Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.03.2003, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 14.03.2003, Qupperneq 12
Svona erum við 12 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR Segjast vera undir ægivaldi útgerðar Engir bindandi kjarasamningar eru til á milli smábátaeigenda og launaðra trillusjómanna. Dæmi eru um að trillukarlar lifi í ótta við tafarlausa uppsögn og er þeim jafnvel hótað að vera sendir í land ef þeir kvarta. SJÁVARÚTVEGUR Trillusjómenn sem róa bátum í eigu annarra hafa enga almenna kjarasamninga við vinnuveitendur sína og njóta því ekki sömu réttinda og sjómenn á stærri bátum. Launasamningar við sjómenn gilda aðeins um þá sem starfa á bátum yfir tólf tonn að stærð og því er útgerðarmönnum smærri báta í sjálfsvald sett hvaða kjör þeir bjóða sjómönnum sínum. Þegar ekki er gerður skrifleg- ur samningur ráða útgerðarmenn því sjálfir hversu mik- ið þeir borga trillu- sjómönnum og geta sagt þeim upp án fyrirvara og án tilefnis. „Smábátasjómenn sem róa á bátum í eigu annarra hafa engan rétt. Við höfum engan uppsagnar- frest og ef við kvörtum undan kjörum okkar eða rífum kjaft er okkur sagt að við getum bara ver- ið í landi. Ég þekki slíkar hótanir. Það er erfitt að fá vinnu til sjós og lands og þetta segja sumir útgerð- armenn við þá sem kvarta,“ segir trillusjómaður af Suðurnesjum, sem ekki vildi láta nafns síns getið af ótta við tafarlausa uppsögn. Annar launaður trillusjómaður á Suðurnesjum segir stöðu sína hrikalega. „Ef við veikjumst miss- um við launin. Öll þessi óvissa er mjög bagaleg. Svo eru eigendurn- ir byrjaðir að lækka launin og við höfum ekkert um það að segja.“ Hólmgeir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sjómannasam- bands Íslands, segir sambandið hafa sent Landssambandi smá- bátaeigenda beiðni um samninga við smábátasjómenn fyrir hálfu öðru ári. Landssambandið vísaði erindinu til undirfélaga sinna á landsþingi, en fékk ekki umboð til að semja við Sjómannasambandið um kjör sjómanna á smábátum. Að sögn Hólmgeirs verða trillu- sjómenn einnig að líta í eigin barm, þar sem margir þeirra virð- ast ekki vera skráðir í sjómanna- félög. Hann segir Sjómannasam- bandið skorta bakland meðal smá- bátasjómanna og skorar á alla smábátasjómenn að ganga í verka- lýðsfélög til að koma málum sín- um á framfæri. Um fjórðungi allra smábáta við landið er róið af öðrum en eigend- unum, og stendur því eftir að mikill meirihluti smábátasjómanna eru einyrkjar, sem þarfnast engra samninga. Þess ber að geta að staða beitningamanna gagnvart smábáta- eigendum er sambærileg við stöðu þeirra sem róa trillunum, við hvor- uga stétt hafa verið gerðir almenn- ir launasamningar og er atvinnuör- yggið eftir því ótryggt. jtr@frettabladid.is STJÓRNMÁL Fréttablaðið hefur óskað eftir því við Davíð Oddsson forsæt- isráðherra að hann afhendi minnis- punkta sína vegna fundar sem hann átti með Hreini Loftssyni á hóteli í London 26. janúar 2002. Hreinn Loftsson hefur lýst því á fundinum að hann hafi tilkynnt Davíð að hann ætlaði að segja af sér sem formað- ur einkavæðingarnefndar en ráð- herrann hefði beðið sig að sitja áfram til 10. febrúar. Davíð sagði aftur á móti að Hreinn hefði ekkert um það talað á fundinum að hann vildi hætta. Hreinn hefði aftur á móti talað um að hætta sem stjórn- arformaður Baugs vegna meintra mútuhugmynda Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar sem hefði látið sér til hugar koma að greiða Davíð 300 milljónir króna fyrir að hverfa úr stjórnarráðinu. Hreinn hefur sagt að þau ummæli hafi fallið í tengsl- um við svartar sögur um að Kári Stefánsson hefði látið Davíð hafa 300 milljónir króna að launum fyrir góðvild í garð Íslenskrar erfða- greiningar. Jón Ásgeir hefði spurt í „hálfkæringi“ hvort ekki væri hægt að kaupa Baugi grið. Það styður framburð Hreins að í Morgunblaðinu 29. janúar 2002 var birt yfirlýsing frá honum þar sem hann kveðst hafa sagt af sér með bréfi til nefndarinnar. Jafnframt segir Hreinn að hann hafi, laugar- daginn 26. janúar, á fundi með for- sætisráðherra gert honum grein fyrir ákvörðun sinni og forsendum þess að hann hefði ákveðið að hætta. Eftirfarandi sagði Davíð í Kastljósi Sjónvarpsins: „Hann óskaði eftir að fá að koma og hitta mig. Nú er reyndar sagt að hann hafi gert það til þess að segja af sér sem formaður einkavæðinga- nefndar. Hann tilkynnti mér það ekki.