Fréttablaðið - 14.03.2003, Side 1

Fréttablaðið - 14.03.2003, Side 1
TÓNLIST Hávært hugarangur bls. 36 Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 14. mars 2003 Tónlist 34 Leikhús 34 Myndlist 34 Bíó 36 Íþróttir 32 Sjónvarp 38 KVÖLDIÐ Í KVÖLD ALÞINGI Stefnt er að því að ljúka þingstörfum 128. löggjafarþingsins á Alþingi í dag. Þingi verður því næst slitið og þingmenn munu snúa sér að fullum krafti að kosninga- baráttunni. Vegna komandi kosn- inga er þingið styttra en að jafnaði. Sá hópur þingmanna sem kveður þinghúsið í dag mun ekki mæta all- ur að hausti. Við taka spennandi kosningar sem munu skera úr um það hverjir verma þingsæti næstu fjögurra ára. Þingmenn fara í kosningafrí TÓNLEIKAR Hljómsveitin Kol isha flytur austur-evrópska gyðingatón- list. Til liðs við hljómsveitina geng- ur þýska söngkonan Inge Mandos- Friedland. Kol isha þýðir rödd kon- unnar á hebresku. Meðal strangtrú- aðra gyðinga má söngrödd kvenna ekki heyrast í návist karla. Auk hljómsveitarinnar mun Megas koma fram á tónleikum í Stúdenta- kjallaranum í kvöld. Gyðingatónlist FYRIRLESTUR Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður flytur erindi í Odda, Há- skóla Íslands klukkan eitt. Þar fjallar hann um mannlega göfgi og spyr hvort hópar manna verði sviptir hinum jafnborna rétti til mannlegrar virðingar. Mannleg virðing KÖRFUBOLTI Haukar og Tindastóll mætast á Ásvöllum í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Kefl- víkingar og ÍR-ingar leiða saman hesta sína í Keflavík. Báðir leikirn- ir hefjast klukkan 19.15. Úrslitakeppni í körfunni JAFNRÉTTI Málin leyst á heimavelli FÖSTUDAGUR 62. tölublað – 3. árgangur bls. 14 ALÞINGI Draga verður úr misskiptingu bls. 20 Kringlu kast Nýtt kortatímabil HEILBRIGÐISMÁL „Við erum að íhuga í fullri alvöru að stofna sjálfs- eignarfélag um rekstur heilsu- gæslu fyrir al- menning hér á Suðurnesjum,“ segir Kristján Gunnarsson for- maður Verka- lýðs- og sjó- m a n n a f é l a g s Keflavíkur. Hann segir ástandið hrikalegt og á hverjum morgni sláist menn um þær fáu stundir sem úthlutað sé á heilsu- gæslunni þann daginn. „Það dug- ir skammt að senda frá sér ein- hverjar tillögur og áskoranir sem gagnast ekki veiku fólki. Það er alveg ljóst að þessi mál eru kom- in í alvarlegan hnút sem ekki verður leystur auðveldlega.“ Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra segir það rétt að vandi sé fyrir hendi ef læknar vilji ekki ráða sig til starfa, en hann vilji ekki gangast við því að yfirstjórn heilbrigðisstofnunarinnar hafi eitthvað með það að gera. Hann segir Sigríði Snæbjarnardóttur hafa gert sér grein fyrir málum. „Hún hefur lagt sig mjög fram um að ráða lækna með því að fá sérfræðinga til starfa. Ég trúi ekki að það verði ekki hægt að fá heilsugæslulækna á þeim kjörum sem kjaranefnd úrskurðaði um. Sigríður staðhæfði við mig að öll- um læknunum tíu hefði boðist að starfa áfram en þeir ekki viljað það á þeim kjörum sem þeim bauðst. Ráðherra segir ráðuneytið hafa átt ágætt samstarf við stjórn Félags heimilislækna og það eigi ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að læknar ráði sig til starfa á Suðurnesjum. María Ólafsdóttir, fyrrum yfir- læknir, segir það alls ekki vera komið frá þeim læknum sem létu af störfum að aðrir læknar væru hvattir til að sækja ekki um. „Það er ekkert slíkt í gangi hjá okkar samtökum. Það er hins vegar al- veg ljóst að læknar treysta ekki yfirstjórn heilbrigðisstofnunar- innar og sjá það ekki sem fýsileg- an kost að sækja um á Suðurnesj- um. Ef vilji hefði verið fyrir hendi þá hefði verið hægt að leysa ráðn- ingarmál okkar á sínum tíma. Ég get ekki túlkað það öðruvísi en að okkur hafi verið hafnað og það er spurning hvers vegna,“ segir María. Hún segir alla læknana sem hafi verið að störfum á heilsugæslustöðinni í öðrum störf- um, en misjafnt sé hvort þeir hafi fest sig í starfi eða ekki. bergljot@frettabladid.is Suðurnesjamenn vilja nýja heilsugæslustöð Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Suðurnesja, segir læknamál kom- in í alvarlegan hnút. Rætt er um að stofna sjálfseignarfélag um einkarekna heilsugæslustöð. Ráð- herra segist ekki skilja hvers vegna læknar vilja ekki ráða sig. ÞETTA HELST Meðallaun bænda eru um 68þúsund að því er fram kom í utandagskrárumræðu á Alþingi. Landbúnaðarráðherra var gagn- rýndur harðlega í umræðunni sem hann sagði vera ósann- gjarna. bls. 2 Serbneska lögreglan handtók ígær nokkra meðlimi glæpa- samtakanna Zemun sem eru grunaðir um að eiga þátt í morð- inu á Zoran Djindjic, forsætisráð- herra Serbíu, á miðvikudag. bls. 6 Engir bindandi kjarasamningareru til á milli smábátaeigenda og launaðra trillusjómanna. Dæmi eru um að trillukarlar lifi í ótta við tafarlausa uppsögn og er þeim jafnvel hótað að vera sendir í land ef þeir kvarta. bls. 12 Guðni Bergsson var valinn í A-landsliðshópinn fyrir Evrópu- leikinn gegn Skotum 29. mars. Guðni lék síðast landsleik í sept- ember árið 1997. bls. 8 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 24% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á föstudögum? 66% 71% SAMGÖNGUR Háhraðaferjur eða loftpúðaskip eru ekki raunhæfur kostur til þess að bæta samgöng- ur milli Vestmannaeyja og lands að mati starfshóps samgönguráð- herra. Veður og sjólag myndu valda því að ferðir yrðu stopular. Starfshópnum var ætlað að fjalla um samgöngumál Vestmanney- inga í lofti og á legi. Niðurstaða hópsins er sú að ferjulægi á Bakkafjöru í Land- eyjum gæti verið fýsilegur kost- ur. Hvetur hópurinn til þess að ekki verði ráðist í stórfelldar fjárfestingar í samgöngumann- virkjum eða samgöngutækjum fyrr en þessi kostur hefur verið fullkannaður. Sé þessi kostur raunhæfur skuli að því stefnt að ferja verði farin að sigla milli Eyja og Bakkafjöru á árunum 2007 til 2008. Gert er ráð fyrir að þá verði siglingar á tveggja tíma fresti og muni ferðin taka hálftíma. Legg- ur starfshópurinn áherslu á að stjórnvöld stuðli að því að unnt verði að gera þær rannsóknir sem nauðsynlegar séu á næstu tveimur árum til að kanna hvort og hvernig hægt sé að byggja ferjulægi á Bakkafjöru. Enda þótt hópnum hafi ekki verið falið að skoða vegtengingu milli lands og Eyja hvetur hópur- inn til þess að áformaðar rann- sóknir íslenskra og bandarískra vísindamanna á svæðinu verði styrktar af stjórnvöldum. Að mati starfshópsins myndu slíkar rannsóknir nýtast hvort sem væri vegna vegtengingar eða byggingar ferjulægis á Bakka- fjöru. ■ Samgöngur milli lands og Eyja: Hálftíma ferð á tveggja tíma fresti NÝTT GREASE-ÆÐI Ljóst er að mun færra hæfileikafólk en vill mun verða með í uppfærslu á söngleiknum Grease sem stefnan er að frumsýna í júní. Um tvö hundruð ungmenni mættu til að sýna hæfileika sína í þeirri von að fá hlutverk í sýningunni. Með aðalhlutverk fara skærustu poppstjörnur ungu kynslóðarinnar. Jón Jósep Snæbjörnsson, söngvari hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, og Birgitta Hauk- dal, fulltrúi Íslands í Evróvision. Alls er gert ráð fyrir að milli 40 og 50 manns muni taka þátt. „Það er alveg ljóst að þessi mál eru komin í alvar- legan hnút.“ REYKJAVÍK Sunnanátt 5-10 m/s. Skýjað með köflum og stöku skúrir eða él. Hiti 0 til 5 stig VEÐRIÐ Í DAG + + + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Skýjað 1 Akureyri 5-10 Léttskýjað 3 Egilsstaðir 5-10 Léttskýjað 2 Vestmannaeyjar 5-10 Skúrir 3 ➜ ➜ ➜ ➜ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.