Fréttablaðið - 14.03.2003, Side 26
FÖSTUDAGUR 14. mars 2003
Komdu og kynnstu af eigin raun hvað það er sem heillar bílaáhugafólk um víða veröld við Mazda6. Og
svo er verðið miklu hagstæðara en ríkulegur búnaður bílsins gefur til kynna.
Mazda6, bíll ársins í:
Austurríki, Belgíu, Danmörku, Frakklandi, Finnlandi, Litháen, Írlandi, Skotlandi, Svíþjóð
og annað sætið í kosningu á bíl ársins í Evrópu og Gullna stýrinu í Þýskalandi.
.
Opið frá kl. 12-16 laugardaga.
ORÐSPORIÐ SEGIR SÍNA SÖGU
Veiði í ám og vötnum í 4 eða 5 daga
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www. gjtravel.is Netfang: outgoing@gjtravel.is
ELSTA STARFANDI FERÐASKRIFSTOFA LANDSINS, FERÐARÁÐGJÖF OG FARPANTANIR UM ALLAN HEIM
80.900Verðfrá
Flug, sigling, veiðileyfi,
gisting og leiðsögn
Flogið er frá Reykjavík með Flugfélagi
Íslands og lent í Narsarsuaq á Suður-
Grænlandi. Þar tekur fararstjóri á móti
hópnum og siglir með hann til Narsaq þar
sem dvalið er og siglt til veiða á
hraðbátum alla dagana.
Þú kynnist töfrum náttúrunnar meðan þú rennir fyrir
laxi við stórkostlegar aðstæður. Vötnin eru bæði stór
og smá. Árnar eru flestar stuttar, straumharðar og
vatnslitlar með flúðum og fossum. Fluguveiði á
Grænlandi hefur gengið mjög vel, en veiði á spún í
vötnum og í sjó hefur einnig gefist vel.
Takmarkaður fjöldi í hverri ferð
Við leggjum metnað í góða fararstjórn og vandaða
leiðsögn við veiðar. Þess vegna er fjöldi í hverri ferð
takmarkaður við 8 manns í bát. Tilvalið fyrir veiði-
félaga, hjón, pör eða fjölskyldur að skella sér í
skemmtilega veiðiferð á framandi slóðir við
ógleymanlegar aðstæður.
Faglegar ráðleggingar um búnað og veiðina fyrir
brottför.
HREINDÝRAVEIÐAR EINNIG Í BOÐI.
Brottfarardagar fyrir 4ra daga ferðir: 1. júlí, 8. júlí, 15. júlí,
19. ágúst og 26. ágúst. Brottfarardagar fyrir 5 daga ferðir:
4. júlí, 11. júlí, 15. ágúst og 22. ágúst.
Verð miðast við gengisforsendur í janúar 2003.
Innifalið: Flug Reykjavík–Narsarsuaq–Reykjavík,
flugvallaskattar, siglingar með hraðbát alla dagana,
gisting í 2ja manna herbergi í svefnpokaplássi,
veiðileyfi, fararstjórn.
VERÐ Á 4RA DAGA FERÐ 80.900 KR.
VERÐ Á 5 DAGA FERÐ 89.900 KR.
Stangveiðiferðir til Grænlands
SALT LAKE CITY, AP Fimmtán ára gömul
bandarísk stúlka, Elizabeth Smart,
sem var rænt á heimili sínu í Salt
Lake City í Utah fyrir níu mánuð-
um, fannst í úthverfi borgarinnar, á
göngu með heimilislausum flakk-
ara. Ekkert amaði að stúlkunni og
var farið með hana til fjölskyldu
sinnar en maðurinn var hnepptur í
varðhald ásamt konu sem einnig er
grunuð um aðild að mannráninu.
Stúlkan fannst eftir að lögregl-
unni bárust ábendingar frá fólki
sem séð hafði til flakkarans. Birtar
höfðu verið myndir af manninum í
fjölmiðlum eftir að borist höfðu
ýmsar vísbendingar sem bendluðu
hann við málið.
Lögreglan hefur rætt við stúlk-
una en enn hefur ekkert verið gefið
upp um ástæður þess að henni var
rænt eða aðstæður hennar síðustu
níu mánuði. Allt bendir þó til þess
að henni hafi verið haldið gegn vilja
sínum og að parið sem er í haldi lög-
reglunnar hafi haft auga með henni
öllum stundum til að gæta þess að
hún kæmist ekki undan. ■
Níu mánaða martröð unglingsstúlku:
Bjargað úr klóm
mannræningja
STJÓRNSÝSLA Andsvör Gylfa
Gauts Péturssonar, for-
stjóra Löggildingarstofu,
við ávirðingum Ríkisend-
urskoðunar um fjármála-
óreiðu, verða ekki afhent
fyrr en í næstu viku.
Ragnar H. Hall hæsta-
réttarlögmaður skilaði at-
hugasemdum fyrir hönd
Gylfa til iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins mánu-
daginn 10. mars. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
ráðuneytinu þykja mörg
atriði í skýrslunni vera svo
persónuleg og varða slíka
einkahagsmuni að þau falli
ekki undir afhendinga-
skyldu samkvæmt upplýsingalög-
um. Lögfræðingar ráðu-
neytisins séu nú að yfir-
fara málið. Það sé vanda-
samt og tímafrekt enda sé
skýrslan yfir 60 blaðsíður.
Valgerður Sverrisdótt-
ir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, telur að víkja
beri Gylfa tímabundið úr
forstjórastarfinu á meðan
sérstök nefnd fer yfir
málið.
Ragnar H. Hall segir
ráðherrann skorta laga-
heimild fyrir brottvikn-
ingunni. Ekki sé hægt að
reka opinberan starfs-
mann fyrir fjármála-
óreiðu sem sé ekki lengur
fyrir hendi. ■
Skýrsla forstjóra Löggildingarstofu stopp hjá ráðherra:
Einkahagsmunir
tefja afhendingu
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Vill víkja forstjóra
Löggildingarstofu
úr starfi og hefur
fengið andsvör for-
stjórans sem telur
ekki tilefni til
brottvikningar.