Fréttablaðið - 10.03.2003, Side 32
Láttu erfiða
viðskiptavini
ekki koma þér
úr jafnvægi!
Söluskóli Crestcom, einn virtasti skóli heims í söluþjálfun,
kynnir nýtt námskeið sem hefst miðvikudaginn 19. mars.
Þátttakendur öðlast m.a. þjálfun í:
• Að greina merki um kaupáhuga og gera stöðuathuganir
• Að snúa hörðum mótbárum í jákvæð viðskipti
• Að eiga við erfiða viðskiptavini
• Að semja á árangursríkan hátt
• Að ljúka sölu af öryggi.
Nýtt nám
skeið
í sölu- og sam
ningatæ
kni
hefst 19. m
ars
Crestcom er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem er starfandi í yfir
50 löndum. AT&T, Coca Cola, Kodak, Microsoft, Oracle, Shell, Sony
og Toyota eru á meðal margra heimsþekktra fyrirtækja sem hafa
notað Crestcom til að þjálfa starfsmenn sína.Skráning og upplýsingar: crestcom@crestcom.is og í símum 561 5800 og 896 6960.
Leiðbeinandi:
Þorsteinn Garðarsson
viðskiptafræðingur
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Yfirlýsing
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Vegna þráláts orðróms – um aðég sé í samsæri með Baugi, Jóni
Ásgeiri, Hreini Loftssyni, Jóni
Ólafssyni, Ingibjörgu Sólrúnu, Öss-
uri Skarphéðinssyni, Ellert B.
Schram, Gunnari Smára Egilssyni,
Mafíunni, Þjóðkirkjunni, lista-
mannapakkinu í 101, Blaðamannafé-
lagi Íslands og Samfylkingunni og
hafi lekið trúnaðarupplýsingum í
fjölmiðla og boðið forseta Íslands,
forsætisráðherra, ríkisstjórn, Al-
þingi og Kolkrabbanum 2500 krónur
á mann og 2 fyrir 1 tilboð hjá Dó-
mínós og 1,5 lítra kók ókeypis fyrir
að senda mér jákvæðar hugsanir –
hafa lögmenn mínir samið fyrir mig
eftirfarandi yfirlýsingu:
ALDREI nokkurn tímann hef ég
heyrt minnst á Jón Gerald Sullen-
berger og þegar ég var kynntur fyr-
ir honum í reykfylltu bakherbergi
var mér sagt að hann héti Engil-
bjartur og væri stýrimaður á hand-
færabát fyrir Westan. Það er tvífari
minn og ekki ég sjálfur sem sést á
myndbandsupptökum eftirlitsvéla
vera að leggja kapal í einkatölvu
bankastjóra Búnaðarbankans. Þessi
sami tvífari hefur gert sér leik að
því að koma fram í gervi landbúnað-
arráðherra í Malt-auglýsingum og
einnig brá hann sér í gervi Kristins
H. Gunnarssonar og skrökvaði því
að Alþingi að ríkisbankarnir hefðu
keypt hlutabréf í DeFraud fyrir 6
milljarða að undirlagi ríkisstjórnar-
innar. Hið sanna í málinu er að
bankastjórarnir gerðu þetta í ölæði
til að spæla ríkisstjórnina sem
hefndi sín með því að selja ofan af
þeim bankana.
EINNIG er rétt að taka það fram
að ég borga skatta mína í Bretlandi
þrátt fyrir að á nafnspjaldi mínu
standi að ég eigi heima í Stjörnubíói
við Laugaveg. Ástæðan fyrir því að
bresk skattayfirvöld vilja ekki
kannast við mig er sú að endurskoð-
andi minn sem býr á Jómfrúreyjum
datt í það á leiðinni til London og
týndi framtalsskýrslu minni og öllu
bókhaldi, hálffullum ópalpakka
(grænum) og silfurhúðuðum skrúf-
blýanti, og er nú í meðferð.
AÐ LOKUM ÞETTA: Í fyrsta lagi
er það ósatt að ég hafi fengið skaft-
pott lánaðan hjá nágrannakonu
minni í næsta húsi. Í öðru lagi var
hann heill þegar ég skilaði honum.
Og í þriðja lagi var hann brotinn
þegar ég fékk hann lánaðan. ■