Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 4

Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 4
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Suður af Íslandi eru mikil tækifæri til veiða á ýms- um tegundum. Þar á meðal er búr- inn sem menn hafa að mínu mati ekki lagt sig nægilega vel eftir,“ segir Sigurgeir Pétursson, 37 ára kaupsýslumaður, sem um árabil var skipstjóri á frystitogaranum Austral Leader frá Ástralíu. Í dag starfar Sigurgeir að ýmsum við- skiptum en hann er stjórnarmað- ur og meðal eig- enda að hugbún- aðarfyrirtækinu Datum New Zea- land Limited sem miklar von- ir eru bundnar við á heimsmarkaði. Einnig er Sigurgeir stærsti eigandi heilsu- ræktarstöðvanna Baðhússins, Sporthússins og Þrekhússins. Hann býr á Nýja Sjálandi en er stjórnarformaður Baðhússkeðj- unnar sem systir hans, Linda Pét- ursdóttir, og fjölskylda þeirra stofnaði á sínum tíma. Sigurgeir var farsæll skip- stjóri um árabil og árið 1997 bar skip hans að landi að talið er mesta aflaverðmæti í heimi. Þá landaði hann í einum túr verð- mætasta farmi fiskiskips sem sögur fara af. Árið 1995 fundu Sigurgeir og áhöfn hans gjöful fiskimið í Suður-Íshafinu. Mikið af tannfiski reyndist vera á tveim- ur veiðisvæðum þar sem slíkar veiðar höfðu ekki verið stundaðar áður. Þetta var reyndar í fyrsta sinn sem tannfiskur, sem er gríð- arlega verðmætur, fannst í þess- um heimshluta. Eitt veiðisvæð- anna þriggja, sem áhöfn Austral Leader fann í Suður- Íshafinu, er nefnt eftir Sigurgeiri og heitir Petursson Gully en það gæti út- lagst á íslensku sem Dalverpi Sig- urgeirs. Annað veiðisvæði heitir Evita’s Patch eða Svæði Evitu og er nefnt eftir Evitu Peron, fyrr- verandi forsetafrú Argentínu. Sigurgeir hætti skipstjórn árið 1999 eftir að hafa veitt á svæði sem samsvarar tveimur þriðju hlutum af suðurhveli jarðar. Eftir það hefur hann að- allega starfað sem fjárfestir en einnig verið útgerðum út- hafsveiðskipa til ráðgjafar. Lík- lega hefur enginn Íslendingur eins mikla þekkingu á út- hafsveiðum víða um veröld. Sig- urgeir segist ekki vera í nokkrum vafa um að Íslendingar eigi mörg ónýtt tækifæri til að auka sjávarafla. Hann telur það vera borðleggjandi að finna megi búra á svæðinu. Íslending- ar fundu búramið á litlum bletti suður af Vestmannaeyjum fyrir nokkrum árum en búrinn hvarf og síðan hefur sú fisktegund ekki veiðst að neinu marki. „Menn þurfa að hafa þolin- mæði og tíma til að skoða veiði- svæðin suður af landinu af mik- ill gaumgæfni. Þetta byggi ég á reynslu minni eftir að hafa unn- ið með frönsku fyrirtæki við djúpsjávarveiðar, þar á meðal á alþjóðlegum hafsvæðum suður af Íslandi. Það þarf að senda stór og öflug skip til veiðanna og út- gerðarmenn og sjómenn þurfa að sýna þessu mikla þolinmæði og vera undir það búnir að lítill eða enginn afli fáist vikum sam- an. Þetta er aðeins spurning um þrautseigju og tíma. Í hafinu suður af landinu bíða milljarðar króna í vannýttri auðlind,“ segir Sigurgeir. rt@frettabladid.is Fylgist þú með eldhúsdags- umræðum? Spurning dagsins í dag Ertu ánægð/ur með endurkomu Guðna Bergssonar í landsliðið? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 36,7% 34,5%Stundum 28,7% Aldrei Alltaf Kjörkassinn 4 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is „Þetta er aðeins spurn- ing um þraut- seigju og tíma“ Landsbankinn og Íslandsbanki: Sameinast um Straum VIÐSKIPTI Landsbanki Íslands er orðinn ásamt Íslandsbanka kjöl- festufjárfestir í Fjárfestingar- félaginu Straumi. Miklar eigna- tilfærslur urðu í kringum Straum. Landsbankinn keypti 20,3 prósent hlut í Straumi og var stærstur hluti þess keyptur af Íslandsbanka. Íslandsbanki á eftir kaupin tæp nítján prósent í félaginu. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir bankann hafi boðið smærri fjár- festum að kaupa af þeim bréf í Straumi í ljósi breytingar á sjóðnum. Af þeim sökum hafi bankinn eignast stærri hlut en hann hyggist eiga til lengri tíma. Samtímis þessu seldu bank- arnir eignarhluti sína í Íslenska hugbúnaðarsjóðnum. Straumur keypti þessa hluti og á nú rúm 45 prósent í hugbúnaðarsjóðn- um. Þórður Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri Straums, segir aðkomu Landsbankans fagnaðarefni. „Það er mikils virði fyrir okkur að hafa bank- ana innanborðs.“ Þórður vildi ekkert tjá sig um hvort til stæði að Straumur tæki yfir og sam- einaðist Íslenska hugbúnaðar- sjóðnum. „Við viljum ekkert tjá okkur um áformin með þessum kaupum.