Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 29

Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 29
30 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Mig minnir að það hafi veriðJung sem skipti ævinni niður í fjóra kafla; æsku, ungmanndóms- ár, manndómsár og efri ár. Æskuna þarf ekki að skýra en ungmann- dómsárin eru sá tími sem við erum að koma okkur fyrir í heiminum með tilheyrandi brölti; efasemdum um reglur og siði og gagnrýni á þá sem eldri eru. Þessu fylgja oln- bogaskot og önnur skot; ungt fólk að búa sér til stöðu og sess. Mann- dómsárin eru kyrrari. Þá er fólk búið að hlaupa af sér flest horn en býr að mikilli reynslu til að hrinda stórum verkum í framkvæmd. Egóið er líka orðið hljóðlátara og kröfuminna. Verk unnin á mann- dómsárunum eru því oftar ríkari að innra gildi; þau eru ekki eins háð stöðu gerandans og afrek ungmanndómsáranna. Efri árin eru tímabil sáttar og visku. Þegar fólk hefur farið í gegnum aðra kafla ævinnar getur það horft hlut- lausara á lífið og metið atburði og orð án þess að þvæla sjálfu sér of mikið í málin. Þetta eru hinir vitru, gömlu menn; öldungarnir. Ef ég man rétt skipti Jung þess- um aldursskeiðum nokkuð nák- væmlega niður. Þannig átti æskan að enda um 21 árs aldurinn og ung- manndómsárin að taka við. Þegar fólk var um 42 ára fór það yfir á manndómsár og viskan og aldurinn tóku síðan við þegar fólk var orðið 63 ára. Ég trúi að Jung hafi talið þetta vera til viðmiðunar; að til væri bráðgert fólk sem færðist fyrr á milli þrepa og annað sem strandaði einhvers staðar á leið- inni. Þó held ég að meiningin sé ekki sú að sá sé þroskaður sem verður gamall og vitur fyrir aldur fram. Hverju aldursskeiði fylgir ákveðin sýn og ákveðin verðmæti. Ungum manni nýtist þannig ekki veraldarsýn þess sem horfir á lífið af sjónarhól þess sem hefur lifað lengi og reynt margt. Það er ekki hægt að stytta sér leið í lífinu. Eins vitlaust og þetta hljómar allt hefur mér alltaf fundist nokk- urt vit í þessari skiptingu. Og þó ég geri mér grein fyrir að hugmyndir okkar um æsku og ábyrgð breytist eftir stefnum og straumum í sam- félaginu þá finnst mér eins og við mættum taka tillit til þessarar skiptingar við mótun samfélagsins. Mér er til dæmis til efs að það sé gott í sjálfu sér að teygja nám í svo til öllum greinum langt fram á þrí- tugsaldurinn. Eins að við ættum að fara hægt í að draga úr ábyrgð fólk á síðustu árum æskunnar. Þróun persónunnar byggir að miklu leyti á líffræðilegri þróun mannlíkam- ans. Kröfur og væntingar samfé- lagsins til fólks á mismunandi aldri þurfa að taka mið af því. ■ Mörgum er heitt í hamsi þessadagana. Stjórnmálaumræðan einkennist af stríðsyfirlýsingum og samsæriskenningum. Talað er um aðför. Á kirkjulegum vett- vangi ræður veldi tilfinninganna. Fríkirkjupresturinn talar um mannréttindabrot og hversu vondir við þjóðkirkjumenn erum við hann. Og skrattanum er skemmt. Þar sem ég reyni yfirleitt að leika í öðru liði en hann þá leiðist mér þetta orðaskak. Víst gera svona upphlaup störf fréttamanna auð- veldari. Yfirlýsingaglaðir klerkar og pólitíkusar eru þeim mjólk og hunang. Þó ætla ég ekki að sú stétt standi myrkrahöfðingjanum neitt nær en hver önnur, þar á meðal við klerkar. En ég trúi því að okkur mann- fólkinu sé gefin skynsemin af Skapara allra góðra hluta. Þá skynsemi eigum við að nota til að sefa þær ástríður sem valda sjálf- um okkur og náunganum tjóni. Þá skynsemi eigum við að nota til að stöðva stríð hvort heldur eru háð með sverðum eða orðum. Ég virði ævinlega Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra fyrir að vera stilltari en aðrir menn í opinberu lífi á Íslandi. Því til stuðnings skal ég nefna atburð sem nú er óhætt að skoða úr sögu- legri fjarlægð. Þannig var að Al- þingi Íslendinga samþykkti lög sem bönnuðu verkfall flugfreyja að kvöldi dags 23. október 1985. Forseta lýðveldisins frú Vigdísi Finnbogadóttur var gert að skrifa undir þau lög að morgni næsta dags. Sá dagur var sérstakur bar- áttudagur kvenna 24. október. Og forsetinn tók sér frest að undir- rita lögin þennan morgun enda sett í pínlega stöðu. Nema að allt ætlaði um koll að keyra. Þung orð féllu. Verandi forsetaritari varð ég vitni að þessum róstum. Þennan dag hugsaði ég hversu naglfestan væri lítil í íslenskri siðmenningu. Undir hádegi ókum við nafni minn Ásgrímsson til Bessastaða en hann var þá starfandi forsætis- ráðherra. Á leiðinni sagði hann sallarólegur: „Ég skil ekki af hverju menn eru að æsa sig svona.