Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 14

Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 14
Aþena 14 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR ÓLYMPÍULEIKAR UNDIRBÚNIR Undirbúningur Grikkja fyrir ólympíuleikana í Aþenu á næsta ári eru í fullum gangi. Þessi vígalegi maður er einn þeirra sem eiga að tryggja öryggi á leikunum. VIRKJANIR „Það var slegið upp skjaldborg um forsetann svo við næðum ekki til hans í tæka tíð,“ segir Hanna Steinunn Þorleifsdótt- ir, andstæðingur Kárahnjúkavirkj- unar, sem ásamt félögum sínum reyndi ákaft að ná sambandi við forseta Íslands áður en hann skrif- aði undir lög um Kárahnjúkavirkj- un. Andstæðingar Kárahnjúka- virkjunar eru sárir vegna þess að Ólafur Ragnar Grímsson skrifaði undir lögin sem heimila fram- kvæmdir við Kárahnjúkavirkjun án þess að gefa þeim kost á áheyrn áður en hann staðfesti lögin sem voru samþykkt á Alþingi hinn 5. mars. Forsetinn skrifaði undir lög- in 11. mars. Andstæðingarnir vildu fá hann til að neita undirskrift og vísa mál- inu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þegar þeir fengu loksins viðtal var forset- inn þegar búinn að staðfesta lögin. „Við fengum fund með forset- anum á fimmtudag og hann talaði við okkur í 45 mínútur og var afar vinsamlegur og áhugasamur um okkar sjónarmið. En vandinn var sá að hann hafði þegar skrifað undir lögin,“ segir Hanna Stein- unn. Ekki tókst að fá fram sjónarmið forsetans í þessu máli og ritari hans svaraði ekki skilaboðum. ■ ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar eru ósáttir við að hafa ekki fengið áheyrn forsetans áður en hann staðfesti lög sem heimiluðu virkjanaframkvæmdir. Kárahnjúkavirkjun: Forsetinn fljótur að skrifa undir HÆSTIRÉTTUR Enn verið að færa inn horfna dóma. Hæstiréttur Íslands: Opna aftur hluta heima- síðunnar DÓMSMÁL Vefsvæði Hæstaréttar, sem legið hefur niðri frá því um mánaðamót vegna bilunar í tölvubúnaði, var opnað aftur á miðvikudag. Á Hæstaréttarvefnum er þó enn aðeins að finna hluta þeirra dóma sem hurfu af heimasíðunni vegna bilunarinnar. Dómar tveggja síðustu ára duttu út. Aðeins hafa verið færðir inn þeir hæstaréttardómar sem felldir hafa verið á þessu ári. Eftir er að færa inn dóma frá mars 2001 til og með desember 2002. Það er verið að gera núna og verður opnað fyrir þann hluta á næstu dögum samkvæmt upplýsingum á vefsvæðinu. ■ TEXAS, AP Hæstiréttur í Bandaríkj- unum fyrirskipaði yfirvöldum í Texas að fresta aftöku fanga sem átti að verða sá þrjúhundruðasti í röðinni síðan ríkið tók upp dauða- refsingu árið 1982. Úrskurðurinn lá fyrir aðeins fáeinum mínútum áður en aftakan átti að fara fram. Delma Banks, sem er svartur, var dæmdur fyrir að myrða hvíta unglingsstúlku fyrir 23 árumðan. Hann hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu og notið stuðnings þriggja fyrrum alríkisdómara í baráttu sinni fyrir endurupptöku málsins. Höfuðrök lögfræðinga Banks eru þau að hann hafi ekki hlotið sanngjörn réttarhöld á sín- um tíma, meðal annars vegna þess að kviðdómendur voru allir hvítir. Aftökunni hefur verið frestað þar til hæstiréttur hefur lokið við að fara yfir öll gögn í málinu og komist að niðurstöðu um það hvort grundvöllur sé fyrir endur- upptöku. ■ ALÞINGI Núverandi þing hefur fyrst og fremst einkennst af því að kosningar eru í nánd og af- greiðslu stórra mála sem snerta atvinnulífið að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur, þingflokksfor- manns Samfylkingarinnar. „Umræðan um sanngjarnar leikreglur í samfélaginu fyrir fólk og fyrirtæki og staða lýðræð- isins á Íslandi hefur verið fyrir- ferðarmikil,“ segir Bryndís. „Þetta tvennt hefur kristallast mjög á þessu þingi.“ Bryndís segir Samfylkinguna hafa gagnrýnt það mjög hvað þessi ríkisstjórn hafi verið gjörn á að beita sértækum aðgerðum í stað þess að búa til almennar leik- reglur. Sem dæmi um þetta hafi hún boðið stóriðjufyrirtækjum mun betri skattakjör en íslensk- um fyrirtækjum. „Þarna er verið að búa til ójafnræði milli fyrirtækja. Fyrir- tæki í stóriðju borga ekki einu sinni sama skatt. Þetta teljum við vera óásættanleg vinnubrögð. Það á ekki að fara í sérsamninga um skatta við hvert og eitt fyrir- tæki. Fyrirtækin eiga að starfa undir sterku eftirliti samkeppnis- yfirvalda og fjármálaeftirlits, en stjórnvöld eiga ekki að vera að greiða fyrir einstökum fyrirtækj- um með sérstökum lögum um hvert og eitt fyrirtæki.“ Bryndís segir að brýnasta verkefni næstu ríkisstjórnar sé að lækka skatta millitekju- og lág- tekjufólks. Það verði það fyrsta sem Samfylkingin muni gera komist hún til valda. „Það er forgangsmál að draga úr þeirri misskiptingu sem hefur verið að aukast í samfélaginu í ríkisstjórnartíð Davíðs Oddsson- ar. Hún hefur birst í því að fátækt hefur verið að aukast á sama tíma og við sjáum gríðarlegar fúlgur fara til einstaklinga sem starfa t.d. í fjármálageiranum.“ Bryndís segist bjartsýn á gengi Samfylkingarinnar í kosningun- um. Hún segir að allt yfir kjörfylgi í vor sé sigur fyrir flokkinn. „Við höfum verið að eflast á síð- ari hluta þessa kjörtímabils og verið að mælast hátt yfir kjörfylgi en prósentan skiptir ekki öllum máli heldur það hvernig pólitík við rekum. Það er komin ákveðin vald- þreyta í núverandi ríkisstjórn og ég held að það sé hollt fyrir þetta samfélag að skipta um ríkisstjórn. trausti@frettabladid.is Draga verður úr misskiptingunni Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segir nauðsynlegt að búa til sanngjarnar leikreglur. Ríkisstjórnin hefur stuðlað að skattalegu ójafnræði. Allt yfir kjörfylgi í kosningunum er sigur. FORMAÐUR ÞINGFLOKKS SAMFYLKINGARINNAR Bryndís Hlöðversdóttir segir að brýnasta verkefni næstu ríkisstjórnar sé að lækka skatta millitekju- og lágtekjufólks. Það verði það fyrsta sem Samfylkingin muni gera komist hún til valda. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T MIKILL LÉTTIR Mikill fögnuður braust út meðal stuðningsmanna Delma Banks og andstæðinga dauða- refsingar þegar tilkynnt var að aftökunni hefði verið frestað um sinn. Þessi kona hafði lát- ið setja á sig húðflúr til stuðnings fanganum. Aftaka númer 300: Aftöku frestað á elleftu stunduFERMINGARGJAFIR 20% afsláttur í nokkra daga frá 13. mars. Laugavegi 5 - Spönginni sími 551 3383 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.