-
kvarða.“
Jón segist fá slæðing af gestum
yfir ferðamannatímann á sumrin.
„Málið er bara að ferðamannatím-
inn er allt of stuttur. Maður finnur
það strax eftir Verslunarmanna-
helgina að það byrjar að draga úr
aðsókn. Hann ætti að dragast út í
september, það er svo fallegur
tími. Sumum finnst safnið vera of
langt í burtu. Það þarf ekki, og á
ekki, allt að vera á Laugaveginum
í Reykjavík,“ segir Jón að lokum.
biggi@frettabladid.is
Aftur til
fortíðar á Bíldudal
Söngvarinn Jón Kr. Ólafsson frá Bíldudal er frjáls eins og fuglinn. Íslensk tónlist-
armenning er honum hjartans mál og rekur hann tónlistarsafnið „Melódíur
minninganna“ á neðri hæð heimilis síns þar í bæ.
JÓN KR. ÓLAFSSON
Er þekktastur fyrir að
flytja lagið „Ég er frjáls“
ásamt sveit sinni Fagon
árið 1969. „Ef ég á að
vera alveg hreinskilinn
þá fannst mér þetta lag
og ljóð ekkert sérstakt,“
segir Jón, sem nú rekur
tónlistarsafn í Bíldudal.
„Kannski bara vegna
þess að ég er svo róm-
antískur í mér. Ég var
bara að vinna þarna og
gerði eins og mér var
sagt.“
Söngvari Red Hot Chili Peppers:
Skrifar ævisögu
RED HOT CHILI PEPPERS
Anthony Kiedis, lengst til vinstri, hefur lifað
ansi skrautlegu lífi og verður eflaust fróð-
legt að lesa um það í ævisögu hans.
■ FÓLK
CHICAGO kl. 8