Fréttablaðið - 14.03.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 14.03.2003, Blaðsíða 16
16 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR SLÆR Í GEGN Viðbrögð við neðanjarðarlestakerfinu í Kaupmannahöfn hafa farið fram úr öllum væntingum. Samkvæmt nýjustu talningu nota 61.000 manns kerfið fyrstu fjóra daga vikunnar en 67.000 á föstudögum. Kaupmannahöfn DEILUR Hnefaleikanefnd Íþrótta- sambands Íslands hefur verið leyst upp í kjölfar afsagnar for- manns nefndarinnar, Ágústs Ás- geirssonar. Formaðurinn sagði sem kunnugt er af sér eftir hnefa- leikakeppni í Laugardalshöll um síðustu helgi þar sem sýndar voru bardagalistir að lokinni keppni, íþróttagreinar sem eru ekki við- urkenndar af ÍSÍ; Muay thai og freefight: „Ég tel að þessar greinar varði við landslög og þær eru afar illa þokkaðar af alþjóðahnefaleika- sambandinu,“ segir fráfarandi formaður hnefaleikanefndarinnar „Það var óhjákvæmilegt fyrir mig annað en að segja af mér eftir þann trúnaðarbrest sem kominn var upp í nefndinni . Fulltrúar Hnefaleikafélags Reykjavíkur í nefndinni höfðu handsalað loforð um að þessar bardagagreinar yrðu ekki hluti af sýningunni en sviku það,“ segir Ágúst Ásgeirs- son. Í yfirlýsingu frá framkvæmda- stjóra Hnefaleikafélags Reykja- víkur af þessu tilefni, segir meðal annars: „...það er sorglegt að ýms- ar íþróttagreinar sjái sér ekki fært að vinna öðruvísi en utan vé- banda ÍSÍ. Manni finnst það samt skjóta ansi skökku við að Íþrótta- samband Íslands skuli beita sér gegn nýjum íþróttagreinum frek- ar en að styðja þær eins og búast mætti við.“ Sýningin á framangreindum bardagaíþróttum í Laugardals- höllinni mun hafa verið kynning og auglýsing fyrir ýmsan búnað sem þeim fylgir en formaður og framkvæmdastjóri Hnefaleika- félags Reykjavíkur munu vera viðskiptafélagar um innflutning á þeim. ■ Piltur að skemmta sér: Braut glas á andliti DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl- maður viðurkenndi í Héraðsdómi Reykjaness í gær að hafa brotið bjór- glas á andliti manns á skemmtistað í Keflavík í fyrravor. Pi l turinn sagði hins vegar að þetta hafi ekki verið ásetningur sinn; um óhapp hafi verið að ræða. Sá sem varð fyrir bjórglasinu, rúmlega þrítugur karlmaður, fékk sjón- truflanir eftir atlöguna og það brotnaði úr tönn hans. Ríkissaksóknari gerir kröfu um refsingu yfir piltinum. ■ SKIPULAGSMÁL Skipulagsyfirvöld í Reykjavík eru hætt við fjölbýlis- hús fyrir eldri borgara á lóð aust- an við skógræktina í Fossvogi. Frekar eigi að nota lóðina í tengslum við framtíðaruppbygg- ingu Landspítalans. Íbúar í hverfinu mótmæltu harðlega hugmyndum sem Reykjavíkurborg setti fram í október í fyrra um að lóðin yrði nýtt undir um 50 íbúðir fyrir eldri borgara. Íbúðirnar áttu að vera í fjölbýlishúsum sem hæst máttu verða þrjár hæðir. Töldu skipulagsyfirvöld ákjósanlegt að byggja á lóðinni; nóg væri af úti- vistarsvæðum í Fossvogsdal. Þrír aðilar sýndu áhuga á að reisa hús á reitnum. Í farar- broddi eins hópsins var Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for- seti. Skipulagsfulltrúi segir að vegna viðhorfa íbúanna og vegna þess að á aðalskipulagi sé svæðið merkt sem opið svæði sé ekki hægt að mæla með uppbyggingu á lóðinni að svo komnu: „Ákjósanlegra er að skoða frekari uppbyggingu á svæðinu í samhengi við lóð Landspítalans- Háskólasjúkrahúss í Fossvogi og framtíðaráform þar,“ segir í um- sögn fulltrúans. ■ Skólameistari: Ræktaði marijúana IOWA, AP Skólameistari í háskóla í bænum Johnston í Iowa hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að rækta og selja marijúana. Hefur hann verið sendur í launað leyfi á meðan á rannsókn málsins stendur. Lögreglan gerði húsleit hjá skólastjóranum eftir að ábendingar bárust um að hann stundaði við- skipti með kannabisefni. ■ DÓMSMÁL Dómsformaður í máli bræðranna af Skeljagranda sem ákærðir eru fyrir stórfellda lík- amsárás hefur frestað málflutn- ingi við meðferð málsins til 28. mars. Dómsformaðurinn vill bíða nið- urstöðu athugunar á persónuleg- um högum bræðranna. Bræðurnir, sem eru margdæmdir ofbeldis- menn og þjófar, ólust upp við erf- iðar aðstæður. Bræðurnir neita að vera valdir að alvarlegasta áverkanum sem fórnarlamb þeirra fékk föstudags- morguninn 2. ágúst í fyrra. Piltur- inn sem þeir réðust að fékk lífs- hættulega blæðingu í höfði. Hann fannst eftir ábendingu vitnis eftir að bræðurnir hentu honum með- vitundarlausum yfir girðingu. Þar lá hann hulinn í runnaþykkni. Að sögn bræðranna hlaut pilt- urinn alvarlegasta höfuðhöggið þegar hann féll í götuna eftir að hafa hlaupið á eldri bróðurinn. Þeir neita fjölmörgum sakargift- um um að hafa skorið piltinn og stungið. Ákæran er þó játuð að hluta þar sem yngri bróðirinn viðurkennir að hafa greitt piltinum þung hnefa- högg og að hafa klippt gat í eyrað á honum. Eldri bróðirinn segist hafa barið fórnarlambið nokkrum sinn- um í bakið með kústskafti. ■ HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Tveir bræður neita að vera valdir að alvarlegasta áverkanum sem fórnarlamb þeirra fékk á Skeljagranda föstudagsmorguninn 2. ágúst í fyrra. Máli bræðranna sem ákærðir eru fyrir árás á Skeljagranda frestað: Dómari vill skoða hagi bræðranna AFDRIFARÍK HNEFALEIKAKEPPNI Menn hrasa við fyrstu skref ólympískra hnefa- leika hér á landi. Boxdeilurnar í Laugardalshöllinni: Hnefaleikanefndin öll slegin af SKÓGRÆKTARLÓÐIN Í FOSSVOGI Þessi lóð austan við Skógræktina í Fossvogi verður ekki byggð fjölbýlishúsum fyrir eldri borgara eins og skipulagsyfirvöld töldu ákjósanlegt. Ástæðan er andstaða íbúa og sú stað- reynd að lóðin er skilgreind sem opið svæði. Íbúar í Fossvogi hnekkja áformum skipulagsyfirvalda: Aldraðir fá ekki skógræktarlóð ■ Afríka EFASEMDIR UM VOPNAHLÉ Helsta hreyfing uppreisnarmanna neitaði að vera viðstödd þegar ný stjórn tók við völdum á Fílabeins- ströndinni. Fjarveran veldur því að efasemdir vakna um hvort tveggja mánaða vopnahléssam- komulag haldi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.