Fréttablaðið - 10.03.2003, Page 30
FRAMKVÆMDASTJÓRI „Þetta leggst
vel í mig og er heilmikil áskorun í
mínum huga. Stofnunin hefur haft
fulllitla peninga til umráða til að
sinna öllum þeim verkefnum sem
að steðja,“ segir Guðrún Gísla-
dóttir, sem nýverið var skipuð í
stöðu framkvæmdastjóra Heyrn-
ar- og talmeinastöðvarinnar til
næstu fimm ára.
Guðrún, sem fædd er árið
1958, telur sig Akureyring þó að
hún hafi verið búsett jafnlengi
hér sunnan heiða og fyrir norðan.
Foreldrar hennar eru Gísli Krist-
inn Lórenzson, forstöðumaður
Sundlaugarinnar á Akureyri, og
móðir er Ragnhildur Franzdóttir,
bókavörður á Amtbókasafninu á
Akureyri. Guðrún er gift Halli
Leópoldssyni verktaka en dóttir
þeirra er Halla Hallsdóttir, 18 ára
yngismær við nám í MH.
Lítill tími hefur gefist til að
sinna tómstundum því samhliða
70% starfi fjármálastjóra hjá
Nesskipum hefur Guðrún verið í
fullu námi við Háskóla Íslands en
hún er að ljúka mastersnámi í
stjórnun og stefnumótun innan
viðskiptadeildarinnar. „En þegar
fer að vora og prófin búin og ég
komin sæmilega inn í nýtt starf...
þá á ég ágætis bókastafla sem bíð-
ur þess að verða lesinn. Svo fer ég
kannski eitthvað að komast út í
garð með vorinu. Afskaplega af-
slappandi að moldvarpast úti í
garði. Nokkuð öruggt að maður er
ekki truflaður þar því menn eru
svo hræddir við að verða settir í
vinnu.“
Guðrún hefur haft persónuleg
kynni af störfum þeirrar stofn-
unnar sem hún er að fara að stýra.
„Dóttir mín þurfti á aðstoð að
halda þegar hún var barn, sem og
afi, sem þurfti að notast við
heyrnartæki. Við Íslendingar eru
afskaplega passasamir upp á
tunguna okkar og tökum eftir því
ef eitthvað er að. Mikil kröfu-
harka ríkir í tengslum við að tala
rétt og með skýran framburð.
Stam, gormælgi og annað slíkt ...
fólk tekur umsvifalaust eftir því,
við erum líklega hálfgerðir fasist-
ar á því sviði.“ ■
30 10. mars 2003 MÁNUDAGUR
MÁNUDAGSMATUR AFMÆLI
Guðrún Gísladóttir tekur innan skamms
við starfi framkvæmdastjóra hjá Heyrn-
ar- og talmeinastöð Íslands.
Stöðuveiting
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Jaðrar við að Íslendingar séu hálfgerðir
málfarsfasistar.
Spurning: Hvernig veiðir þú smá-
fugl?
Svar: Með því að klifra upp í tré
og leika ber.
Avis dagsleiga, helgarleiga, vikuleiga. Eyddu minna í bílinn en meira í sjálfan þig og þína.
Kynntu þér tilboð Avis á bílaleigubílum.
Hringdu í Avis sími 5914000
Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – www.avis.is Við gerum betur
Njóttu þ
ess að
ferðast
um lan
dið
á góðum
bíl
Á Akureyri.
Bryndís Schram.
Gallerí Fold.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Ég vil bara snarl á mánudög-um,“ segir Heiðrún Jónsdóttir,
upplýsingafulltrúi Landssímans.
„Þá fæ ég mér venjulega óhrært
skyr með sykri og rjóma og heil-
hveitibrauð með skinku og osti.
Með þessu drekk ég léttmjólk.
Þetta er létt og fer vel í maga eft-
ir oft á tíðum þungar máltíðir
helgarinnar.“
Annars reynir Heiðrún að vera
með heita máltíð á kvöldin aðra
daga vikunnar fyrir sig og son
sinn: „En strákurinn fær heita
máltíð á leikskólanum í hádeginu
á mánudögum og ég reyndar líka
í vinnunni þannig að snarlið er
gott á mánudagskvöldum,“ segir
hún. ■
Jarðarfarir
13.30 Sólveig Jónsdóttir frá Patreksfirði
verður jarðsungin frá Áskirkju.
Afmæli
Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona er 37
ára í dag.