“ ■ Milljarðaverðmæti ónýtt suður af Íslandi Sigurgeir Pétursson kaupsýslumaður og fyrrverandi aflaskipstjóri á frystitogara frá Ástralíu segir mikil verðmæti liggja í ónýttum fiskistofnum suður af Íslandi. Aðeins þurfi þolinmæði og tíma til að finna fiskinn SIGURGEIR PÉTURSSON Hann telur Íslendinga þurfa að gefa úthafinu suður af landinu gaum. Milljarðaverðmæti sé þar að finna í vannýttum fiskistofnum. Sigur- geir á að baki farsælan feril sem skipstjóri í Suðurhöfum og sló meðal annars heimsmet í aflaverðmæti á skipi sínu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FJÁRFEST Í STRAUMI Landsbankinn keypti um 20 prósenta hlut í Fjárfestingarfélaginu Straumi. Íslandsbanki og Landsbankinn stefna að því að eiga saman fimmtungs til fjórðungs hlut hvor í Straumi. ÆVAFORN FÓTSPOR Fótsporin lentu undir eldfjallaösku þegar þau voru enn ný og varðveittust því fram á okkar daga. Fótspor steinaldar- manna: Á flótta fyrir 350.000 árum INDIANAPOLIS, AP Ítalskir vísinda- menn hafa fundið 56 350.000 ára gömul steingerð fótspor, sem til- heyra fornsteinaldarmönnum, í Roccamonfina-eldfjallinu á Suður- Ítalíu. Mennirnir skildu eftir fót- spor sín í hálfstorknuðu bergi í hlíðum fjallsins. Telja vísinda- mennirnir að um sé að ræða elstu fótspor sem fundist hafa eftir fornsteinaldarmenn á jörðinni. Þar sem sporin eru þó ekki eldri en raun ber vitni er talið ólík- legt að fundurinn verði til þess að varpa frekara ljósi á þróun nú- tímamannsins. Sporin segja engu að síður merkilega sögu um leið- angur þriggja frummanna en vís- indamenn hafa leitt að því líkur að mennirnir hafi verið að flýja und- an eldgosi. ■ Bandarískur bær: Kaupum franskt BANDARÍKIN, AP Þó bandaríska þingið sé búið að taka franskar og frans- brauð af matseðlinum er ekki þar með sagt að allir Bandaríkjamenn séu ósáttir við frönsk stjórnvöld vegna andstöðu þeirra við innrás í Írak. Bæjaryfirvöld í 17.000 manna bænum Carrboro í Norður-Karólínu hafa lýst apríl sérstakan mánuð við- skipta við Frakkland. Íbúar bæjar- ins, sem stundum hefur verið nefndur „París í Piedmont“, eru hvattir til að kaupa franskar vörur í næsta mánuði. „Við vildum segja að Frakkar hafa rétt fyrir sér þegar þeir reyna að forðast stríð,“ sagði einn bæjarráðsmanna. ■ Borgarstjórn segir af sér: Borgin borgaði föt ANTWERPEN, AP Borgarstjórn Antwerpen í Belgíu sagði af sér í heild sinni tveimur mánuðum fyrir kosningar eftir að upp komst um hneykslismál. Borgarstjórinn og borgarráðsmenn viðurkenna að hafa talið fram kaup á fötum, skóm, ilmvatni og öðrum persónulegum munum sem útlagðan kostnað. Borgarráðsmenn fá útlagðan kostn- að endurgreiddan. Meðal þess sem borgarsjóður var látinn borga má nefna helgardvöl á hóteli og heilla- skeyti vegna fæðingar. ■ Augusto Pinochet: Fær nýjan gangráð CHILE, AP Augusto Pinochet hers- höfðingi er kominn á sjúkrahús eina ferðina enn. Heilsu hans hefur þó ekki hrakað að ráði heldur þurfti að skipta um hjartagangráð í einræðis- herranum fyrrverandi sem er 87 ára að aldri. Gangráðurinn sem nú heldur hjarta Pinochets gangandi var settur í hann fyrir sjö árum. Pinochet þjáist af gigt og sykur- sýki. Hann hefur fengið nokkur minni háttar hjartaslög á síðustu fimm árum. Dómstóll úrskurðaði að hann ætti við geðveilu að stríða og gæti því ekki svarað til saka fyrir mannréttindabort í stjórnartíð sinni. ■ Finnar ganga til kosninga: Spenna í Finnlandi HELSINKI, AP Mikil spenna ríkir um hvaða flokkur verður stærst- ur á finnska þinginu eftir kom- andi kosningar. Jafnaðarmenn og Miðjuflokkurinn berjast um hvor verður stærsti flokkurinn á finnska þinginu samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í gær. Samkvæmt henni njóta Jafnaðarmenn, flokkur Paavo Lipponens forsætisráðherra, stuðnings 23,3% finnskra kjós- enda. Miðjuflokkurinn er þó með naumt forskot samkvæmt könn- uninni og getur reitt sig á stuðn- ing 23,3%. Íhaldsflokkurinn fengi 19,9% atkvæða samkvæmt könnuninni, Vinstribandalagið 10,8%, Græn- ingjar fengju 7,9% og flokkur sænskumælandi Finna fengi 4,9% atkvæða. Alls keppir 21 framboð um at- kvæði kjósenda í kosningunum á sunnudag. 200 sæti eru í boði á finnska þinginu, kjörtímabil þess er fjögur ár. Rúmar fjórar milljónir Finna eru á kjörskrá en kosningaþátttaka hefur dregist saman í Finnlandi undanfarin ár. Hún var 68% í þingkosningunum 1999. ■ ÚR ÞINGSALNUM Tarjo Halonen, forseti Finnlands, ávarpaði finnska þingið á þriðjudag, tæpri viku áður en gengið er til kosninga.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.