“ Hann hélt sem sagt still- ingu sinni þarna forðum þótt hann væri í miðri orrahríðinni. Og - af- sakið að ég vitna svona í tveggja manna tal. Ég rifjað þennan atburð upp af því að það er eðlileg krafa til okk- ar sem störfum og tjáum okkur á opinberum vettvangi að við höld- um stillingu okkar. Vörumst gíf- uryrði sem valda meira ógagni en gagni. Temjum okkur samræður frekar en kappræður. Upplýsingu frekar en áróður. Minnumst þess þegar dregur til kosninga. Móðir mín heitin reyndi með takmörkuðum árangri að kenna mér ljóð, en ég tregaðist við. Þó tókst henni að kenna mér brot úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Ben. Þau orð eiga vel við þegar við hjölum ábyrgðarlaust. ...Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. REYKJAVÍKURLISTINN átti við- skipti við alla helstu fjölmiðla landsins vegna kosninganna 1994 og stóð að þeim loknum í skuld við bæði Stöð 2 og Morgunblaðið vegna auglýsingakostnaðar. Þvi hefur verið haldið fram að Jón Ólafsson hafi greitt skuldir Reykjavíkurlistans við Stöð 2 vegna kosninganna 1994. Þetta er ekki rétt og á ekki við nokkur rök að styðjast. F.h. kosningastjórnar 1994 samdi ég undirritaður við fjöl- miðla um tiltekinn afslátt og sá um greiðslu skulda. Reykjavíkur- listinn naut ekki meiri fyrir- greiðslu hjá Stöð 2 en hjá Morg- unblaðinu, svo dæmi sé nefnt. Bæði Morgunblaðið og Stöð 2 felldu niður um 25% auglýsinga- kostnaðar en að öðru leyti greiddi Reykjavíkurlistinn upp þau 75% sem á milli bar við báða aðila án þess að Jón Ólafsson eða fyrir- tæki hans legðu þar fé af mörk- um. F.h. kosningastjórnar Reykjavíkurlistans 1994, Valdimar K. Jónsson. Um daginnog veginn HALLDÓR REYNISSON ■ verkefnisstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs Biskupsstofu skrifar um umræðu dagsins. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um mismunandi tímabil í þróun persónuleikans. Lenging æskunnar Fjas og fúkyrðaflaumur ■ Yfirlýsing JAFNRÉTTI Félag kvenna í læknastétt hefur sent Tryggingastofnun bréf þar sem óskað er skýringa á ráðn- ingu fimm lækna til að meta færni sjúklinga til örorkumats. Í bréf- inu óska konurnar eftir að varpað verði ljósi á hvers vegna störfin voru ekki auglýst og hvað veldur því að aðeins karlmenn voru ráðn- ir. Ólöf Sigurðardóttir, formaður félagsins, segist ekki vita til þess að auglýst hafi verið eftir læknum til þessara verka, en hafi það ver- ið gert óski þær eftir að vita hvar sú auglýsing hafi birst. Sigurður Thorlacíus trygg- ingayfirlæknir segir það rétt að stöðurnar hafi ekki verið auglýst- ar heldur Tryggingastofnun leitað til fimm lækna enda sé aðeins um tilraunastarfsemi að ræða. „Við töluðum við tíu lækna sem við treystum til að vinna þetta verk og þar af voru fjórar konur. Kon- urnar sáu sér hins vegar ekki fært að bæta þessu við sig og niður- staðan varð þessi. Það stóð aldrei til að auglýsa enda litið á þetta sem tilraun til áramóta. Hvað við gerum þá er ekki ákveðið en það getur allt eins verið að þá auglýs- um við ef reynslan af þessari til- högun verður góð. Læknarnir fimm annast þetta verkefni sem verktakar í samvinnu við trygg- ingayfirlækni. Það eru þeir Guð- jón Baldursson, Guðmundur Björnsson, Skúli Gunnarsson, Yngvi Ólafsson og Þengill Odds- son. Fyrirmynd hins nýja fyrir- komulags er sótt til Bretlands en lagað að íslenskum almanna- tryggingalögum þannig að til verður sérstakt íslenskt afbrigði af bresku leiðinni. ■ TRYGGINGASTOFNUN RÆÐUR LÆKNA TIL AÐ META FÆRNI Tilraunaverkefni til áramóta, segir trygg- ingayfirlæknir Félag kvenna í læknastétt skrifar TR: Vilja skýringar á ráðningum lækna Þrotabú Burnham: Hafði sjö milljónir af gigtarsjóði DÓMSMÁL Þrotabú Burnham International á Íslandi hf. skuldar Rannsóknarsjóði í slitgigtarsjúk- dómum tæpar 7,8 milljónir króna vegna misnotkunar á fé gigtar- sjóðsins. Gigtarsjóðurinn fól í október 2000 Burnham að ávaxta 23 millj- ónir króna. Aðeins átti að kaupa tiltekinn verðbréf. Burnham lét fljótlega sjö milljónir af fé gigtar- sjóðsins renna til kaupa á víxli frá Burnham sjálfu. Fyrirtækið tók þannig í raun lán hjá gigtarsjóðn- um. Víxillinn var ekki greiddur heldur ítrekað framlengdur. Gigt- arsjóðurinn var loks látinn kaupa nýjan víxil í júní 2001. Burnham komst í þrot. Kröfur í búið námu fyrir ári 464 milljónum króna. Eignir voru 8,5 milljónir. Héraðsdómur Reykjavíkur segir framkvæmdastjóra Burn- ham hafa borið að fjárhagsstaða félagsins hafi ekki verið góð í júní 2001 „en það var ekkert svart- nætti þannig séð“. Dómarinn seg- ir hins vegar að forsvarsmönnum Burnham hafi mátt vera ljóst að eiginfjárstaðan var ekki traust. Því hafi ekki verið heimilt að ráð- stafa fé gigtarsjóðsins með því að láta sjóðinn kaupa víxilinn: „Með því var skyldur trúnaður við við- skiptamann brotinn.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.