Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 8
FÓTBOLTI: Guðni Bergsson, fyrrum
fyrirliði íslenska landsliðsins, hef-
ur verið valinn í liðið að nýju.
Guðni lék síðast landsleik fyrir
fimm og hálfu ári og var þá leikja-
hæstur Íslendinga. Endurkoma
Guðna á sér langan aðdraganda.
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari,
sagði í samtali við Fréttablaðið að
Guðni hafi komið til álita í hópinn
sem lék gegn Eistlandi í nóvember
en hann gat ekki leikið þá vegna
meiðsla. Guðni kvaðst í spjalli við
Fréttablaðið vera ánægður með að
vera valinn í landsliðið að nýju.
Hann er tilbúinn í slaginn og von-
ast eftir góðum leik og hagstæðum
úrslitum.
Íslenska liðið varð fyrir skakka-
föllum þegar Hermann Hreiðars-
son meiddist í leik gegn Stoke í
fyrri viku. Eyjólfur Sverrisson gaf
einnig afsvar þegar hann var beð-
inn um að leika með landsliðinu að
nýju. Endurkoma Guðna er því enn
mikilvægari en með honum fær ís-
lenska vörnin reyndan leiðtoga
sem þekkir vel bresku knattspyrn-
una eftir 15 ára feril í efstu deild-
inni ensku með Tottenham og
Bolton. Guðni hefur staðið sig vel í
miðju varnar Bolton í einni af erf-
iðustu deildum Evrópu. Hann hef-
ur verið fyrirliði liðsins og leikið
22 af 29 deildarleikjum þess.
Guðni var spurður hvort hann
merkti breytingar á leik skoska
liðsins frá því að Bertie Vogts tók
við þjálfun þess. Honum finnst
Vogst leggja minni áherslu á varn-
arleik en Craig Brown, forveri
hans. Þegar Brown stjórnaði liðinu
gekk mótherjum þess illa að sigr-
ast á sterkri vörn Skota sem Colin
Hendry, fyrrum samherji Guðna,
stjórnaði.
Guðni og Atli Eðvaldsson hafa
rætt næstu verkefni landsliðsins
en það kemur í ljós síðar hvort
Guðni tekur þátt í leikjum liðsins í
vor og í sumar. Guðni lék 77 leiki
með A-landsliðinu á árunum 1984
til 1997 og skoraði í 2-1 sigri á Ung-
verjum árið 1995. Guðni hefur
einu sinni áður leikið gegn Skotum.
Hann lék með U21 liðinu sem sigr-
aði Skota á Kópavogsvelli árið
1985.
Leikurinn við Skota verður háð-
ur á Hampden Park í Glasgow.
Árni Gautur Arason mun verja
mark Íslands á Hampden Park.
Allt bendir til þess að hann verði
búinn að ná sér eftir aðgerð vegna
meiðsla á olnboga. Árni er einn
fjögurra leikmanna sem koma frá
norskum félögum, átta koma frá
enskum félögum, fjórir leika með
belgíska félaginu Lokeren, einn
leikur í Þýskalandi en aldursfor-
setinn Birkir Kristinsson er sá eini
sem leikur með íslensku félagi.
obh@frettabladid.is
Orðrétt 8 14. mars 2003 LAUGARDAGUR
Stokkseyri:
Tónmennta-
setur í frysti-
húsi
TÓNLIST Hafin er undirbúningur
að stofnun tónmenntaseturs á
Stokkseyri í minningu Páls Ís-
ólfssonar tónskálds. Um er að
ræða sjálfseignarstofnun með
stuðningi og fjárframlagi frá
sveitarfélaginu Árborg.
„Þetta er allt á byrjunarstigi
en hugmyndin er að þarna verði
sýningaraðstaða fyrir tónminjar
alls konar og í framtíðinni
fræðasetur fyrir tónlistar-
menn,“ segir Jónatan Garðar-
son, nýkjörinn formaður undir-
búningsnefndar.
