Fréttablaðið - 14.03.2003, Qupperneq 20
14. mars 2003 FÖSTUDAGUR
JAFNRÉTTISMÁL Síðan kærunefnd jafn-
réttismála var komið á fót árið
1991 hafa borist allnokkrar kærur
á hendur einstökum bæjarfélög-
um. Hefur þessum málum lyktað
með mismunandi hætti en segja
má að í um helmingi tilfella hafi
niðurstaða nefndarinnar orðið sú
að bæjarfélögin hafi gerst brotleg
við jafnréttislög.
Athygli vekur hversu fáar kær-
ur hafa borist á hendur Reykjavík-
urborg, og þá sérstaklega í sam-
burði við Akureyrarbæ. Þetta hef-
ur vakið upp ýmsar spurningar
varðandi stöðu jafnréttismála í
einstökum bæjarfélögum og þau
vinnubrögð sem við eru höfð á
hverjum stað.
„Skýringarnar eru örugglega
margar og þessar tölur þurfa ekki
endilega að endurspegla ástand
jafnréttismála í viðkomandi bæj-
arfélögum,“ segir Hildur Jónsdótt-
ir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur-
borgar. Hildur telur þó nokkurn
mun vera á því hvernig tekið sé á
málum í Reykjavík og svo annars
staðar á landinu. „Þegar borgarráð
samþykkti jafnréttisáætlun
Reykjavíkur árið 1996 og setti mitt
embætti á laggirnar voru jafn-
framt settar skýrar málsmeðferð-
arreglur sem gáfu mér mjög víð-
tæka heimild til þess að skoða
vandlega mál þar sem mig grunaði
að einhver vandi gæti verið á ferð-
inni. Það er okkur metnaðarmál að
reyna að koma í veg fyrir að
starfsmenn borgarinnar standi
frammi fyrir því að þurfa að leita
til kærunefndar eða dómstóla. Við
viljum vera í stakk búin til þess að
leysa úr málum áður en þau eru
komin á það stig. Annars væri okk-
ar jafnréttisstefna og mitt emb-
ætti gagnslaust.“
Hildur ítrekar engu að síður að
það séu afar fá mál sem fara þessa
leið enda sé meðvitundin um jafn-
réttisstefnuna orðin slík að vanda-
mál sem upp koma leysist oftar en
ekki úti í stofnununum sjálfum án
þess að þau komi nokkurn tíma á
borð jafnréttisráðgjafa.
Valgerður H. Bjarnadóttir,
framkvæmdastýra jafnréttis-
stofu, tekur undir orð Hildar og
ítrekar að Reykjavíkurborg sé í
algjörum sérflokki hvað varðar
jafnréttismál. „Árangurinn sem
Reykjavíkurborg hefur náð á
ýmsum sviðum er aðdáunar-
verður og til fyrirmyndar fyrir
önnur sveitarfélög. Þar er starf-
andi afar öflugur jafnréttisráð-
gjafi sem fengið hefur fullan
stuðning borgaryfirvalda til
þess að vinna að þessum málum.
Staða hennar er mjög sterk enda
er hún í hópi æðstu stjórnenda í
kerfinu, bæði beint og óbeint, og
það skiptir gífurlegu máli,“ seg-
ir Valgerður.
brynhildur@frettabladid.is
Málin leyst á heimavelli
Reykjavíkurborg er til fyrirmyndar í jafnréttismálum ef marka má þau mál sem komið hafa inn
á borð kærunefndar jafnréttismála. Margt bendir til þess að skýringanna sé meðal annars að leita
í stjórnskipulegri stöðu jafnréttisráðgjafa borgarinnar.
HILDUR JÓNSDÓTTIR
„Ég er eini jafnréttisráðgjafinn á landinu
sem er með málsmeðferðarreglur og því
skýrt umboð til þess að fjalla um þessi
mál. Í þau fáu skipti sem reynt hefur á
þetta umboð hefur það gengið afskaplega
vel,“ segir Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráð-
gjafi Reykjavíkurborgar.
FISKVEIÐAR Flest íslensk skip hafa
nú klárað loðnukvóta sinn og eru
kolmunnaveiðar hafnar. Hins
vegar hafa nokkur skip geymt
loðnukvótann fyrir hrygningar-
tímann sem gengur í garð um
þessar mundir og hyggjast selja
hinn frjósama uppsjávarfisk á
Japansmarkað.
„Japanir telja hrygningarloðn-
una fríska upp á kynhneigðina og
nú þegar 25 prósent af þyngd
loðnunnar er hrogn sækja þeir
mikið í að sjúga úr henni hrogn-
in,“ segir Freysteinn Bjarnason,
útgerðarstjóri Síldarvinnslunnar
hf. í Neskaupstað.
Loðnan er vanalega brædd í
mjöl eða lýsi, líkt og kolmunninn,
en færst hefur í vöxt að flaka og
frysta síld á hafi úti.
Reikna má með að veiðar á síld
hefjist í maí og vari fram á haust-
ið, en nú eltast nótaskipin við
kolmunnann, sem er ódýrastur
uppsjávarfiska. ■
LOÐNUNNI LANDAÐ
Kolmunnavertíðin er gengin í garð, en
nokkur skip hafa geymt loðnukvóta fram á
hrygningartímann fyrir hrognelska Japani.
Veitt á Japansmarkað:
Hrygningarloðna
fyrir kynhneigðina
PEKING, AP Atvinnulaus stáliðnað-
armaður gekk inn á skrifstofu
Reuters í Peking og hótaði að
sprengja sig í loft upp ef frétta-
stofan fjallaði ekki um kröfu
hans um réttlæti í Kína. Maður-
inn hafðist við inn á skrifstof-
unni ásamt starfsmönnum
fréttastofunnar í rúman klukku-
tíma áður en hann gaf sig á vald
lögreglunnir. Fullyrðing manns-
ins um að hann væri með
sprengju reyndist þó ekki á rök-
um reist og komust starfsmenn-
irnir allir ómeiddir út úr húsinu.
Maðurinn sagðist vera að
mótmæla spillingu meðal kín-
verskra ráðamanna og vilja
vekja athygli heimsins á þessum
svarta bletti á kínversku samfé-
lagi. Starfsfólk Reuters setti upp
sjónvarpsupptökuvél til að
mynda manninn á meðan hann
kynnti málstað sinn. ■
Ólánsamur
lögreglumaður:
Kenndi
smygl-
urum um
ZAGREB, AP Króatískur lögreglu-
maður, sem hélt því fram að
hann hefði verið skotinn af
smyglurum, viðurkenndi að
hafa logið upp sögunni eftir að
hann varð fyrir því óhappi að
skjóta sig í magann með eigin
byssu. Hafði hann verið að
hreinsa byssuna þegar skot
hljóp úr henni fyrir slysni.
Tugir lögreglumanna höfðu
lagt nótt við dag til að hafa
hendur í hári smyglaranna og
skotárásin verið aðalfréttin í
fjölmiðlum landsins heila helgi
þegar sannleikurinn loksins
kom í ljós. Lögreglumanninum
hefur verið sagt upp störfum og
á hann auk þess yfir höfði sér
ákæru. ■
Sprengjuhótun hjá Reuters:
Vildi afhjúpa spillingu
og óréttlæti
ÖRYGGISVARSLA
Kínverskir lögreglumenn bægðu fjölmiðla-
mönnum frá Reuters-fréttastofunni.