“ Kristján Kristjánsson, spyrill í Kastljósi, spurði þá. „En gerði það samt sem áður ...“ Davíð Oddsson: „Það gerði hann síðan, nei, þrem, fjórum dögum síð- ar eða einhverjum dögum síðar. Reyndar með tilkynningu sem var mjög harkaleg í minn garð og ég var mjög undrandi á eftir okkar samtal þarna úti. En ég taldi að það væri nú gert bara í þágu hans vinnuveitanda,“ sagði Davíð. Davíð hefur neitað að útskýra fyrir fjölmiðlum hvort eða hvers vegna hann sagði ósatt um þetta at- riði. ■ Lundúnafundurinn í janúar 2001: Davíð beðinn um minnispunkta DAVÍÐ ODDSSON Sagði eftir Lundúnafundinn að Hreinn hefði ekki talað um afsögn í einkavæðingarnefnd. Annað kom fram í Morgunblaðinu Arthur Bogason: Sjaldgæfir svartir sauðir SJÁVARÚTVEGUR Arthur Bogason, formaður Landssambands smá- bátaeigenda, segir mál launaðra trillusjómanna ekki vera í ólestri. „Menn eiga að gera skriflega samninga við vinnu- veitendur sína. Ef eitthvað kem- ur upp á fer allt í hund og kött ef ekki er til persónulegur samn- ingur. Við hvetjum alla okkar fé- lagsmenn til að gera skriflegan samning við þá sem þeir ráða, en auðvitað eru til svartir sauðir meðal okkar eins og annarra, þó það heyri til algerra undantekn- inga. Eftir minni vitneskju und- irrita flestir persónulegan samn- ing. Þegar sjómenn fara hins vegar í verktakavinnu og gera ekki skriflega samninga við vinnuveitandann hlýtur maður að spyrja sig af hverju, og hvort ætlunin sé að vinna skattlaust,“ segir hann. Að sögn Arthurs væri heppi- legra ef launaðir trillusjómenn stofnuðu með sér stéttarfélag, svo að skapist grundvöllur fyrir Landssamband smábátaeigenda að semja við þá. „Ég hef fengið hringingu frá trillusjómönnum í kaffispjalli sem kvörtuðu undan ástandinu. Ég hvatti þá eindreg- ið til að stofna félag á staðnum. En hvað gerðu þeir? Þeir héldu áfram að drekka kaffi og fóru svo heim,“ segir Arthur. ■ Rannsókn flugslyss: Ellefu ákærðir MÍLANÓ, AP Ellefu einstaklingar verða ákærðir vegna versta flugslyss í sögu Ítalíu. Fólkið er ákært fyrir að vanrækja störf sín og bera þar með ábyrgð á slysinu á Linate-flugvelli nærri Mílanó þar sem 118 manns fór- ust þegar farþegaþota og einka- þota rákust saman. Meðal þeirra sem eru ákærðir eru flugum- ferðarstjórinn og sex starfs- menn flugmálastjórnar. Sandro Gualano, fyrrum yfir- maður flugmálastjórnar, sagði á sínum tíma að slysið hefði ekki átt sér stað ef farið hefði verið að öryggisreglum. Hann er með- al þeirra ákærðu. ■ Evrópusambandið: Smáríki funda BRUSSEL, AP Leiðtogar sex smá- ríkja sem eiga aðild að Evrópu- sambandinu koma saman á ráð- stefnu í Brussel í næstu viku. Þjóðarleiðtogarnir ætla að ræða völd og uppbyggingu Evrópu- sambandsins í framtíðinni. Það eru leiðtogar Austurríkis, Finnlands, Hollands, Írlands, Lúxemborgar og Portúgal sem koma saman til viðræðna sólar- hring áður en leiðtogar allra Evrópusambandsríkja koma saman á tveggja daga leiðtoga- fundi. Á þeim fundi ræða þjóðar- leiðtogarnir um Íraksdeiluna. ■ Norskur stýrimaður: Sigldi frá drukknandi sjómönnum OSLÓ, AP Héraðsdómur í Bergen hefur dæmt annan stýrimann á norsku olíuflutningaskipi í fimm ára fangelsi fyrir að sigla á braut þegar skipið lenti í árekstri við franskan fiskibát á síðasta ári, með þeim afleiðingum að fjórir fórust. Hinn dæmdi stýrði skipinu þegar óhappið átti sér stað og var einn á vakt. Olíuskipið sigldi á fiskibátinn skammt undan ströndum Bretagne- skaga í Frakklandi og gerði stýri- maðurinn ekkert til þess að reyna að bjarga þeim sem um borð voru. Fjórir franskir sjómenn drukknuði en þremur var bjargað eftir átta klukkustundir í sjónum. ■ ARTHUR BOGASON Segir það heyra til undantekninga að laun- aðir trillukarlar hafi ekki skriflegan samning við vinnuveitandann. SMÁBÁTUR Launþegar á bátunum hafa ekki kjarasamning. ■ Að sögn Hólm- geirs verða trillusjómenn einnig að líta í eigin barm, þar sem margir þeirra virðist ekki vera skráðir í sjó- mannafélög. GISTINÆTUR ÍSLENDINGA Á HÓTELUM INNANLANDS. 1997 165.951 1998 179.778 1999 175.749 2000 172.122 2001 147.714 2002 155.873 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ■ Evrópa RÁÐHERRA REKINN Vladimir Spidla, forsætisráðherra Tékk- lands, rak Jiri Rusnok, iðnaðar- og viðskiptaráðherra landsins. Spidla sagði slæm samskipti þeirra tveggja ógna starfshæfi ríkisstjórnarinnar. Slíkt gengi ekki þegar berjast þyrfti gegn at- vinnuleysi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.