Tónmenntasetrið hefur feng-
ið inni í hraðfrystihúsinu á
Stokkseyri. Þar er enn vinnsla í
gangi en tónmenntasetrið verð-
ur á efri hæðinni. ■
Guðni ánægður að
vera valinn að nýju
A-landsliðshópurinn fyrir Evrópuleikinn gegn Skotum þann 29. mars var valinn í gær.
Guðni Bergsson verður með að nýju en hann lék síðast landsleik í september 1997.
VIÐSKIPTADEILUR Búnaðarbankinn
hefur ákveðið að falla frá gjaldfell-
ingu á 350 milljóna króna láni til
Norðurljósa. Samhliða þessu hafa
báðir aðilar fallið frá öllum mála-
rekstri varðandi deilur félaganna
um lánið. Fjármálaeftirlitið úr-
skurðaði í deilu bankans og Norð-
urljósa og taldi bankann hafa brot-
ið gegn fyrirtækinu með gjaldfell-
ingu lánsins. Norðurljós kærðu
eftir að kom í ljós að bankinn hafði
átt í viðræðum við
þriðja aðila um fjárhagsstöðu
Norðurljósa. Í minnisblaði sem
komst í hendur Norðurljósa var
upplýst um áhuga Fjölmiðlafélags-
ins að komast yfir rekstur Norður-
ljósa í kjölfar fjárhagserfiðleika.
Fjármálaeftirlitið taldi í ljós
þessa að ekki væri hægt að horfa
fram hjá samskipum Fjölmiðlafé-
lagsins og bankans, þegar ákvörð-
un var tekin um gjaldfellingu láns
Norðurljósa í bankanum.
„Við höfðum verulegar áhyggj-
ur af stöðu þeirra,“ segir Árni
Tómasson, bankastjóri Búnaðar-
bankans. Hann segir stöðu Norður-
ljósa hafa batnað og því forsendur
fyrir gjaldfellingu ekki lengur fyr-
ir hendi. „Ég hef alltaf sagt að það
besta sem gæti gerst væri að staða
þeirra batnaði. Ég vona svo sann-
arlega að hún haldi áfram að
batna.“ ■
Andstaða gegn Frökkum:
Hermenn fái
nýja gröf
ORLANDO, AP Bandarísk þingkona
ætlar að leggja fram lagafrum-
varp sem gera mun fjölskyldum
bandarískra hermanna sem létust
í Frakklandi og Belgíu í heims-
styrjöldunum tveimur það kleift
að flytja jarðneskar leifar þeirra
heim.
Ginny Brown-Waite, sem er
þingkona Repúblikana, segist
hafa tekið þessa ákvörðun í kjöl-
far fjölda áskorana frá kjósend-
um sem séu ósáttir við afstöðu
Frakka í Íraksdeilunni. Hún ítrek-
ar engu að síður að ætlunin sé
ekki að beita Frakka þrýstingi
heldur aðeins að gefa landsmönn-
um tækifæri til þess að grafa ást-
vini sína á bandarískri grundu. ■
LISTAVERK Illa er farið fyrir
Kríunni, listaverki Sigurjóns
Ólafssonar, sem staðsett er
miðja vegu á milli Eyrarbakka
og Stokkseyrar.
Listaverkið Krían var afhjú-
pað við mikla viðhöfn árið 1981.
Verkið er gjöf frá Alþýðusam-
bandi Íslands til Eyrarbakka og
hefur illa þolað veður og vind í
þau ár sem verkið hefur staðið á
berangri, ágætlega völdum stað
með tilvísun til kríunnar al-
mennt:
„Það er mikil skömm að
þessu. Vængirnir eru dottnir af
að hluta,“ segir Þorlákur Helga-
son, fræðslustjóri Árborgar.
„Það kostar milljónir að gera við
þetta,“ segir hann.
Menningarmálanefnd Ár-
borgar hefur ákveðið að ganga í
málið og bjarga Kríu Sigurjóns.
Hefur verið leitað til verkfræði-
stofu Sigurður Thoroddsen og
einnig hefur verið óskað liðsinn-
is sérfræðinga á Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar í Laugarnesi:
„Við viljum bjarga þessu
enda prýði að verkinu þar sem
það stendur í garði sem er um
margt merkilegur. Fyrrverandi
garðyrkjustjóri hér í Árborg var
með skemmtilegar hugmyndir
um að byggja upp japanskan
garð með trébrúm umhverfis
Kríuna en óvíst hvort af því
verður,“ segir Þorlákur Helga-
son sem bíður nú viðbragða og
ráða sérfræðinga á Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar.
Á meðan bíður Krían eftir því
að henni verði komið til bjargar
- sem er hið mikilvægasta mál að
mati fræðslustjóra Árborgar.■
NÁ SÁTTUM
Búnaðarbankinn og Norðurljós hafa náð sáttum um deilu vegna gjaldvellingar á láni
Norðurljósa í Búnaðarbankanum.
Deilur Búnaðarbanka og Norðurljósa:
Gjaldfelling og mál-
sóknir afturkallaðar
KRÍAN
Við afhjúpun listaverksins í
janúar 1981. Nú liggur Krían
undir skemmdum.
Laskað listaverk í Árborg - milljónakostnaður:
Vængirnir dottnir af Kríunni
GUÐNI BERGSSON
Guðni Bergsson leikur með íslenska lands-
liðinu að nýju.
Landsliðshópurinn leikir mörk
Birkir Kristinsson-ÍBV 73 -
Árni Gautur Arason-Rosenborg 25 -
Rúnar Kristinsson-Lokeren 96 3
Guðni Bergsson-Bolton 77 1
Arnar Grétarsson-Lokeren 57 2
Þórður Guðjónsson-Bochum 43 11
Lárus Orri Sigurðsson-WBA 37 2
Brynjar Björn Gunnarsson-Stoke 34 3
Pétur Hafliði Marteinsson-Stoke 25 -
Heiðar Helguson-Watford 23 2
Arnar Þór Viðarsson-Lokeren 22 -
Eiður Smári Guðjohnsen-Chelsea 20 6
Marel Baldvinsson-Lokeren 11 -
Ívar Ingimarsson-Brighton 9 -
Jóhannes K. Guðjónsson-Aston Villa 9 1
Bjarni Þorsteinsson-Molde 8 -
Gylfi Einarsson-Lilleström 7 -
Indriði Sigurðsson-Lilleström 6 -
HIN HINSTA HVÍLD
Þúsundir bandarískra hermanna fórust í
heimsstyrjöldunum tveimur og liggja margir
þeirra grafnir í Frakklandi eða Belgíu.
SKIPT UM STARFSVETTVANG
Síðustu árin reyndi ég að kom-
ast í golf klukkan 4 á daginn.
Nú getur maður kannski byrjað
eitthvað fyrr á daginn.
Skúli Ágústsson, Kennedybróðir á
Akureyri, en bræðurnir hafa selt
fyrirtæki sitt. DV, 13. mars.
EÐA GÖ VITNA UM GOKKE
Væri það eins og töframaðurinn
Baldur hefði látið Konna vitna
sér í hag.
Einar Kárason um vitnisburð
aðstoðarmanns forsætisráðherra.
Morgunblaðið, 13. mars.
UMHVERFISSIÐASKIPTIN
Ef ekki verður tekið tillit til
þessarar myndar og hætt við
Kárahnjúkavirkjun leyfi ég mér
að líkja því við að það sé verið
að höggva Ómar
Ragnarsson.
Elísabet Jökulsdóttir um
mynd Ómars Ragnarssonar.
Morgunblaðið, 13.mars.
■ Alþingi
Samgönguáætlun samþykkt
Alþingi hefur samþykkt nýja
samgönguáætlun til næstu fjög-
urra ára. Samkvæmt henni verð-
ur rúmum 14 milljörðum króna
varið í uppbygginu flugvalla,
rúmum 13 til vegamála og rúm-
um 8 milljörðum í hafnir. Þá var
samgönguáætlun til næstu 12 ára
einnig samþykkt, en það er
stefnumótun ríkisins til sam-
göngumála.