Andlát
Hólmsteinn Hallgrímsson, málara-
meistari, lést föstudaginn 7. mars.
Guðmundur Sveinsson, Njarðvíkurbraut
16, Innri-Njarðvík, lést fimmtudaginn 6.
mars.
Sara Stefánsdóttir, Miðstræti 26,
(Landakoti), Vestmannaeyjum, lést mið-
vikudaginn 5. mars.
Anna Kristín Jónsdóttir, Fögrubrekku 5,
Kópavogi, lést miðvikudaginn 5. mars.
Guðbjörg Hermannsdóttir, Hávegi 15,
Kópavogi, lést föstudaginn 7. mars.
TÍMAMÓT
FRÉTTIR AF FÓLKI
Áföstudag sást til Ríó Tríósinsá hádegisverðarfundi á veit-
ingastað í miðborginni. Með þeim
Helga Péturssyni, Ágústi Atla-
syni og Ólafi Þórðarsyni var eng-
inn annar en gamalgróni plötuút-
gefandinn Steinar Berg Ísleifs-
son. Hvort útgáfumál bar á góma
skal ósagt látið. Víst er að Steinar
Berg hefur fyrst og fremst ein-
beitt sér að erlendum mörkuðum
á undanförnum árum. Sjálft fór
Ríó Tríó á sínum tíma í fræga
tónleikaferð til Ameríku.
37 ÁRA „Mér finnst fínt að eiga af-
mæli en ég veit ekki hvort ég geri
nokkuð í tilefni dagsins. Mánu-
dagar eru ekki mjög spennandi til
veisluhalda,“ segir Margrét Vil-
hjálmsdóttir leikkona, sem í dag
verður 37 ára.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Margréti var hún stödd í Svíþjóð í
menningarreisu og vinnuferð
sem tengdist næsta verkefni leik-
hópsins sem stóð að rómaðri fim-
leikasýningu á Rómeó og Júlíu.
„Ég er svona að njósna um ný trix
og við erum að vinna að nýju
handriti.“
Í Svíþjóð verður Margrét fram
í maí. Á þeim tíma mun hún
skreppa til Kúbu og svo Frakk-
lands vegna Fálka, en í Rúðuborg
er reglulega haldin norræn kvik-
myndahátíð. Margrét hefur und-
anfarið ferðast um allan heim í
tengslum við þátttöku sína í
„Shooting star“-verkefninu þar
sem evrópskir leikarar eru
kynntir rækilega og víða.
Góðar afmælisveislur hafa
verið margar í gegnum tíðina.
„Jájá, alveg brjálað húllumhæ,
einkum í tengslum við stórafmæli
mín. En ég get ómögulega gert
upp á milli.“ Margrét gengst fús-
lega við því að vera mikil pakka-
stelpa. „Já, ég held ég fái ein-
hverja fallega afmælisgjöf. Fólk
þorir ekki öðru – mér finnst æðis-
legt að fá pakka – en ekki síður
æði að sjá svipinn á fólki þegar
það opnar gjöf frá mér. Sælla er
að gefa en þiggja. Þetta snýst við
á ákveðnum punkti, ég man bara
ekki alveg hvenær það gerist,
þegar hin barnslega pakkagræðgi
snýst í andhverfu sína.“
Eftirminnilegasta afmælis-
gjöfin er líklega sú sem Margrét
fékk senda frá karli sínum fyrir
tveimur árum. „Hann var þá í
Berlín og sendi mér risastóran
pakka, líklega um 20 kg. Ég var
óratíma að taka utan af gjöfinni
sem var pökkuð inn í maskínu-
pappír þar sem á voru ýmsar
teikningar og skilaboð til mín.
Innst var risastór jólasería, mjög
þung. Ég vissi ekki hvort ég ætti
heldur að hlæja eða gráta. Reyndi
að nota þetta fyrir sæng en það
var ekki mikil hlýja í seríunni.“
jakob@frettabladid.is
Barnsleg pakka-
græðgi umturnast
Margrét Vilhjálmsdóttir gengst fúslega við því að vera pakkastelpa en
henni finnst ekki síður gaman að gefa gjafir.
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Jæja, Bubbi! Okkar eina
von er að hann berji ekki
mann með gleraugu!
Gott að moldvarpast úti í garði
MARGRÉT VIL-
HJÁLMSDÓTTIR
Fékk eftirminni-
lega gjöf frá karli
sínum, risastóra
jólaseríu, og vissi
ekki hvort hún
ætti heldur að
hlæja eða gráta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M