Fréttablaðið - 14.03.2003, Blaðsíða 2
ALÞINGI Meðallaun sauðfjárbænda
eru rúmar 68 þúsund krónur á
mánuði að sögn Sigríðar Jóhannes-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar.
Í utandagskrárumræðum á Al-
þingi í gær um kjör bænda gagn-
rýndi Sigríður
landbúnaðarráð-
herra harðlega
fyrir skeytingar-
leysi gagnvart
m á l e f n u m
bænda. Vitnaði
hún í ummæli
hans fyrir síð-
ustu kosningar
þegar hann líkti vinnubrögðum
ráðuneytisins, sem þá heyrði undir
Guðmund Bjarnason flokksbróður
hans, við hraða snigilsins.
„Því miður er það svo að lítið
hefur breyst við tilkomu hæstvirts
núverandi landbúnaðarráðherra,“
sagði Sigríður. „Allavega hefur
hraðinn ekki aukist, sumir hafa
haft á orði að nú væri snigillinn
sofnaður. Aðrir hafa látið að því
liggja að hann væri kannski dauð-
ur og best væri að taka landbúnað-
armálin undir annað ráðuneyti,
sem ekki væri alveg eins seinfært
í sínu göngulagi.“
Sigríður sagði að þrátt fyrir
beingreiðslur og styrki væri af-
koma bænda afar slök, sérstak-
lega sauðfjárbænda, og vísaði hún
í útreikninga nema í MBA-námi í
Háskóla Íslands máli sínu til
stuðnings. Í útreikningunum, sem
byggðu á búreikningum fyrir árið
2001, kæmi í ljós að meðallaun
sauðfjárbænda væru rúmar 68
þúsund krónur, kúabænda 166
þúsund krónur og bænda með
blandaðan búskap um 97 þúsund
krónur.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra tók þessar athugasemdir
heldur óstinnt upp og sagði mikla
grósku hafa verið í ýmsum bú-
greinum. Ósanngjarnt væri að leg-
gja umræðuna þannig upp að allir
bændur væru fátækir og ættu
bágt. Kjör sauðfjárbænda hefðu
batnað og nýlega hefði verið geng-
ið frá nýjum búvörusamningi fyrir
þá sem fæli í sér mikla möguleika.
Hann sagði landbúnaðinn vera í
örri þróun. Mikil fjárfesting og
uppbygging hefði átt sér stað, sér-
staklega í mjólkurframleiðslu.
trausti@frettabladid.is
2 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR
„Sumir hafa
haft á orði að
nú væri snig-
illinn sofnað-
ur.“
Nei, við höfum ekki verið slegnir
út af laginu, við vorum hins vegar
slegnir niður.
Ellert Schram er forseti Íþróttasambands Íslands
og var hann ekki sáttur við að hnefaleikamenn
skyldu brjóta reglur með því að sýna Muay Thai
bardagaíþrótt á hnefaleikakeppni sem fór fram í
Laugardalshöll.
Spurningdagsins
Ellert, varstu sleginn út af laginu?
■ Miðausturlönd ■ Íraksdeilan
Breytingar í yfirstjórn Samskipa:
Ólafur tekur við stjórnarformennsku
FYRIRTÆKI Breytingar á yfirstjórn
Samskipa voru kynntar á aðal-
fundi félagsins. Ólafur Ólafsson,
forstjóri Samskipa, verður starf-
andi stjórnarformaður félagsins.
Félaginu verður skipt upp í tvö fé-
lög. Samskip Ísland sem Knútur
G. Hauksson mun stýra og Sam-
skip Global sem verður undir
stjórn Ásbjörns Gíslasonar.
Að sögn Ólafs Ólafssonar, for-
stjóra Samskipa, eru skipulags-
breytingarnar í takt við breyting-
ar sem hafa orðið á starfseminni
undanfarin ár. „Samskip eru í dag
alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem
býður hvers kyns flutningatengda
þjónustu.“
Afkoma Samskipa var undir
áætlunum félagsins. Hagnaðurinn
var um 240 milljónir króna. Er
það um hálfum milljarði betri af-
koma en árið áður. Munar þar
mestu um fjármagnsliði.
Samskip hefur opnað skrifstof-
ur í Kóreu og hyggur á frekari
landvinninga í Asíu. Í næsta mán-
uði verða opnaðar tvær umboðs-
skrifstofur í Kína. ■
BREYTINGAR Í BRÚNNI
Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, verður
nú starfandi stjórnarformaður félagsins.
Við stjórnartaumunum taka Knútur G.
Hauksson og Ásbjörn Gíslason.
ÍSRAELIR SKUTU ÍSRAELI Ísra-
elskir hermenn bönuðu tveimur
Ísraelum sem þeir héldu að væru
palestínskir vígamenn. Hermenn
í þyrlu komu auga á vopnaðan
mann stíga upp í bíl. Þegar hann
svaraði þeim í engu hófu þeir
skothríð. Hann og annar maður í
bílnum létust. Mennirnir voru ör-
yggisverðir og bíll þeirra merkt-
ur sem slíkur.
BIRTA
Verður útbreiddasta tímarit landsins.
Nýtt tímarit:
Birta fylgir
blaðinu
TÍMARIT Birta, nýtt tímarit, fylgir
blaðinu í dag. Birta er 48 síðna
tímarit sem er borið út á 75 þús-
und heimili með Fréttablaðinu og
er prentað í 86 þúsund eintökum.
Auk þess að koma inn á sama
fjölda heimila og Fréttablaðið má
nálgast tímaritið á sölustöðum
sem dreifa Fréttablaðinu. Birta
verður því lang útbreiddasta
tímarit landsins. Sjónvarpsdag-
skrá vikunnar verður birt á skýr-
an og aðgengilegan hátt í ritinu.
Það mun því nýtast sem sjón-
varpshandbók. Í Birtu verða
greinar, viðtöl og skemmtiefni þar
sem brugðið verður birtu á fjöl-
breytt líf fólksins í landinu. ■
Meðallaun bænda
eru um 68 þúsund
Landbúnaðarráðherra var gagnrýndur harðlega í utandagskrár-
umræðum á Alþingi. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði að þrátt
fyrir beingreiðslur og styrki væru kjör bænda afar slök. Ráðherra
sagði umræðuna ósanngjarna.
Héraðsdómur:
Sekt fyrir
barnaklám
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur karl-
maður var í gær dæmdur í 230.000
króna sekt fyrir að eiga barnaklám.
Klámið var á 296 ljósmyndum og 3
hreyfimyndum í tölvu mannsins.
Húsleit var gerð heima hjá
manninum í Hafnarfirði fyrir tæpu
ári í kjölfar þess að nágrannar hans
fundu klámefni á geisladiskum í
stigaganginum.
Maðurinn sagði við meðferð
málsins í Héraðsdómi Reykjaness
að hann hefði ekki farið inn á
barnaklámsíðurnar af ásettu ráði;
hann hefði leiðst inn á barnaklám-
síður þegar hann hafi verið að skoða
annað klámefni. ■
TVÍEYKI HAFNAR BRETUM Frakk-
ar og Þjóðverjar hafa hafnað til-
lögum Breta um hvaða skilyrði
Írakar eigi að uppfylla til að
komast hjá inn-
rás. Dominique
de Villepin, ut-
anríkisráðherra
Frakklands,
segir tillögurn-
ar ekki í takt
við það sem alþjóðasamfélagið
vænti. Jack Straw, starfsbróðir
hans í Bretlandi, lýsti furðu sinni
á því að Frakkar höfnuðu tillög-
unum án þess að gefa sér tíma til
að gaumgæfa þær. Rússar lýstu
því yfir að þeir myndu skoða til-
lögurnar. Það vekur spurningar
um hvort samstaða þeirra,
Frakka og Þjóðverja sé að gliðna.
VOPNAEFTIRLITSMAÐUR DEYR
Vopnaeftirlitsmaður lést og sam-
starfsmaður hans slasaðist alvar-
lega þegar bíll sem þeir voru í
lenti í árekstri við flutningabíl.
Mennirnir voru ásamt öðrum að
koma frá því að skoða niðursuðu-
verksmiðju.
EKKI KOSIÐ STRAX Ekkert verður
af því að kosið verði í vikunni um
ályktunartillögu
Breta og Banda-
ríkjamanna sem á
að heimila beitingu
hervalds. Talsmað-
ur George W. Bush
Bandaríkjaforseta
sagði forsetann
reiðubúinn að fresta atkvæða-
greiðslunni fram í næstu viku
meðan leitast væri við að efla
stuðning við ályktunina.
HVETUR TIL MÁLAMIÐLUNAR Mo-
hamed ElBaradei, yfirmaður Al-
þjóðakjarnorkumálastofnunarinn-
ar, hvatti aðildarríki öryggisráðs-
ins til að ná málamiðlun um hvað
Írakar yrðu að gera til að komast
hjá innrás og hvaða tíma þeir
fengju til þess. Hann sagði sumar
tillögur Breta góðar, aðrar slæm-
ar. Hann vill engan lokafrest.
Mannréttindafulltrúi
gagnrýnir Bandaríkin:
Ekkert laga-
legt svarthol
GENF, AP „Ég get ekki sætt mig við
að það sé til lagalegt svarthol í
Guantanamo,“ sagði Sergio Vieira
de Mello, mannréttindafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna, þegar hann
gagnrýndi bandarískan dómstól
sem komst að þeirri niðurstöðu að
fangar sem bandarísk stjórnvöld
halda í Guantanamo herstöðinni á
Kúbu eigi ekki rétt á því að mál
þeirra sé tekið upp hjá dómstól-
um. 650 hermönnum talibana og al
Kaída-liðum er haldið föngnum án
þess að hafa nokkurn tíma verið
ákærðir fyrir glæp.
„Hvernig getum við hugsað
okkur að á einhverjum ferkíló-
metrum lands á þessari plánetu
gildi engin lög?“ spurði Vieira de
Mello.
Bandarísk stjórnvöld halda
föngunum á Guantanamo sem er á
Kúbu og segja bandaríska dóm-
stóla ekki hafa lögsögu þar. Dóm-
stóllinn komst að þeirri niður-
stöðu að þar sem mennirnir eru
ekki bandarískir ríkisborgarar,
voru handteknir erlendis og
vistaðir utan Bandaríkjanna njóti
þeir ekki stjórnarskrárákvæða
sem banna að mönnum sé haldið
án dóms og laga. ■
HALDIÐ ÁN DÓMS OG LAGA
Bandaríkjastjórn skilgreinir fangana í Guantanamo sem óvinavígamenn. Þá skilgreiningu er
hvergi að finna í alþjóðalögum.
BESTUR Á ÞORRABLÓTUM
Sigríður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að það þætti varla burðugt
það þorrablót þar sem landbúnaðarráðherra héldi ekki ræðu. Hann væri bestur á þorra-
blótum eins og sjálf sauðkindin.
borgarstjóra-frúin
nýja
Margrét Baldursdóttir
7dagskrásjónvarpsinsnæstu daga
Davíð
í réttum
og röngum
litum
borðar þú
nógu hollan
mat?
Þitt
eintak
Viku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu
birta
konur
trúa frekar
á drauga
karlar sem
kaupa kynlíf
14 . T I L 20 . MARS 2003
ÚTBRE IDDASTA T ÍMARIT LANDSINS – 86 .000 E INTÖK
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI